Vikan - 24.09.1964, Blaðsíða 4
Vafalaust halda flestir, sem sjá þessa mynd, að hún sé tekin á einhverju glæsilegu gisti-
húsi, þar sem sumars og sólar nýtur við meirihluta ársins. Líklega sé húsið einhversstaðar
uppi í fjöllum, og að milljónamæringur búi þarna í vellystingum praktuglega.
Sennilega er það rétt, að eigandi hússins sé í það minnsta vel stöndugur, en að þarna
njóti yfirleitt sólar og sumars — það er ekki rétt. Þessi mynd er nefnilega tekin neðan-
jarðar, á ,,svölum“ neðanjarðarhúss, sem bandarískur arkitekt hefur byggt algjörlega und-
ir yfirborði jarðar, svo að aðeins reykháfurinn stendur uppúr. Hann hefur auðvitað séð
fyrir tilbúnu sólskini og þægilegri veðráttu þarna niöri, alveg að eigin hentugleikum.
Þarna við svalirnar hefur hann ræktað lítinn garð, en í baksýn er aðeins málað landslag,
til að gera útsýnið eðlilegxa. Með allskonar ljósabreytingum getur hann svo haft tunglskin
eða miðnætursól, eftir því sem óskað er.
ÁstæSur fyrir þessu uppátæki hans eru va'aiaust margar, en aðalástæðuna segir hann
vera að sýna fólki hvernig það geti lifað neðanjarðar í fulikomnu öryggi fyrir allskonar
sprengjuárásum, veðurhamförum og slíku — og haft pað jafnframt gott og þægilegt.
Húsio hefur tíu herbergi og öll þægindi, og kostar aðeins rúmar þrjár milljónir ísl. kr.
Rígaþorskur
Það var í vor, að allur sjórinn við sunnan-
vert landið fylltist af rígaþroski, svo „elztu
menn muna ekki annað eins.“ Sigurjón Jó-
hannsson gekk sér til heilsubótar niður á
höfn einn morguninn, þegar veiðiglaðir sjó-
arar voru að koma að með afla sinn, og tók
þessar myndir, sem hér fylgja með. Hér er
knár sjómaður — hreint ekki svo smávax-
inn — með eina þorskskepnuna, sem slagar
hátt í meðalmann að stærð. Á hinni myndinni
er ferðlúinn þorskur að gá að því, hvort ekki
verði bráðum farið í land.
Fyrsti kvikmynda-
kossinn
Sjaldan fellur eplið langt frá eikinni.
Milljónir ungra stúlkna myndu eflaust vilja
standa í sporum hennar. Hún heitir Pia Lind-
ström, er elzta dóttir Ingrid Bergman og
fetar í fótspor móðurinnar. Hér fær hún
sinn fyrsta filmstjörnukoss, og gagnaðilinn
er enginn annar en hálfguðinn Marcello
Mastroianni, sem allir bíógestir kannast við.