Vikan - 24.09.1964, Page 8
HOT WiIP
FIRE A RING
AC KERTI er eina kertiö,
sem tiefur hreinan bruna
og heitan odd til að auð-
velda gangsetningu, auka
eldneytisnýtingu og gera
sjálf kertin endingarbetri.
Þessir eiginleikar eru jafn
áríðandi í nýjum bílum sem
gömlum.
AC-KERTI eru í öllum
Opel-, Vauxhall- og Chev- K?$| VÉLADEILD
rolet-bílum.
Þad er sterkur Ieikur!!
AÐ DREKKA JOHNSON & KAABER KAFFII
KMFlilMIÐ
í ÞJÓÐLEIKHÚSINU
Mynd þessi var tekin á áttræðisafmæli
Helen Keller fyrir fjórum árum síðan.
Herbert Hoover kallaði hana „hug-
prúðustu konu jarðar.“
RÉTT fyrir síðustu aldamót
var lítil, blind og heyrn-
arlaus stúlka að leika sér
fyrir utan heimili sitt í
Bandaríkjunum. Hún hafði
aldrei heyrt neitt talað
orð, og gat ekki gert sig skilj-
anlega við aðra á nokkurn hátt,
því hún kunni heldur ekki að
tala.
Hún var stödd ásamt kennara
sínum við vatnsdœlu í liúsagarð-
inum, og svalt vatnið rann yfir
hönd hennar. Kennarinn tók þá
hina höndina og stafaði i liana
orðið V-A-T-N, fyrst hægt en
síðan Iiraðar.
Allt í einu skildi litla stúlkan
að þessi merki í hönd hennar
gáfu hcnni til kynna hvað þetta
furðulega, kalda efni var, sem
rann yfir hönd hennar. Hún
bej'gði sig niður og snerti jöðr-
ina með hendinni, og krafðist
skýringar, — og um kvöldið
hafði hún lært þrjátiu orð....
Þessi litla stúlka varð síðan
mikilvirkur rithöfundur og
heimsfræg fyrir gáfur ag mikil-
virkt starf að ýmsum mannúðar-
málum.
Helen Keller hét þessi unga
stúlka, og fyrir nokkrum árum
síðan kom liún hingað í heim-
sókn til íslands. Hún er þekkt
hér á landi sem og viðast ann-
arsstaðar i heiminum, enda er
ævi hennar einhver sú furðu-
legasta, sem um getur. Þjóðleik-
húsið sýnir um þessar mundir
leikritið „Kraftaverkið“ sem er
byggt á ævi hennar.
Helen Keller fæddist fullkom-
lega heilhrigð og hraust í fögru
umliverfi í Alahamafylki i
Bandarikjunum, en aðeins 19
mánaða gömul tók hún veiki er
leiddi til þcss að hún var alger-
Icga bjargarlaus, þar til hin unga
kennslukona, Anne Sullivan tók
hana að sér.
Það verkefni tvítugrar stúlku,
sem áður hafði sjálf þolað öm-
urleik sjónleysisins, var erfitt,
krafðist mikillar þolinmæði og
þrautseigju og oft var ungfrú
Sullivan gráti næst, því barnið
var erfitt i umgengni. En vissu-
lega skiptust á skin og skúrir
og smátt og smátt tókst henni
að kenna barninu að þekkja orð,
og skilja merkingar þeirra.
Frá þeim tíma, er litla stúlkan
lærði að stafa sitt fyrsta orð
tók hún miklum og örum fram-
förum og tíu ára gömul var
Helen Keller farin að geta talað
við kennslukonuna, — á fingra-
máli. Næstu árin sagði hún oft
við ungfrú Sullivan, „Ég vil fara
i háskóla,“ og það tókst lienni.
24 ára gömul útskrifaðist hún frá
Radcliffe háskóla með hárri
einkunn og hélt siðan áfram að
mennta sig á eigin spýtur. Að
þvi kom, að ungfrú Sullivan,
sem hafði alla tið verið henn-
ar hægri hönd, gifti sig, en það
breytti engu þeirra í milli og
þai- til kennslukonan lézt voru
þær æ jafn handgengar hvor
annarri.
Helen Keller liefur ritað marg-
ar hækur og sú fyrsta þeirra,
„Saga lífs míns“ hefur verið
þýdd á yfir 50 tungumál. Hún
hefur fcrðazt víða um heiminn
og starfað að mannúðarmálum
og m.a. kom hún hingað til Is-
lands fyrir nokkrum árum siðan
og cignaðist hér marga vini og
aðdáendur eins og alls staðar
þar sem hún hefur komið.
Stuttu fyrir dauða sinn sagði
ritliöfundurinn Mark Twain,
„Tvær merkustu persónur nítj-
ándu aldarinnar eru Napóleon
og Helen Keller.“ — Einkennileg
samlíking, að visu, en eitt áttu
þau þó sameiginlegt; bæði voru
þau sigurvegarar. Napoleon