Vikan - 24.09.1964, Qupperneq 32
Notaðir bílar
og nýir
f miklu úrvali og við allra efni
NÝIR BfLAR ERU OFVIÐA FJÖLMÖRGUM
Öll þekktustu merkin á markaSnum
Seljum gegn: staðgreiðslu, afborgunum, tryggum skuldabréfum og
vel tryggðum víxlum.
Komið, skoðið og kaupið
Gamla Bílasalan Rauðará
Skúlagötu 55 — Sími 15812.
*
II
4
'hUPioar
Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags.
IlrútsmerkiS (21. marz — 20. april);
Ekki veröur meö vissu lesið úr stjörnunum, hvaö
þessi vika ber í skauti sínu. Þó virðist hún verða
allt annað en venjuleg. Ýmislegt bendir einnig til,
að þú eigir eftir að táka persónulegum sálarlífs-
brcytingum í vikunni. Heillatala ungs fólks er 4.
Nautsmcrkið (21. apríl — 21. maí):
©Þetta verður í flesta staði þægileg vika, ef þú lætur
ekki undan freistingum, sem bíða þín, og allt bend-
ir tll, að þú hafir viljaþrek til að standast þær.
Líklega gerist eitthvað í vikunni, sem breytir áform-
um þínum nokkuð. í sambandi við búferlaskipti gerist eitt-
hvað mjög ánægjulegt.
Tviburamcrkið (22. maí — 21. júní):
Þú tekur miklum framförum á vissu sviði í þessari
viku, og getur þetta orðið til þess, að þér bjóðist
tækifæri, sem er mjög girnilegt. Þú skalt þó ekki
taka því, nema þú sért viss um að hafa tima til
að sinna því. Það er varasamt að hafa mörg járn í eldinum.
Krabbamcrkið (22. júní — 23. júlí):
Þú munt eiga óvenju annríkt í vikunni, svo að
þú getur naumast gert þér vonir um frístundir.
Ef þú verður að velja milli skyldustarfa og áhuga-
mála, skaltu fyrir alla muni láta skylduna ganga
fyrir. Heillalitur er rautt.
Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst): í
©Þú munt eiga mjög annríkt í vikunni, og hætt
er við, að þú ráðir alls ekki fram úr því, sem
til er ætlazt af þér. Leggðu samt ekki árar í bát, j
þín bíða rólegri vikur. Þér græðist töluvert fé,
skyndilega og óvænt.
Mcyjarmerkið (24. ágúst — 23. september):
©Þú virðist alltof svartsýnn þessa dagana, og það
mun koma í ljós innan tíðar, að svartsýni þín
hefur verið algerlega ástæðulaus. Að vísu mun
ekki allt ganga sem bezt á mánudaginn, en það
mótlæti á eftir að kenna þér mikilvæga lexíu.
Vogarmerkið (24. septembcr — 23. október):
Þú hefur einn vina þinna fyrir rangri sök, og
er leiðinlegt til þess að vita, en úr þessu rætist
samt nú í vikunni. Það ber dálítið á þrjózku í
fari þínu þessa dagana og verður þú að reyna að
venja þig af þeim ósið.
Drekamerkið (24. október — 22. nóvember);
Þú munt eiga skemmtilegt stefnumót í vikunni,
og ef vel á að fara, verður þú að sýna fyllstu
tillitssemi og kurteisi. Þú ert dálítið viðkvæmur
fyrir gagnrýni þessa dagana. Mundu, að hana verða
allir að þola.
Bogamannsmcrkið (23. nóvember — 21. desember):
©Þú gerðir eitthvað í vikunni sem leið, sem kom
félögum þínum afar illa, og það finnur þú vafa-
laust á framkomu þeirra í þessari viku. Þú get-
ur líklega ekkert við þessu gert — það verður
ekki aftur tekið.
Steingeitarmerkið (22. dcsember — 20. janúar):
Líklega verður þessi vika ekki á allan hátt eins
og þú hafðir gert ráð fyrir. En ekki skaltu kvíða
neinu, þvi þetta verður yfirleitt hin ánægjuleg-
asta vika. Eitthvert kvöldið gerist það, sem þú hef-
ur lengi beðið eftir.
Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. fcbrúar):
®Þetta verður vika mikillar hamingju á flestum svið-
um. Þó er hætt við, að eitthvert smáatvik eigi
eftir að valda þér einhverjum áhyggjum. Þú ferð
í skemmtilegt samkvæmi um helgina, þar sem þú
kynnist persónu, sem þú átt eftir að umgangast töluvert.
©Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz):
Þú skalt ekki leggja út í neina óvissu í þessari viku,
vegna þess, að á einu sviði leikur lánið allt annað
en við þig. Einn vinur þinn gerir þér ómetanlegan
greiða. Fimmtudagur verður bezti dagur vikunnar.
Skemmtu þér ekki mikið.
^2 — VIKAN 39. tbl.