Vikan - 30.12.1964, Side 27
HVAÐ
SKEÐUR
NÆSTA
ARI
SÉRFRÆÐINGUR
VIKUNNAR
LEYSIR
ÚR
SPURNINGUM
UM
FRAMTÍÐINA,
OG
UPPLÝSIR
HVAÐ
SKEÐUR
Á
ÁRINU
TEIKNINGAR:
HALLDÓR
PÉTURSSON.
VIKAN veit að það gæti
komið lesendum vel, að hafa
á takteinum nákvæmar og
áreiðanlegar upplýsingar um
atburði og alla framvindu
mála á árinu 1965. Það hef-
ur sýnt sig margoft að þegar
gerðar eru áætlanir fram í
tímann, er þægilegt og raun-
ar nauðsynlegt að vita með
nokkurri nákvæmni hvað
framtíðin ber í skauti sér.
Það er og kunnugt, að
VIKAN gerir allt — bæði
mögulegt og ómögulegt — til
að veita lesendum sínum þá
þjónustu, sem þeir eiga
heimtingu á, frá góðu og vel-
metnu blaði. Þess vegna birt-
um við hér með stuttorða,
en áreiðanlega skýrslu um
atburði næsta árs hér á landi,
og vonumst til þess að þeir
sem eru að leggja undir-
stöðu að framtíðaráætlunum
sínum, veiti þessari skýrslu
verðskuldaða athygli, og fari
eftir henni.
Erlend viðskipti.
Áhrif plánetunnar Merkúr
í fyrsta húsi, mega teljast
hagstæð varðandi öll við-
skipti landsmanna við aðrar
þjóðir. Marz verður samt í
nokkuð óhagstæðu horni við
Merkúr í maí og júní, en úr
því dregur strax um sumar-
mál og hornið lagast smám
saman.
Oll utanríkisverzlun mun
því ganga þokkalega, eins
og að undanförnu, og verður
tiltölulega lítill undirballans,
miðað við það sem síðar
verður.
Satúrnus ( þriðja húsi bend-
ir til aukinna viðskipta við
Rússa, og þá sérstaklega
kaup á bensíni og olíum,
jafnvel þótt SÍS megi ekki
flytja það.
Innfultningur á genever,
ísskápum og Carlsberg eykst
að mun í öndverðum marz,
þegar Unnsteinn fer á al-
þjóðaráðstefnu tollyfirvalda
á Madagaskar. Tillaga til
þingsályktunar verður borin
fram á Alþingi um að gefa
öllum tollþjónum ársfrí frá
störfum á tvöföldum launum,
vegna óþæginda sem þeir
hafa valdið sjómannastéttinni
og allri útgerð í heild á und-
anförnum árum. Þessi ráð-
stöfun mun leiða til þess að
ísskápur fullur af genever
verður til á hverju heimili og
Carlsberg í hverjum kjallara.
Þá verður gaman að lifa.
Áframhaldandi útflutning-
ur á íslenzkum togurum mun
færa þjóðarhejldinni auknar
tekjur eins og að undanförnu,
og Neptúnus ( 17. húsi bend-
ir til þess að fjórir nýlegir
togarar verði seldir til ísrael
um sólstöður.
(Húsum verður fjölgað að
mun á árinu, vegna aukinna
lánveitingaloforða húsnæðis-
málastjórnar — meira um það
síðar).
Sjöstirnið og Karlsvagninn
rugla saman reitum í októ-
berbyrjun, sem bendir ótví-
rætt til sölu á verulegu magni
af pappakössum til Ghana,
framleiddum hjá nýju pappa-
kassaverksmiðjunni sem Sölu-
miðstöðin er alltaf að stríða
Kr. Jóh. Kr. með.
Menningarmál.
Mórallinn hjá yngri kyn-
slóðinni skánar eitthvað,
enda skrifar Ólafur Gunnars-
son frá Vík í Lóni í júní í
Jyllandsposten, að hann geti
ekki versnað að mun.
Æskulýðsleiðtogar taka sér
stöðu í Þjórsárdal, Þingvöll-
um, Hreðavatni og við Laug-
arvatn um Verzlunarmanna-
helgina, en einhver lævís
unglingur finnur upp Laug-
ardalsvelli sem upplagðan
geimstað, og þar verður al-
mennt brjálæði um helgina.
íslenzkir bítlar fá verðlaun
(• fegurðarsamkeppni, sem
Einar stendur fyrir í Las Veg-
as, Cal. og fá atvinnu sem
sýningargripir á frægri hár-
greiðslustofu í Beirut.
Forstöðukona hegðunar-
skólans gefur út bók ( skinni:
„Kvurnig stendur á því, að
karlmenn kunna ekki kurt-
eisi?" og auglýsir námskeið
fyrir karlmenn í hugleiðing-
um.
Kvennafar fer vaxandi að
mun hjá karlmönnum, vegna
áhrifa Venusar í 14. húsi.
Dagarnir 28. og 31. ágúst
verða sérstaklega hættulegir
kvenfólki, sem klæðist botn-
lausum kjólum, en strax kl.
6, að morgni þann 1. sept.
dregur úr þessum áhrifum,
og afleiðingarnar koma í Ijós
á miðju næsta ári.
Budduþjófna?)'jr frá göml-
um konum fer vaxandi og
húsmæður ásaka fisksala um
ranga vigt á kæstri skötu.
Iðnaður.
Áhrifa Bakkusar gætir ó-
tvírætt í 30° horni við Úranus
í sjötta húsi í ársbyrjun. Slíkt
gefur ótvírætt í skyn að leið-
togi muni rísa upp meðal vor,
sem kemur á fót gömlum og
góðum heimilisiðnaði, og
kennir að brjgga 110%
proof úr kartöflum (miðað
við vökvamagn í þurrkuðum
aprikósum).
Annar heimilisiðnaður fer
og mjög í vöxt, sérstaklega
( næturvinnu, sem orsakar
vaxandi fólksfjölgun og um-
ferðarhnúta ofarlega á
Skeggjagötunni.
í ágústbyrjun stendur Júpí-
ter í beinum boga útsuður af
Neptúnus, sem gæti orsakað
skort á skiptimynt um tíma
á Suð-Austurlandi, og dreg-
ur úr smábátasmíði í Horna-
firðinum.
Stóriðnaður mun rísa upp
íslenzkir bítlar fá verðlaun í fegurðarsamkeppni, sem Einar
stendur fyrir í Las Vogas, Cal., og fá atvinnu sem sýning-
argripir á frægri hárgreiðslustofu í Beirut.
26
VIKAN 53. tbl.
á Eyrabakka, og kúlutyggjó
unnið úr blöðruþangi. Út-
flutningur í stórum stíl hefst
í september og Blöðrukúló
nær skjótri útbreiðslu um all-
an hinn menntaða heim inn-
an áramóta.
íslenzkar prjónaklukkur
verða eftirsóttar ( Brooklyn,
N.Y., og aðalútsala Kristjáns
í Últíma, í New York, hefur
ekki við að láta prjóna klukk-
ur.
Útvegsmál.
Úranus, Neptúnus, Júpíter
og Marz eru allir í sama húsi
f.h. 23. marz, sem bendir til
þess, að sex bæjarútgerðir
fari á hvínandi hausinn og
að dýrmætt vinnuafl losni
þaðan í stóriðnaðinn.
Mokafli verður á s(ld allt
árið og undirballans eftir því.
Sjö síldarverksmiðjur og
níu frystihús brenna til
grunna eins og venjulega.
Af ókunnum ástæðum — eins
og venjulega.
Einasta útgerðin, sem borg-
ar sig fjárhagslega á kom-
andi ári, er hrognkelsaveiði
í Skerjafirði, enda verður
rauðmaginn á 37 krónur
stykkið, seldur í fjöru.
Fjármál.
Mæðiveiki kemur upp í
Dölunum ó venjulegum tíma,
og dalir hækka ( verði á inn-
anlandsmarkaði.
Fjárgirðingar verða reistar
þvers og kruss, en allt kem-
ur fyrir ekki og verðbólgan
eykst jafnt og þétt.
Merkúr verður ( fyrsta husi
og ávísanir og gúmmitékkar
hækka í verði vegna gjald-
eyrisskorts, og lafhægt að
nota þá til greiðslu á göml-
um skuldum.
Félagslíf meðal fjármála-
manna verður í miklum
blóma, og líkur til að gjald-
kerar og forstjórar stofni með
sér biðklúbb til afþreyingar
meðan þeir bíða eftir plássi í
tugthúsinu, eða einhverju
þeirra nýju ríkisgistihúsa,
sem rætt verður um að reisa
í framtíðinni.
Mjög mikið mun draga úr
skattsvikum síðari hluta árs,
sem er þó ekki af vöntun á
viljaskorti, heldur vegna þess,
að ekki verður búið að
prenta skattskýrslurnar vegna
prentaraverkfallsins. (Prent-
araverkfallið verður prentað
með rauðu á almanak Þjóð-
vinafélagsins).
Húsnæðismál.
Sólmyrkvi verður 30. ma(
og nýbyggingar íbúðarhúsa
aukast gífurlega á árinu — og
er þó nóg fyrir — vegna lof-
orða stjórnarinnar um aukin lán
til bygginga, sem þó munu ekki
koma til framkvæmda á næstu
10 árum eða svo.
Húsaleiga lækkar að sama
skapi, og fermeterinn í leigu-
húsnæði fellur í 100 krónur á
mánuði, ef þrjú ár eru greidd
fyrirfram áður en bygging hefst.
í marz mun bæjarfélagið hefj-
ast handa um að láta reisa nýja
íbúðarbragga í stað þeirra, sem
nú hafa staðið í rúm 20 ár.
Verða gamlar herbraggabirgðir
keyptar inn frá Bretlandi og
glæsileg ný braggahverfi rísa
í Camp Knox, Selby Camp, Laug-
arnescamp og á flugvellinum.
Lárusi Sigurbjörnssyni verður
gefinn einn elzti og sögufræg-
asti bragginn, sem hann flytur
að Árbæ og fyllir af gömlum
minjum frá ástandsárunum.
Listir.
Mikið fjör mun skapast í inn-
flutningi listamanna til (slands,
þegar Venus er í fjórða húsi,
— beint fyrir ofan Þjóðleikhúsið.
Scalaóperan mun koma hing-
að snemma á árinu vegna mis-
skilnings, og Gísli ( Ási stofnar
sérstaka deild á elliheimilinu
fyrir misskildar primadonnur,
sem koma hingað á vegum Guð-
laugs.
Gjaldeyrisnefnd mun loks
fallast á að yfirfæra fimmtán
milljónir fyrir þrjá hljómleika
Bítlanna ensku, gegn þv( að fá
frímiða hjá Einari, enda yfir-
færist ekkert af beinum tekjum
hans af hljómleikunum, í það
minnsta alls ekki meira en þrjár
milljónir.
Ragnar í Smára býður hingað
hinum heimsfærga langspilsleik-
ara Szchlazvzchzko Lllangspils-
zchsky, sem var 12 ára gamall,
þegar hann snerti hljóðfæri (
fyrsta sinn, en kann nú á lang-
spil.
Alfreð Flóki og Jón Kári gefa
út myndskreytta Ijóðabók í til-
efni af heimkomu þriggja hand-
rita frá Brimarhólmi, en langa-
langafi Jóns Kára var þar f
þrælkun og steypti kerti f 69
ár, sem ennþá eru til hjá Ziem-
sen.
Nýr leikritahöfundur kemur
fram á sjónarsviðið seint f febrú-
ar og semur leikrit, sem Guð-
laugur vill ekki sýna. ( marz
verður það frumsýnt f Iðnó og
gengur næstu fjögur árin fyrir
fullu húsi.
Ljóðmæli Gvendar Dúllara
koma út í skrautbandi hjá Dúll-
araklúbbnum og myndastytta af
honum f frakka með útrétta
hönd verður reist í Tjarnarhólm-
anum.
Ævisaga og minningar Jóns
Jónssonar, bílasala, f þremur
bindum, kemst út fyrir prentara-
verkfallið og selst upp á skömm-
um tfma.
Listamannastyrkur verður auk-
inn um 3% og 78 nýjum lista-
mönnum bætt á listann til
skrauts, en sjö mestu listamenn
landsins fá fasta atvinnu til ævi-
loka í úthlutunarnefndinni, gegn
því að lofa að skapa ekki fleiri
listaverk. Aðrir sjö verða jafn-
framt færðir upp í hæsta skala
og bannað að bera bitjárn.
Útvarp og sjónvarp.
Sjónvarpsstjóri verður ráðinn
á árinu og útvarp og sjónvarp
kemst undir yfirstjórn sama
stjórnmálaflokks. Nokkrar erjur
verða vegna veitingar embættis-
ins, því færri fá en vilja, en
menntamálaráðherra tekur af
skarið og velur bezta manninn,
eins og vant er, án tillits til
stjórnmálaskoðana.
Lítil tilraunasjónvarpsstöð
verður keypt fyrir 48 milljónir
og notuð til að æfa starfsfólk
áður en alvaran hefst. Sending-
ar frá henni sjást greinilega f
tækjum, sem staðsett eru á
svæðinu milli Kolasunds, Traðar-
kotssunds, Skólasunds og Templ-
arasunds.
Sendingar hefjast seint í
október með því að sýnt verður
þegar Gylfi kemur til landsins
f stutta heimsókn til að vígja
stöðina. Hann heldur 10 mínútna
setningarræðu og fer síðan aft-
ur, þvf flugvélin bíður.
Sjónvarpsstjóri kynnir sig og
nokkrar fastráðnar sjónvarps-
stjörnur, Olaf Gunnarsson frá
Vík í Lóni, Sigurð Jónsson frá
Brún, Guðrúnu frá Lundi og
Benedikt frá Hofteigi.
Tízka.
Með haustinu sést varla nokk-
ur kvenmaður í kjól, nema á úti-
skemmtunum og við jarðarfar-
ir, þvf tfzkan krefst þess að
þær séu í buxum. Axlabanda-
framleiðendur græða stórfé á
nýrri tegund axlabanda, sem
nefnist „súper-stretschx" og ætl-
uð er fyrir kvenfólk.
Kevnskór hækka meir og
meir, og í nóvember verða klof-
stfgvél f fyrirrúmi, en karlmenn
ganga á inniskóm. Flestar kon-
ur munu láta snoða sig, en hafa
hárkollu á kvöldin. Karlmenn
láta hár sitt vaxa eins og hægt
er og í desember verður hár-
prúðasti fslenzki karlmaðurinn
kosinn f Súlnasalnum, með
fléttur að hnésbótum.
Framhald á bls. 45.
Sendingar hefjast í októ-
ber með þvf að sýnt verð-
ur þegar Gylfi kemur til
landsins í stutta heimsókn
til að vigja stöðina.
Langa-langafi Jóns Kára
var í þrælkun á Brimar-
hólmi og steypti þar kerti
í 69 ár.
Fjárgirðingar verða reist-
ar þvers og kruss, en allt
kemur fyrir ekki, og verð-
bólgan eykst jafnt og þétt.
íslenzkar prjónaklukkur
verða eftirsóttar í Brook-
lyn, N.Y., og aðalútsala
Kristjáns f Últíma hefur
ekki við að láta prjóna
klukkur.
VIKAN 53. tbl. — 27