Vikan - 30.12.1964, Side 32
Algjöriega sjólf-
virk þvottavél
með suðu.
Tekur 5 kíló af
þurrum þvotti.
Forþvottur.
4 þvotta stilling-
ar.
5 skol.
Þeytivinda.
Ódýrasta sjálf-
virka þvottavél-
in.
Snorrabraut 44 — Sími 16243.
II
*
’btfpfoap
Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags.
©Hrútsmerkið (21. marz — 20. aprfl):
Þú munt skemmta þér óvenjumikið í vikunni. Laug-
ardagurinn er dálítið varasamur fyrir unga fólkið.
Þú verður fyrir vonbrigðum varðandi mál, sem
þú bíður lausnar á. Þú færð einhverja skemmti-
lega hugmynd í sambandi við ferðalag.
Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí):
Þér líkar ekki við framkomu eins fjölskyldumeð-
limsins gagnvart þér. Bezt væri samt, að þú létir
sem ekkert væri enn um sinn. Þú hjálpar kunn-
ingja þínum við erfitt hlutverk og munt eiga við
það mestan part vikunnar.
Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní):
Einhver kemur þér þægilega á óvart, að líkindum
eftir helgina. Það getur orðið til þess, að þú breyt-
ir áætlunum þínum og andstöðu í vissu máli. Á
þriðjudag verður þér á glappaskot, sem getur þó
leitt nokkuð gott af sér.
Krabbamerkið (22. júní — 23. júli):
Það er eins og þú hafir verið að leita að einhverju
undanfarið og eytt miklum tíma í það. Nú verður
einhver lausn á þessu fyrir þig og þú getur slapp-
að af. Flestir þeir, sem fæddir eru milli 3. og 19.
júlí eiga einhver samskipti við Amor.
Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst):
©Miðvikudagurinn er sá sem mestu skiptir fyrir þig
í vikunni — þann dag gerist eitthvað, sem lætur
ekki mikið yfir sér, en er byrjunin á öðru og
meira. Varastu af megni þá eigingirni og sjálfs-
elsku, sem þú hefur tamið þér undanfarið.
Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september):
©Vikan verður mjög þægileg og fyrir marga, einnig
mjög skemmtileg, þótt ekki dragi til neinna tíð-
inda. Þó mun ýmislegt óvenjulegt eiga sér stað,
einkum í sambandi við flutninga. Ókunnugur mað-
ur vekur áhuga þinn.
Vogarmerkið (24. september — 23. októbcr):
Líklega verður þessi vika að einhverju leyti öðru-
vísi en þú hefðir helzt kosið, þótt hún verði ekki
leiðinleg. Á vinnustað færðu nýstárleg verkefni
að glíma við, sem valda þér nokkrum byrjunar-
örðugleikum. Heillatala er 7.
Drekamerkið (24. október — 22. nóvember):
Eitthvað gerist næstu daga, sem verður þér mjög
minnisstætt. Náinn ættingi þinn bregzt þér í vissu
máli, sem þú ættir að endurskoða afstöðu þína
til. Verk, sem þú varst að byrja á, i síðustu viku,
fær á sig annað snið.
Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. desember):
©Þú skemmtir þér mjög mikið með kunningjum þín-
um og að líkindum ert þú potturinn og pann-
an í því, sem þið hafizt að. Kona, sem þú þekk-
ir ekki nema lítillega, kemur þér óvænt til hjálp-
ar. Varizt rauðhærðar konur.
©Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar):
Illar tungur koma því til leiðar, að einn góður
vinur þinn snýr i þig baki. Þú ert sá eini, sem
getur leiðrétt misskilninginn og þrátt fyrir stolt
þitt ættirðu að brjóta odd af oflætinu og ganga
beint til verks.
Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar);
Vikan hefur upp á heilmikið að bjóða fyrir kven-
kynið. Um helgina eru líkur á stóru samkvæmi,
mjög skemmtilegu. í vikunni takast kynni þín
við dularfulla persónu, sem þú færð mikinn áhuga
á að kynnast nánar.
©Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz):
Þú eignast nýtt áhugamál, sem þú eyðir öllum
stundum við. Kunningi þinn færir þér fréttir, sem
breyta áætlunum þínum varðandi einhverja ferð.
Þú færð heimsókn persónu, sem þú ættir að sýna
fyllstu varúð. Heillatala er 2.
32 — VIKAN 53. tbl.