Vikan


Vikan - 30.12.1964, Page 32

Vikan - 30.12.1964, Page 32
Algjöriega sjólf- virk þvottavél með suðu. Tekur 5 kíló af þurrum þvotti. Forþvottur. 4 þvotta stilling- ar. 5 skol. Þeytivinda. Ódýrasta sjálf- virka þvottavél- in. Snorrabraut 44 — Sími 16243. II * ’btfpfoap Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags. ©Hrútsmerkið (21. marz — 20. aprfl): Þú munt skemmta þér óvenjumikið í vikunni. Laug- ardagurinn er dálítið varasamur fyrir unga fólkið. Þú verður fyrir vonbrigðum varðandi mál, sem þú bíður lausnar á. Þú færð einhverja skemmti- lega hugmynd í sambandi við ferðalag. Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí): Þér líkar ekki við framkomu eins fjölskyldumeð- limsins gagnvart þér. Bezt væri samt, að þú létir sem ekkert væri enn um sinn. Þú hjálpar kunn- ingja þínum við erfitt hlutverk og munt eiga við það mestan part vikunnar. Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní): Einhver kemur þér þægilega á óvart, að líkindum eftir helgina. Það getur orðið til þess, að þú breyt- ir áætlunum þínum og andstöðu í vissu máli. Á þriðjudag verður þér á glappaskot, sem getur þó leitt nokkuð gott af sér. Krabbamerkið (22. júní — 23. júli): Það er eins og þú hafir verið að leita að einhverju undanfarið og eytt miklum tíma í það. Nú verður einhver lausn á þessu fyrir þig og þú getur slapp- að af. Flestir þeir, sem fæddir eru milli 3. og 19. júlí eiga einhver samskipti við Amor. Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst): ©Miðvikudagurinn er sá sem mestu skiptir fyrir þig í vikunni — þann dag gerist eitthvað, sem lætur ekki mikið yfir sér, en er byrjunin á öðru og meira. Varastu af megni þá eigingirni og sjálfs- elsku, sem þú hefur tamið þér undanfarið. Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september): ©Vikan verður mjög þægileg og fyrir marga, einnig mjög skemmtileg, þótt ekki dragi til neinna tíð- inda. Þó mun ýmislegt óvenjulegt eiga sér stað, einkum í sambandi við flutninga. Ókunnugur mað- ur vekur áhuga þinn. Vogarmerkið (24. september — 23. októbcr): Líklega verður þessi vika að einhverju leyti öðru- vísi en þú hefðir helzt kosið, þótt hún verði ekki leiðinleg. Á vinnustað færðu nýstárleg verkefni að glíma við, sem valda þér nokkrum byrjunar- örðugleikum. Heillatala er 7. Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Eitthvað gerist næstu daga, sem verður þér mjög minnisstætt. Náinn ættingi þinn bregzt þér í vissu máli, sem þú ættir að endurskoða afstöðu þína til. Verk, sem þú varst að byrja á, i síðustu viku, fær á sig annað snið. Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. desember): ©Þú skemmtir þér mjög mikið með kunningjum þín- um og að líkindum ert þú potturinn og pann- an í því, sem þið hafizt að. Kona, sem þú þekk- ir ekki nema lítillega, kemur þér óvænt til hjálp- ar. Varizt rauðhærðar konur. ©Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Illar tungur koma því til leiðar, að einn góður vinur þinn snýr i þig baki. Þú ert sá eini, sem getur leiðrétt misskilninginn og þrátt fyrir stolt þitt ættirðu að brjóta odd af oflætinu og ganga beint til verks. Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar); Vikan hefur upp á heilmikið að bjóða fyrir kven- kynið. Um helgina eru líkur á stóru samkvæmi, mjög skemmtilegu. í vikunni takast kynni þín við dularfulla persónu, sem þú færð mikinn áhuga á að kynnast nánar. ©Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Þú eignast nýtt áhugamál, sem þú eyðir öllum stundum við. Kunningi þinn færir þér fréttir, sem breyta áætlunum þínum varðandi einhverja ferð. Þú færð heimsókn persónu, sem þú ættir að sýna fyllstu varúð. Heillatala er 2. 32 — VIKAN 53. tbl.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.