Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 30.12.1964, Qupperneq 39

Vikan - 30.12.1964, Qupperneq 39
borðið og glápti slióum augum á segldúkstöskuna. Það er alls ekki ætlun okkar að myrða þig, bætti hann við hvísllágt. Við þurfum á leiðsögn þinni að halda yfir fenin. Jube kinkaði kolli. — Það hafði ég reiknað út sjálfur, sagði hann. — Mér er ekki alls varnað. Folly klappaði honum á öxlina. — Það er skynsamlegt hjá þér, vin- ur, sagði hann. Að svo mæltu fór hann fram fyr- ir og skellti hurð að stöfum. Jube sat einn eftir inni í rökkrinu. Hann heyrði að Folly ýtti stól og skorð- aði hurðarhandfangið með baki hans, en Jink Williams setti hlera fyrir gluggaborurnar að utan. Nei, hugsaði Jube gamli með sér. Þeir drepa mig ekki enn. Ekki fyrr en þeir hafa haft af mér öll þau not, sem þeir þurfa með. Hann teygði úr sér á bálkinum, breiddi ofan á sig ábreiðuna, sem konan hans sáluga hafði saumað, horfði á blakka loftbitana yfir höfði sér. I mörg undanfarin ár hafði sú hugsun ásótt hann, að hann hefði ekkert lengur til að lifa fyrir; það gerði svosem engan mismun hvort hann tórði eða ekki. En nú, þegar hann þóttist vita dauðann á næsta leiti, sá hann hvað honum hafði skjátlazt þra hrapalega. Það var svo sem ekki neitt við því að segia þó að maður geispaði gol- unni, þegar komið var á þennan aldur. En að lifa . . . það var að róa uppeftir ánum, þar sem skugg- arnir og sólargeislarnir voru í eilíf- um eltingarleik og þar sem ibis- fuglinn, skógaröndin og rauðhegr- inn breiddu úr fjaðraskrautinu allt í kringum mann. Það var að teyga að sér angan og litadýrð gulljasmín- unnar og dimmrauðra vínþrúgna- klasa og sjá Ijósrauð blómin springa út á vorin. Það var að koma heim, uppgefinn eftir langan og erfiðan dag og tylla sér á gamla stólinn, kveikja í reykjarpípunni og sötra kaffið úr bollanum sínum. Endur- lifa gamlar og hugljúfar minning- ar . . . Kannski átti hann um eina leið að velja út úr þessari sjálfheldu, sem þessir borgaroflátar tóku ekki með í reikninginn. Kannski, en hann vildi helzt losna við að reyna að fara hana, hún var nefnilega ekki neinn barnaleikur. Eins og hann reiknaði dæmið, þá mundi það verða sýnu auðveldara að koma þessum náungum fyrir ein- hversstaðar á leiðinni yfir fenin. Það átti ekki að verða svo örðugt; þessir oflátar úr borginni voru í svipaðri aðstöðu þarna úti í frum- skóginum og snjóbolti í víti. Hvað var það nú aftur, sem Folly kallaði skógarfenin. Frumaldar for- æði? Það var í rauninni ekki svo vitlaust, hugsaði Jube gamli, jafn- vel ekki þó að öllu sterkara væri að kveðið. Okfenokee átti ekki frek- ara skylt við nokkuð það, sem sið- menning kallaðist, en sjálfur fjand- inn við vögguvísu. Þau lumuðu svo sannarlega á ýmsu, skógarfenin, sem komið gat ókunnugum óþægi- Hrein frísk heilbrigö húð Þa8 skiptir ekki máli, hvernig húð þér hafiðí ÞaS er engin húð eins. En Nivea hæfir sérhverri húð. Því Nivea-creme eða hin nýja Nivea-milk gefur húðinni allt sem hún þarfnast: Fitu, raka og hið húðskylda Euzerit. Og þess vegna getur húð yðar notið þeirra efna úr Nivea sem hún þarfnast helzt. Hún getur siálf ákveðið það magn, sem hún þarfnast af fitu og raka. Þetta er allur ieyndardómurinn við ferska, heilbrigða og Nivea-snyrta húð. HþVEA HIVEA VIKAN 53. tbl. 39

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.