Vikan


Vikan - 30.12.1964, Síða 41

Vikan - 30.12.1964, Síða 41
JOMI fegurðar- og nuddtækið góða. JOMI hárþurrkan með 24 hitastillingum 700 watt. JOMI hárþurrkan hefir gólfstativ, sem draga má út upp í 130 cm hæð. JOMI hjálmurinn er mjög rúmgóður, jafnvel fyrir stærstu krullupinna. Hjálminn má leggja saman, þannig að fyrir- ferð er engin þegar hann er ekki ( notkun. Þurrkunni fylgir Shampoo og leiðarvísir um hár- þvott og snyrtingu. MEST SELDA HÁRÞURRKAN Á NORÐURLÖNDUM! BORGDRFELL 10 ÁRA ÁBYRGÐ. Laugavegi 18 — Sími 11372. JOMI HITANUDDPÚÐINN hefur þrjár stillingar: 1. NUDD ÁN HITA. 2. HITA 3. NUDD MEÐ HITA. JOMI nuddar meS titringi þannig aS áhrifa gætir inn í vöðva og vefi, einnig gegnum fötin. Ef þér notiS JOMI reglu- lega getið þér haldiS ySur grönnum. LátiS JOMI nudda á meSan þér hvílist. krókódílarnir steinsofandi í sefinu. En ef þú neyðir mig til að hleypa af skoti, hrökkva þeir upp og skríða út í, og þá geturðu keppt í sundi við þá. Eg gef þér með öðrum orð- um tækifæri, félagi sæll. Mun betra tækifæri, en aulabárðinum honum Sam. Ég leyfi þér að fara frjáls ferða þinna. Hafir þú augun hjá þér og heppnina með þér, er alls ekki útilokað, að þú hafir þetta af. Gott og vel — komdu þér fyrir borð! Ég er orðinn leiður á þessu hangsi. Williams nam staðar út við borð- stokkinn. Folly dró upp gikkinn á marg- hleypunni. — Nei! æpti Williams. Nei, bíddu andartak! Hann vætti varirnar og svipaðist um. Engin hreyfing var sjáanleg, hvorki í sefinu né kjarrinu. Vatnið var slétt eins og spegill. Hann greip báðum höndum um borðstokkinn og lét sig renna fyrir borð, lagðist til sunds og stefndi að bakkanum hinum megin. — Hann stefnir rakleitt á grynn- ingarnar, þar sem krókódílarnir haf- ast við, varð Jube gamla að orði. Folly leit um öxl ti( öldungsins. — Jink hefur aldrei verið neitt gáfnaljós, sagði hann og brösti ástúðlega. Að svo mæltu lyfti hann marg- hleypunni í mið á manninn á sund- inu. — Jink, hrópaði hann, þetta er enginn ferð á þér, maður! Þú þarft eitthvað til að herða á þér! Hann hleypti af: Kúlan skall ( vatnið rétt fyrir aftan Jink á sund- inu. Williams leit allt í kringum sig, frávita af ótta, þegar hann heyrði skothvellinn, sem bergmálaði í skóg- inum og varð til þess að loftið uppi yfir varð myrkt af fuglasveimi. Folly skaut enn. Jube gamla varð litið yfir að hinum bakkanum. Það kom hreyf- ing á limið í kaffirunnunum, heldur en ekki, og fylking krókódíla þusti niður að vatninu, rétt eins og skot- ið hefði ræst þá til hlaupakeppni. Gusurnar stóðu af þeim ( allar áttir, þegar þeir skelltu sér í vatnið, sem óðara vall og kraumaði eins og brimsjór ( kringum veinandi mann- inn á sundinu, unz hann hvarf í kaf. Þá labbaði Jube gamli sig inn í svefnklefann, skellti hurð að stöf- um, dró að henni stól og skoraði handfangið með bakinu. Það hlaut að duga eins hvorum megin sem var. í sömu andrá kvað við hár brest- ur; það hrökk stórt stykki úr hurð- arfyllingunni og skammbyssuhlaup- ið kom í gegn. Jube vék sér til hliðar. Folly kallaði til hans utan úr eld- húsinu. — Þú ert heimskur, gamli minn. Ég hefði þyrmt þér, ef þú hefðir veitt mér fylgd yfir fenin. Það hafði ég alltaf í hyggju, skil- urðu. En þú hafðir annað á bak við eyrað — að fylgja mér út þang- að og koma mér þar fyrir, eða er það ekki rétt til getið? Nú skal ég hins vegar sýna þér, að ég kemst mætavel af án þín, karlfauskurl Ég er maður, sem getur hjálpað sér sjálfur, jafnvel í þessu frumaldar foraði . . . En ekki skaut hann og Jube lét ekki í sér heyra. Hann lagði við hlustirnar og heyrði að Folly hafði með höndum miklar framkvæmdir frammi í eldhúsinu. Jube fylgdist með fótatakinu, þegar hann lét rgeipar sópa um niðursoðnu mat- vælin í dósunum, ábreiðurnar og annað, sem hann hugði að sér mundi að gagni verða í förinni yfir skógarfenin. Þessi undirbúning- ur mundi taka hann nokkra stund, en að honum loknum vissi Jube gamli við hverju hann mátti búast. Folly var ekki í neinum vafa um, að hann gæti gengið að honum visum. Sem sagt . . . Jube sá fram á að hann komst ekki hjá að hefjast handa. Hann var tilneyddur að grípa til þess þrautaráðs, sem hann hafði verið að hugleiða um nótt- ina, áður en hann sofnaði. Það yrði ekki neinn barnaleikur . . . en hann var tilneyddur. Hann dró sefábreiðuna á gólfinu til hliðar og lítill hleri kom í Ijós. Svo lyfti hann hleranum, hægt og gætilega og horfði ofan ( myrkt, slýjugt brunnvatnið, hálfa manns- hæð undir botnbitunum. Það fór kaldur hrollur um magr- an Kkama öldungsins. Honum hraus hugur við að láta sig síga ofan í ískalt vatnið, geðslegt eins og það nú var, og halda sér síðan á floti milli botnbitanna, sér í lagi þar sem krókódílarnir voru komnir á kreik allt um kring. Kannski yrðu þeir rólegir á meðan þeir voru að sporðrenna þessum Williams, hugs- aði hann, þegar hann fann kalt vatnið umlykja sig upp að öxlum. Síðan handstyrkti hann sig á milli botnbitanna. Með því móti gat hann haldið höfðinu upp úr. Allt í einu fann hann reykjarþef. Þarna kemur það, hugsaði Jube gamli með sér. Þannig hugsar hann sér að losna við mig. Brenna upp húsbátinn með mig innanborðs. Og engan mundi gruna neitt. . . Jube heyrði óminn af rödd Foilys uppi ( eldhúsinu. — Fyrirgefðu, gamli minn, að ég skuli grípa til þessa heldur ófrumlega úrræðis. Þú hlýtur að sjá það sjálfur, að ég er tilneyddur. Dauðir menn kjafta ekki frá ,skilurðu. Og Folly rak upp hlátur. Við þennan hlátur var sem eitt- hvað vaknaði allt í einu af dvala innst í hugskoti Jube gamla, þar sem hann hélt sér á floti á milli botnbitanna. Það var eins og sjálfs- blekkingarhula félli af augum hans. Þessi hlátur var dæmigerð alls hins illa og viðbjóðslega, sem þróast og þrífst í myrku foraðinu; úrgangs- sora þess heims, sem enn er á frum- aldarstigi í allri sinni villimennsku. Þeir menn fyrirfundust, sem voru réttdræpir, hvar sem til þeirra náð- ist. VIKAN 53. tbl. — ^

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.