Vikan - 30.12.1964, Qupperneq 43
Jube gamli sleppti takinu á bit-
unum. Hann dró andann djúpt að
sér og lét sig sökkva í kaf. Svo
sparn hann sér áfram með fótun-
um um leið og hann handstyrkti
sig eftir flötum botni húsbátsins.
Hann var að köfnun kominn, en
þá reiddist hann og klóraði sig
áfram og sparn, allt hvað af tók
og honum þótti sem hann sæi
gráðuga krókódílana á skriði í leðj-
unni undir, sæi þá glenna upp skolt-
ana.
Þá birti skyndilega upp yfir og
hendur hans gripu í tómt vatnið.
Hann sparn sér skáhallt úr kafi og
átti ekki nema faðmslengd að kæn-
unni sinni. Hann synti þangað, leit
sem snöggvast um öxl og sá kol-
svartan reykinn leggja upp af hús-
bátnum og logatungurnar teygja
sig út um dyr og glugga eldhúss-
kytrunnar. En hann hafði engan
tíma til að athuga það nánar, en
vatt sér upp í kænuna, leysti hana
úr tengslum við húsbátinn og kleif
svo yfir ! bát þeirra félaga, sem
bundinn var við kænuna.
Folly hafði handlangað poka með
niðursuðudósum ofan í bátinn,
nokkrar ábreiður — og segldúks-
tösku, sem þegar hafði kostað
að minnsta kosti þrjá menn lífið. Og
Jube gamli greip aðra árina tveim
höndum, stjakaði hraustlega frá
húsbátnum, seig síðan niður á þóft-
una og lagðist á árar. Það var um
lífið að tefla að komast sem lengst
á brott frá brennandi húsbátnum
þegar í stað. Folly brosti. Það var
þegar farið að loga svo glatt í
gamla skriflinu, að ekki var nein
hætta á að slokknaði fyrr en allt
var brunnið, sem brenna þurfti. Svo
óð hann gegnum reykjarsvæluna út
að borðstokknum. Stóð og starði í
vatnið, þar sem bátarnir höfðu leg-
ið og nokkur andartök var sem
hann tryði ekki sínum eigin aug-
um. En svo varð honum litið út yfir
pollinn og sá hverskyns var. Hann
hóf marghleypuna í mið á Jube
gamla, sem sat hokinn undir árum
og reri allt hvað af tók.
Jube laut enn lengra fram, þeg-
ar kúlurnar tóku að skella í vatnið
í kringum hann, en hann hætti ekki
að róa, herti heldur róðurinn, það
sem var. Svo hættu kúluskellirnir,
Jube gamli leit um öxl og sá hvar
Folly gerði tilraun til að komast að
landgöngubrúnni, en hrökk til baka
fyrir reykjarmekkinum og logunum.
Þá hörfaði hann enn út að borð-
stokknum, en að þessu sinni reyndi
hann ekki að beita marghleypunni,
enda var Jube gamli kominn úr
skotfæri.
— Snúðu við, gamli minn, hróp-
aði Folly hásum rómi. Snúðu við, þú
getur ekki skilið mig eftir hérna,
ósyndan! Sjáðu . . ég kasta marg-
hleypunni fyrri borð. Snúðu við . . .
Jube gmali lyfti sem snöggvast
árum og gerði hlé á róðrinum.
Reykjarmökkurinn myndaði nú
þykkt, svart tjald, ofið gullnum
logatungum á milli hans og hús-
bátsins, sem einu sinni hafði verið
heimili hans. Hann sat álútur á
matfur
dagsi
KLÆÐIST FÖTUM
FRÁ OKKUR
i
i
s.
þóftunni með árarnar uppi, leit í
kringum sig, eins og hann vænti
þess að sjá eitthvert teikn, sem hann
gæti ráðið af hvað gera skyldi.
Skógarrefur gægðist út á milli
trjástofnanna, starði í reykjarmökk-
inn, en tók síðan á rás aftur inn í
skóginn. Þrír krókódílar syntu allt
hvað af tók í áttina að brennandi
húsbátnum svo að vatnið freyddi
við skrokk þeirra og nokkrir stór-
vaxnir fulgar svifu uppi yfir.
Jube gamli lagðist á árar og
varp þungt öndinni.
Hann lagði út á síkið, og berg-
málið af hlátri Follys hljómaði enn
( eyrum hans; rann saman í eitt
við veinin, sem hann fjarlægðist
með hverju áratogi, rann saman
í eitt í eyrum Jube gamla, sem
illskuþrunginn, tryllingslegur hlátur.
★
Ferðin norður
Framhald af bls. 11.
línið er framleitt. Leirinn er ekki
langt frá Búðardal, og nú er viður-
kennt, að betra hráefni í postulín
fæst óvíða. Við fengum okkur kaffi
í bílahótelinu, sem er rétt utan við
Búðardal. Þar var talsvert að gera,
enda fara margir vestur, og sumir
norður, um Laxárdalsheiði til Hrúta-
fjarðar. Búðardalur er nú orðinn
samgöngumiðstöð, og hefur atvinna
þess vegna aukizt talsvert. Ferða-
mannastraumur liggur nú hér um,
og með batnandi vegum eykst hann
ár frá ári.
Þeir vissu hvað þeir gerðu, Dala-
menn, þegar þeir tóku vegalánið,
sem frægt er orðið.
Við notuðum tímann og fórum út
að Fellsenda og heilsuðum upp á
vistfólkið þar. Finnur Ólafsson, stór-
kaupmaður ( Reykjavík, gaf á sín-
um tíma eignir sína'r til þess að
reisa þarna myndarlegt dvalar-
heimili fyrir aldrað fólk, og hafa
VIKAN 53. tbl. —