Vikan - 30.12.1964, Side 51
um og börnum, fyrir framan hann. Þetta var eftirlitsferð. Þetta var
aðeins venjulegt formsatriði, tilkomið vegna atburða siðustu nætur á
markaðinum í Saint-Germain.
Sígaunarnir áttu sér einskis ills von og gengdu. Þeir voru kunnir
flestum háttum lögreglunnar, hvar sem var í heiminum.
— Komdu stúlka, hrópaði varðstjórinn, Angelique þaut til hans.
—■ Barn þessarar konu er meðal ykkar, hélt varðstjórinn áfram. —
Lát.ið hann hafa barnið aftur, eða við munum grípa til vopna.
1 sama bili kom Angelique auga á Cantor. Hann svaf upp við gróft
brjóst einnar sígaunakonunnar. Með tígrisdýrsöskri réðist Angelique
að henni og þreif af henni barnið, sem var að byrja að gráta. Sígauna-
konan æpti, en sígaunahöfðinginn skipaði henni að halda sér saman.
Ríðandi varðmenn með brugðin sverðin gerðu honum ljóst, að öll mót-
spyrna var þýðingarlaus.
Samt var hann hrokafullur í bragði og lét þess getið, að þau hefðu
borgað þrjátíu sous fyrir barnið. Angelique þeytti þeim til hans.
Hún lukti þrýstna, mjúka líkamann í höndum sér. Cantor lét sér vel
líka þessi atlot, þótt þau væru fremur harkaleg. Með þeirri einstöku
aðlögunarhæfni, sem hann hafði sýnt allt frá fæðingu, hafði hann látið
sér vel líka handtök sígaunakonunnar. Hreyfingar hestsins, sem Ange-
lique sat á, fyrir aftan einn varðmanninn, rugguðu honum í svefn með
þumalfingurinn uppi í sér. Honum virtist ekki vera kalt, þótt hann
væri allsnakinn að hætti sígaunabarna. Hún stakk honum undir blússu
sína og þrýsti honum upp að sér. Hélt honum með öðrum handlegg, en
með hinni hendi hafði hún tak á belti varðmannsins.
Klukkan í Chatelet var að slá tiu. Angelique stökk af baki og hljóp
í áttina til varðstjórans.
— Leyfið mér að fara með barnið mitt á öruggan stað, bað hún. —
Ég sver, að ég skal koma aftur næstu nótt.
Hann varð ægilegur á svipinn.
—■ Reyndu ekki að snúa á mig! Það gæti orðið dýrkeypt!
— Ég sver. Framhald í næsta blaði.
Öll réttindi áskilin. — Opera Mundi, París.
A enginn
¥ A-K-D-G-9-7-6-4-2
♦ 7
* K-D-5
A 10-8-6-2 A A-K-D-7-5-4-3
¥ 10-3 ¥ ekkert
♦ 5-3 V A ♦ 9-4
* G-10-9-8-7 S * 6-4-3-2
A G-9
¥ 8-5
♦ A-K-D-G-10-8 -6-2
*A
Allir á hættu, norður gefur.
Bandaríska bridgesambandið
hefur fengið rafmagnsheila til
þess að gefa spil í stórar tví-
menningskeppnir, þar sem þarf
að búa til sömu spil fyrir marga
tugi riðla. Það eru samt skiptar
Norður Austur
2 hjörtu 2 spaðar
4 grönd 5 spaðar
7 hjörtu pass
pass dobl
pass pass
Austur var ekki í neinum vand-
ræðum með útspilið og norður
varð 4000 niður, hreinn botn.
1 <t » • - »< • u.
Norður Austur
2 lauf 3 spaðar
6 hjörtu pass
pass dobl
pass pass
Vestur áleit að dobl austurs
væri svokallað Lightnerdobl þ.e.
doblið biður um óeðlilegt útspil,
og hann spilaði út laufagosa. Nú
skoðanir um það, hvort manns-
höndin gefur ekki betur, því ofan-
greint spil er frá einni slíkri
keppni. Mismunur á toppi og
botni í því var heimsmet, eða
6930 stig. Á einu borði gengu
sagnir þannig:
Suður Vestur
3 tíglar pass
6 lauf pass
7 grönd pass
redobl pass
Toppurinn í spilinu varð hins
vegar til á þennan hátt:
Suður Vestur
4 grönd pass
7 grönd pass
redobl. pass
kom rafmagnsheilinn i góðar
þarfir, þ.e. til þess að reikna hve
mikið væri fyrir spilið. Og 2930
var svarið og hreinn toppur ★
Nýtt útlit
Ný tækni
LÆKJARGÖTU, IJAFNA RFIRÐI.
SlMI 50022
VIKAN 53. tbl. —