Vikan - 22.09.1966, Blaðsíða 40
'ENGLISH ELECTRIC’
LIBERATOR
SJÁLFVIRKA
ÞVOTTAVÉLIN
heitt eða kalt vatn til á-
fyllingar.
stillanleg fyrir 8 mismun-
andi gerðir af þvotti.
hitar — þvær — 3-4 skol-
ar — vindur.
* Verð kr. 19.636,
SJÁLFVIRKI
ÞURRKARINN
sjálfvirk tímastilling allt
að 90 mín.
aðeins tveir stillihnappar
og þó algerlega sjálfvirk-
ur.
fáanlegur með eða án
útblástursslöngu.
* Verð kr. 12.950,—
AFKÖST: 3% KG. AF ÞURRUM ÞVOTTI 1 EINU.
INNBYGGÐUR HJÓLABÚNAÐUR.
* EINS ÁRS ÁBYRGÐ — VARAHLUTA- OG VIÐGERÐA-
ÞJÓNUSTA.
CM&Sl
Laugaveg! 178 Sfmi 38000
vestanverðri og er raunar áfram-
hald af Ungverjasléttu. Þarna
rennur Dóná á löngum kafla á
landamærum Tékkóslóvakíu og
Ungverjalands, áður en hún beyg-
ir inn í síðarnefnda landið. Þarna
drýpur smjör af hverju strái;
bóndakonur með litríkar svuntur
standa við kornskurð á ökrum,
sem þekja landið út að ystu
sjónarrönd; í bláum fjarska mó-
ar fyrir fjöllum Slóvakíu. Þetta
land hefur svip hraustlegrar feg-
urðar og frjóorku. Það var unað-
ur að horfa á það út um lestar-
gluggann, að svo miklu leyti sem
maður sá það fyrir svælu og reyk.
f Prag höfðu Tékkarnir nefni-
lega tengt framan við lestina
dráttarvagn, sem hlýtur að hafa
gengið fyrir kolum eða einhverj-
um álíka óþverra, ef dæma mátti
eftir þeim firnamekki af reyk
og sóti, sem hann spúði yfir og
inn í farþegavagnana, sem hann
dró með sér. Farþegar voru flest-
ir löðursveittir vegna hitans, og
sótflygsurnar klíndust við hör-
undið eins og mjöl við blauta
málningu. Svo komum við til
Sturovo.
Bærinn með því nafni er ó-
merkilegt skítapleis rétt við
landamærin, og þar hafa toll- og
landamæraverðir bækistöð. Þessi
hroði þyrptist inn í lestina
skömmu áður en hún kom til
bæjarins, bæði Tékkar og Ung-
verjar, margir af hvorri þjóð,
eins og þeir ættu von á vopn-
aðri mótstöðu. Síðan rápuðu þeir
á milli klefanna með merkileg-
heit og rýndu í vísur og passa.
Þetta var allt í sómanum þangað
til að mér kom; þegar Ungverj-
arnir sáu, að ég hafði ekki enn
orðið mér úti um vísum til ferð-
ar í gegnum þetta merkilega
land þeirra, var engu likara en
íkaros hefði þegar rekizt á jörð-
ina.
Nú hafði ég eftir heimildum,
sem ég hafði ekki séð ástæðu til
að telja annað en ábyggilegar,
að ef um það eitt væri að ræða
að fá að fara gegnum eitt
austantjaldslanda án viðstöðu, þá
fengi maður uppáskrifað leyfi til
þess á landamærunum. Þetta
hafði, sem fyrr er ritað, geng-
ið eftir hvað Austur-Þjóðverjum
viðkom, og raunar líka Tékkum,
þótt þeir hefðu að vísu röflað
dálítið. En nú átti ég eftir að
reyna, að Ungverjar eru af allt
annarri og torsóttari manntegund,
eins og kannski eðlilegt má
kalla.
Einn pótintátanna í þessum
ljótu mórauðu einkennisbúning-
um með rússneska sniðinu, sem
þessir aumingja menn eru látnir
ganga í, rýndi drykklanga stund
í vegabréf mitt og spurði mig
svo, hvort ég hefði leyfisbréf til
dvalar í Ungverjalandi. Ég svar-
aði því til, að ég hefði engan á-
huga á að dvelja stundinni lengur
í föðurlandi þeirra, en kæmist
víst ekki hjá að fara í gegnum
það á leið minni til Rúmeníu.
Gerði ég kröfu til að fá bréf
upp á það hér á landamærunum.
En Móri hristi hausinn og
glápti á mig eins og geðvondur
kálfur. — Þér verðið að fara út,
sagði hann, — taka lest til Brati-
slövu og fá þar leyfi hjá ung-
verska konsúlatinu.
Ég taldi víst að þetta fífl, eins
og flestir fulltrúar hins opinbera
í þessum löndum sjálfsagt eru,
og hugsaði mér fyrst að taka
ekki mark á honum; gerði ráð
fyrir að ég fengi mitt leyfisplagg
eftir álíka smáströggl og við
Tékkana um morguninn. En á
svip samferðafólks míns þóttist
ég ráða, að það teldi atburð þenn-
an til engra gamanmála. Því er
sjálfsagt ekki láandi, því undan-
farna áratugi hefur návist ein-
kennisbúinna manna í þessum
löndum venjulega þýtt morð,
pyndingar, gasklefa og Síberíu,
og við það situr kannski enn.
Pólska kunnkona mín spratt upp
og halaði inn imi klefadyrnar
annan stríðsmann, sem var lítið
eitt dökkmórauðari en hinn og
skildist mér að hann væri Tékki.
Ræddi hún við hann í ákafa og
leyndi sér ekki, að hún hét á
hann mér til liðsinnis. Mér skild-
ist að hann væri mér ekki óhlið-
hollur, enda fylgir sjálfsagt
nokkur kraftur orðum fólks, sem
stigið hefur með óbrotna bana-
kringlu niður í gálgum Þriðja
ríkisins. Þó svaraði hann fáu og
hélt áfram ferð sinni til næsta
klefa.
Sú pólska sneri sér að mér.
— Það er reynandi að þú talir
við hann sjálfur, sagði hún, —
það er ekki óhugsandi að hann
geti bjargað málinu.
Ég taldi rétt að athuga þetta
og fór fram á ganginn og í þá
átt, sem ég hafði séð Tékkann
hverfa í. En ég var skammt kom-
inn áleiðis þegar ungverski ná-
unginn, sem fyrst hafði talað
við mig, varnaði mér vegarins.
Ég ætlaði án frekari formála að
ryðjast framhjá þessu afstyrmi,
en hann gerðist þá hávaðasamur
og jafnskjótt komu einir tveir
aðrir af sama sauðahúsi til liðs
við hann. Ég var í þann veginn
að springa í loft upp af reiði og
viðbjóði á allri þessari viður-
styggð í mannsmynd, en stillti
mig þó furðanlega og tók að tína
fram eitthvað hröngl af þýzkum
orðum ef vera mætti að þau
kynnu að tendra einhvern ó-
verulegan neista af mannviti í
þesum búpeningssálum. En því
var auðvitað ekki að heilsa.
— Fara út, sagði sá, sem fyrst
hafði rætt við mig af Ungverj-
um. — Aftur til Bratislava, fá
vísúm hjá ungverska konsúlat
inu. Þetta var sennilega næstum
það eina, sem hann kunni í þýzku,
og hafði trúlega lært það utan-
að. Þetta var opinmynntur mað-
ur og skakktenntur og með augu,
sem minntu á illa gefin húsdýr,
40 VIKAN
I þegar þau eru í vondu skapi.
Mig sárlangaði til að drepa hann,
en það mátti ég auðvitað ekki
frekar en annað þarna.
Ég lét því svo lítið að ávarpa
skepnuna einu sinni enn og gaf
henni til kynna, að ég hefði ekk-
ert við hana að ræða, en hygð-
ist ná sambandi við Tékkann, sem
nú hyllti undir í fólksþvögunni
skammt frá á ganginum. En við
þetta umhverfðist fíflið alveg,
eins og heimskum mönnum er
tamt þegar gert er lítið úr á-
toríteti þeirra. Skipti það nú eng-
um togum, að ég var rifinn út úr
lestinni, og var rétt svo að
ég fékk að taka farangurinn með.
Samferðafólk mitt gerði enn
nokkrar heiðarlegar tilraunir til
að tala um fyrir þessu hermanna-
pakki; meira að segja kom fólk
úr öðrum klefum, sem ég hafði
aldrei augum litið, til að tala
mínu máli, enda eru Slóvakar
með afbrigðum hjartagott fólk og
velviljað, og átti ég eftir að
sanna það oftar. En eins og
mannkynssagan vitnar um, eru
Ungverjar allra manna ólíkleg-
astir til að láta sér segjast við
viturlegar fortölur, og út varð
ég að fara.
Þarna mátti ég þá standa á
skítugum brautarpalli, eftir sól-
arhringsþvæling gegnum tvö lög-
regluríki, þar sem hvinur í
hverju strái er andvarp myrtra
milljóna og þar sem flögð úr
jötunheimum lúta yfir sofandi
sakleysingja í járnbrautarvögn-
um .Svartur í framan af sóti og
bræði stóð ég hér undir sam-
hryggðarfullum tillitum sam-
ferðafólksins, sem lá úti í glugg-
um svo langt sem augað eygði
meðfram vagnaröðinni; átti sýni-
lega á engu góðu von mér til
handa. Þetta var heitasti dagur
sem komið hafði þetta sumar,
loftið mengað sólmóðu sem var
eins og gullsandi hefði verið stráð
í himininn. í fárra metra fjarlægð
frá mér á pallinum virtist eitt-
hvað sögulegt í þann veginn að
gerast. Þar höfðu einir sjö eða
átta mórar, bæði Tékkar og Ung-
verjar, hnappazt saman og virt-
ust ekki vera á eitt sáttir. Ég
þóttist vita, að ég væri orðinn
þeim deiluefni, því að öðruhvoru
heyrði ég orðinu íslandú bregða
fyrir innan um hraglandann, sem
út úr þeim streymdi. Ég geri
fastlega ráð fyrir, að þeir hafi
verið að bræða með sér pynd-
ingaraðferðirnar, sem skemmti-
legast væri að beita mig. Að
minnsta kosti var þeim þetta
mikið hitamál, því áður en varði
voru þeir farnir að steita hnef-
ana hver framan í annan og
arga.
Drottinn rétttrúaðra manna,
bað ég og hóf augu mín til þessa
sólgullna himins yfir sléttu Ung-
verja, vertu nú svo vænn að
svipta þessi untermenschen
þeirri lúsarögn af skynsemi, sem
þú kannt af bruðlunarsemi þinni
0
að hafa gefið þeim framyfir ap-
ana, svo að þeir bregði pístólun-
um, sem þeir bera við rasskinn-
arnar, og sprengi heilana hver út
úr öðrum. Þá skal ég ekki mögla
þótt svo ég verði að ganga til
Bratislövu.
En Alfaðir hefur sjálfsagt haft
í mörgu að snúast þetta kvöld,
því ekki gat hann unnt mér þess
lítilræðis að koma af stað styrj-
öld milli Tékkóslóvakíu og Ung-
verjalands. Rifrildið leystist upp,
Ungverjarnir hundskuðust inn í
lestina, Tékkarnir litu á eftir
þeim, svo á mig og ypptu öxlum.
Svo kom einn þeirra til mín,
gerði honnör og rétti mér þvæld-
an blaðsnepil, margklesstan rauð-
um stimplum, og þekkti ég að þar
var komið hið sama visúm, sem
ég hafði fengið í Decin og gilt
hafði til ferðar gegnum Tékkósló-
vakíu. Skildist mér, að ég fengi
það nú aftur til merkis um, að
dvalarleyfi mitt í landinu væri
framlengt. Þetta var breiðleitur
maður með góðleg augu grá; hann
benti á vagninn, sem Ungverj-
arnir voru að fara inn í, og hristi
höfuðið með svip, sem gaf til
kynna að hann hefði ekki meira
álit á því fólki en ég var nú bú-
inn áð fá. Hinsvegar kunni hann
varla orð í þýzku, svo að ég taldi
hæpið að leita hjá honum upp-
lýsinga um lestarferðir til Brati-
slövu.
Hinum megin við brautarpall-
inn var heilmikil langavitleysa
af skúrum og bíslögum, en önn-
ur byggð ekki sjáanleg. Slatti af
fólki var á vakki þar út og inn
um hinar og þessar dyr, einkan-
lega einar þeirra, og hugði ég
þar brautarhýsi staðarins. Þang-
að gekk ég, en lestin rann ýlfr-
andi af stað inn í Ungverjaland.
Bölvað veri það land og þjóð-
in sem það byggir þangað til hún
mannar sig upp í að gera næstu
gagnbyltingu. Amen. *
Hvernig yrSi dómurinn
Framhald af bls. 15.
sem hér um ræðir, hefði refsingin
líklega orðið tveggia óra fangelsi
að minnsta kosti, missir ökuréttinda
ævilangt, sektir og háar skaðabæt-
ur til aðstandenda þeirra, sem fór-
ust.
England: 3 ár.
Þar er tekið mjög hart á ölvuðum
ökumónnum, sem gera sig seka um
brot á umferðareglum, hvað þá ef
þeir valda banaslysum. Slíkir öku-
menn missa ökuréttindin, verða
dæmdir í háar sektir og allt að
þriggja ára fangelsi eða þrælkun-
arvinnu. í Englandi hefði Biebaut
sennilega verið dæmdur I þriggja
ára þrælkunarvinnu og ökuréttind-
in hefði hann misst ævilangt. Raun-
ar má samkvæmt enskum lögum
Ifta á afbrot hans sem manndráp,
og fyrir það má dæma menn f
BARNALJÖSMYNDASTOFAN
sem var í Borgartúni er nú að Grettisgötu 2. — Myndatökur daglega.
Pantanir í síma 15905.
BARNALJÖSMYNDASTOFAN
Grettisgötu 2.
LUX0R - LUXOR
Sjónvörp
Útvörp
útvarpsfónar
Luxor-verksmið'|urnar f Svíþjóð hafa yfir 40 ára reynslu ! radiotækni.
Húsgagnaverzlunin
Búslóð við Nóatún
VIKAN 41