Vikan


Vikan - 22.09.1966, Blaðsíða 50

Vikan - 22.09.1966, Blaðsíða 50
Gólfklæðning frá DLW er heimskunn gæðavara. GÓLFDÚKAR GÓLFFLÍSAR GÓLFTEPPI við allra hæfi. Munið merkið er trygging yðar fyrir beztu fáanlegri gólfklæðningu. Deutsche Linoleum Werke AG ett, sem er miklu hægari og byggist mikið á látbragðsleik. Hann er talinn mjög hentugur fyrir sjónvarp. — Mannstu eftir nokkrum skemmtilegum atvikum úr skól- anum, sem gaman væri að segja frá? — Það væri auðvitað hægt að tína ýmislegt til. Það er til dæm- is mjög gaman að minnast þess, að þegar fjögur beztu pör dans- skólans voru valin til að dansa í kvikmynd, sam gerð var eftir Leðurblöku Jóhanns Strauss, þá voru þrír fslendingar þar á með- al, við Jón Valgeir og stúlka að nafni Guðrún Brandsdóttir. — Er langt síðan þú ákvaðst að fara út á dansbrautina? — Það er langt síðan hún vakti áhuga hjá mér. Annars er ég líka klæðskeri að mennt og stundaði auk þess lengi hljóðfæra- leik, meðal annars í hljómsveit norska farþegaskipsins Oslo- fjord, sem sigldi milli Evrópu og Amer(ku. Meðan skipið stoppaði vestra notaði ég tækifærið til að fara í tíma í djassballettskólum þar til að kynna mér það, sem þar var að sjá. Ég sótti líka dans- skóla í Noregi og Svíþjóð. — Hverjar eru svo helztu framtíðaráætlanirnar? — Þær eru tengdar danskennsl- unni, vitaskuld. Sem stendur er ég á förum á danskeppni í Kaup- mannahöfn, en þar mæta dans- endur frá öllum Norðurlöndtun. — Að lokum: Hvernig dansa íslendingar? Betur eða verr en til dæmis Danir? — Þeir eru miklu rytmískari en Ðanir. dþ. Dey ríkur, dey glaður Framhald af bls. 5. atlögu enn, en ekki meira en eina. Aftur varð það hinn, sem réðist til atlögu, en Craig vék sér und- an glitrandi stólinu og sló í óttina að hólsi mannsins með handarjaðr- inum. Að þessu sinni var hann of- urlítið hittnari, svo hann hitti öxl hins svo fast, að hann greip and- ann á lofti, um leið og Craig sveifl- aði flöskunni, en hann var fljót- ur að bera af sér lagið og glerið skall á stálblaðinu, stúturinn féll úr hönd Craigs, um leið og mað- urinn réðist til einnar atlögunnar enn, í víðu, bogadregnu hliðar- stökki. Craig stökk að manninum og læsti handleggnum um handr- legginn, sem hélt á hnífnum, og að þessu sinni var það þyngd lík- ama hans, sem vann um leið og hann sneri sér í hring án þess að sleppa takinu. Maðurinn æpti, þeg- ar þrýstingurinn á handleggnum og snúningurinn jókst, svo við lá að beinið brysti; hann sleppti hnífn- um, síðan sparkaði Craig; hitti háls- inn og maðurinn lá máttvana. Craig þreif hnífinn og sneri sér við, svo hann stóð móti þriðja manninum. Fyrir aftan Craig flissaði Serafin. Hann hélt á byssunni, og hans gamla hönd skalf ekki. — Þessi meiðir þig ekki, sagði hann. Hann benti með byssunni á dökka veruna frammá. — Komdu hingað, sagði hann. Fyrst var engin hreyfing, síðan þegar byssan lyftist, kom veran inn í Ijósgeislan . . . Svört ullar- peysa, svartar síðbuxur, hættuleg- ur kattarþokki. Serafin tók upp þil- farsluktina og lyfti henni hátt. Möndlulaga augu, svo brún, að þau voru eins og svört; mikið hár, glampandi; stolt, fremur hátt nef og þrýstinn, ástríðufullur munnur. Peysan og síðbuxurnar voru mjög aðskornar og vöxturinn var stór- kostlegur. Hörund hennar var gull- inbrúnt, andlitið mýktarlegt, óum- breytanleg grímd, sem Ijóstraði ekki upp um neinar tilfinningar, þegar hún horfði inn í svart skammbyssu- hlaupið. — Hvað heitirðu? spurði Sera- fin. Ekkert svar. — Nafnið, sagði Craig á ara- bisku. — Tala þú. — Selina bin Hussein, sagði stúlkan. — Farðu inn í. káetuna, sagði Craig. — Náðu handa mér í tin- öskjuna, sem er á hillunni við dyrnar. Stúlkan hreyfði sig ekki. — Far þú, sagði Craig. Ég tala ekki þrisvar. Framhald í næsta blaði. Fiskréttur. 1 pk. fryst þorskflök, 1 púrra, 1 grænt piparhulstur, V2 dós tómatar. Skerið fiskflökin 1 ca. 2 cm. þykkar sneiðar, skerið púrruna og paprikuna í þunnar lengjur og látið renna af tómötunum. Sjóðið púrruna og piparhulstrið í smjöri (notið sama pottinn og þið berið réttinn fram í, ef svo ber undir) legg- ið fiskbitana ofan á, kryddið með salti og pipar cg kreistið úr hálfri sítrónu yfir. Setjið tómatana í pottinn og stráið svolitlu timian eða basiliku yfir. Lát- ið réttinn malla (varla sjóða) við mjög lítinn hita í 20—30 mín. eða þar til fiskurinn er hvítur í gegn. Soðnar kartöflur bornar með. Pizza-brauð. Þetta er hentugur forréttur. Skerið kringlóttar sneiðar með glasi úr fransk- brauðssneiðum, smyrjið með smjöri og dýfið ofan í smásaxaðan lauk. Leggið ansjósuflak í kross á hverja sneið og tómatsneið ofan á. Þekið með rifnum osti og bakið við mikinn hita í 5—7 mín. Hæna í sítrónusósu. Hæni eða stór kjúklingur er soðinn 1 vatni, þannig að vel renni vfir hann, svolítið af púrru. salti og piparkorn sett í vatnið. Sjóðið í u.þ.b. 3 klukkutíma látið kólna og síið soðið. Dragið skinnið af og skerið fuglinn í bita. Gerið sós- una með því að baka upp 3 matsk. af smjöri og aðrar af hveiti og jafnið með ca. 6 dl. af soðinu og látið malla í nokkrar mínútur. Þeytið eggjarauðu með Vz dl. af þykkum rjóma og hrærið saman við sósuna um leið og hún er borin fram má ekki sjóða eftir það). Setjið rifinn sítrónubork eftir smekk og saf- ann af 1 sítrónu í og kryddið með salti og pipar. Hitið kjúklingabitana upp í dálitlu soði, látið renna af þeim og leggið á fat og hellið nokkru af sósunni yfir. en berið afganginn með í sósuskál. Grænar, litlar baunir góðar með og laussoðin hrísgrjón. Kaffihlaup. Gerið sterkt kaffi og sætið það eftir smekk. Leysið 6 blöð af matarlími upp í hverjum hálfum lítra meðan það er volgt og bætið V2 stífþeyttri eggjahvítu í þennan skammt, þegar það er kalt, en ekki byrjað að stífna. Sett 1 ábætis- glös og kælt. Gott er að hafa möndlumakkarónur eða smákökur með hlaupinu. / Appelsínu-súrmjólk. Þeytið súrmjólkina vel og blandið álíka miklum appelsínusafa I og dálitlum rjóma. Sætið eftir smekk og bætið e.t.v. nokkrum dropum af sítrónusafa í. Ber- ið fram í ábætisglösum og skreytið með appelsínulaufum. Kjötfars í fati. Kaupið venjulegt gott kjötfars, blandið dálitlu af raspi í það, sem hefur ver- ið bleytt í mjólk. Smásaxið lauk og setjið í farsið, ásamt kapris, smásöxuðum rauðbeðum (soðnum) og ediksgúrku og þynnið með rauðbeðusoði og rjóma, en farsið á að vera heldur þynnra en notað er I bollur. Setjið í eldfast fat, ca. 3—4 cm. þykkt. Smjörbitar settir ofan á og steikt í 30 mín. við 225 gr. hita. Grænt salat borið með og nýjar kartöflur. Ávextir í gelé. Sé niðursoðnum ávöxtum blandað í gelé, verður það heidur hátíðlegri mat- ur en ef þeir eru bornir fram beint úr dósinni. Gerið gelé úr pakka eftir leið- beiningunum utan á og þegar það er aðeins farið að stífna, blandið þið ávöxt- unum í, eftir að hafa látið renna vel af þeim löginn. Þeyttur rjómi borinn með. 50 VIKAN

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.