Vikan


Vikan - 22.09.1966, Blaðsíða 8

Vikan - 22.09.1966, Blaðsíða 8
DMPERIAL 23" NISSA KR. 16.680 RADIOVER S.F. 12" CHICO Skólavörðustíg 8. — Sími 18525. KR. 13.900 ÍSLENDINGAR RYTMÍSKARI EN DANIR RÆTT VIÐ SIGVALDA ÞORGILSSON DANSKENNARA Sigvaldi Þorgilsson heitir maður, rúmlega þrítugur Reykvíkingur, sem nýverið hefur lokið tveggja ára námi við fræg- asta skóla Dana fyrir danskenn- ara, Institut Carlsen í Kaup- mannahöfn. Vikan hitti Sigvalda fyrir skömmu að máli og spurði hann nokkurra spurninga varð- andi nám hans við skólann og fyrirætlanir í framtíðinni. — Mér er kunnugt um tvo aðra íslenzka danskennara, sem lokið hafa námi við þennan skóla, þá Hermann Ragnars og Jón Valgeir, sagði Sigvaldi. — Þarna eru ekki einungis kenndir sam- kvæmisdansar, heldur engu síð- ur ballett, stepp o. fl. Ég lagði sérstaka áherzlu á að læra djass- ballett og keppnisdansa, en þeir eru iðkaðir af fólki, sem þegar er orðið þjálfað í dansi. Þar er mest lagt upp úr stíl. — Hvaða dansar eru einkum iðkaðir sem keppnisdansar? — Quick step, vals, vínarvals, tangó, slow foxtrot, latínamer- ískir dansar o. fl. — Er mikið um danskeppnir erlendis? — Já, þær eru mjög víða háð- ar, til dæmis allan veturinn í Kaupmannahöfn. Eitt er það líka enn, sem ég lagði sérstak- Tvö danspör frá Institut Carlsen sýna Charleston. Herrann til vinstri á báðum myndunum er Sigvaldi. 8 VIKAN

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.