Vikan


Vikan - 27.04.1967, Qupperneq 4

Vikan - 27.04.1967, Qupperneq 4
Nýjasti samkvæmisdansinn nefnist La Postella — og bendir nafnið til þess að hann sé ítalskur að ætt og uppruna. í Súlnasal Sögu og Lídó hefur þessi dans verið iðkaður af miklu fjöri undanfarna mánuði. Ragnar og félagar urðu fyrstir til að kynna La Postellu hér á landi sl. haust — og vakti dansinn þá þegar fádæma kátínu, svo mikla, að jafnvel fótfúnustu menn töltu út á dans- gólfið til þess að hoppa með. Báðir hafa þeir Ólafur og Ragnar húmor í ríkum mæli til bess að stjórna þessum dans, en samkvæmt lýsingu þeirra ber að dansa La Postellu sem hér segir: Hoppa tvisvar á vinstra fæti, síðan jafn mörgum sinnum á hægra og þannig til skiptis góða stund. Þegar dansstjórinn gefur merki, beygja allir sig niður, setjast á haékjur, slappa algerlega af, segja brandara eða telja upp að 150, þar til dansstjórinn gefur merki aftur, en þá hoppa allir hæð sína í loft upp — og síðan endurtekur sagan sig. Svona fjörkippi kunna gestir á dansstöðum vel að meta. Hljómsveitir Ragnars og Ólafs eru með slíkum firnum skemmtilegar, að leita mætti langt út í lönd til þess að rekast á annað eins. EFTIR etrm Andrés IndriOason Hljómsveit Olafs Gauks á hljóm- leikum Sven Ingvars í Austurbæj- 1 arbíói. (Mynd: Sigurgeir). Hlj ómsveitarstjó rarnir Ilagnar Bjarnason og Reynir Sigurðsson stinga saman nefjum. Reynir hefur m.a. séð um útsetnirigar fyrir hljómsveit Ragnars. Myndin er frá þeim tíma, er báðlr léku með hljómsveit Svavars Gests. Sven liovars í Revkiavík Sven Ingvars stilltu sér upp fyrir lesendur Vikunnar í Austurbæjar- bíói/ og Sigurgeir Sigurjónsson smcllti af. Ilöfuðpaurinn, Sven- Erik Magnusson er annar frá hægri. Þannig sá ljósmyndarinn okkar Sven Ingvars gegn um myndavéj sína á hljómleikunum í Austur- bæjarbíói. Sven Ingvars, vinsælasla og um leið dýrasta hljómsveit á Norðurlöndum, kom til Reykjavíkui um miðjan marzmán- uð sl. Fernir hljómleikar voru ráðgerðir og voru þeir rækilega auglýstir í blöðum og útvarpi. Hvað gerist? Fyrstu hljómleikana sóttu þrjú hundruð manns. Fimm hundruð sæti í samkomuhús- inu voru auð. Aflýsa varð öllum hinum. Vegna ónógrar aðsóknar! Því miður sáum við ekki Sven Ingvars á hljómleikum í Austurbæjarbíói, og verður því auðvitað ekki um neina umsögn að ræða. Við komum að lokuðum dyrum. Það var látið heita, að hljómleikunum væri aflýst vegna veikinda. Það var fyrirsláttur. Þeim, sem stóðu að hingaðkomu hljóm- sveitarinnar, þótti dapurlegt að horfast í augu við sannleikann. Það sagði okkur ljósmyndarinn okkar, að aldrei hefði hann séð líflegri og skemmti- legri pilta á sviðinu í Austurbæjarbíói. Við áttum þess kost að kynnast Sven Ing- vars á öðrum vettvangi. Það voru ánægjuleg kynni. Ekki höfum við í annan tíma kynnst prúðari og skemmtilegri hljómsveit erlendri og hefur þó margar valinkunnar hljóm- sveitir rekið hér á fjörur. Þeir dvöldu hér í fimm daga. Komu í fyrra lagi, því að þá langaði til að ferðast hér um. Daginn áður en þeir komu kyngdi niður slík- um firnum af snjó, að allar leiðir út úr höf- uðborginni tepptust á augabragði. Það var ekki einu sinni hægt að fljúga norður í land. Þeir dvöldu á Hótel Loftleiðum. Svömluðu í sundlauginni og hlustuðu þess á milti á ís- lenzkar hljómplötur. Tvær íslenzkar hljóm- sveitir hafa sem kunnugt er leikið lögin þeirra á plötu. Vilhjálmur Vilhjálmsson söng „Litla sæta Ijúfa góða“ með Hljómsveit Ingi- mars Eydals. Þá hefur hljómsveit Ólafs Gauks leikið á hljómplötu lagið „Sej inte náj ......“ sem auðvitað heitir: Segðu ekki nei .... “ 4 VIKAN 17. tbl.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.