Vikan - 27.04.1967, Blaðsíða 20
Ifestup á fiöPflHm
Hádegi á Þingeyri við
Dýrafjörð. Það er engin
asi á umferðinni. Börnin
víkja kúnum eftir miðri
götúnrii, traktor með
kerru, jeppi með hey-
vagn. Og handan vegar-
ins sjást járnstaurarnir
sem áttu að fara í nýju
bryggjuna. O
Þar sem heitir Strandgata 1 á Patreksfirði, er lítið, járnvarið timburhús með lágri girðingu í
kring. Það er hvönn í garðinum og allt er gamalt og veðrað og strokið af hirðusemi. Þegar
myndin var tekin, var glampandi sólskin og sunnanundir húsinu situr gamall maður með kúlu-
hatt og lætur sólina verma sig: Sighvatur Ámason. Hann er einn af eldri borgurum á Patreks-
firði, fæddur í Reykjavík 1882, en flutti aldamótaárið vestur til Patreksfjarðar og hefur verið
þar heimilisfastur síðan. Ekki það að hann hafi ekki farið af og til út úr plássinu; hann hefur
jafnan unnið út og suður, meðal annars bæði í Englandi og Danmörku og á stríðsárunum var
hann á togara. Hann hefur lagt gjörva hönd á margt, meðal annars verið lengi við múrverk og
stundað sjóróðra. Húsið hét áður Litli Kambur og þar hafa þau hjónin búið síðan 1934. Frúin
er einnig langt að komin, frá Mýrum í Austur-Skaftafellssýslu, hún heitir Kristjana Einarsdótt-
ir. Þau kynntust á Patreksfirði og framan af vildi Kristjana flytjast þaðan í burtu en Sighvatur
kunni alltaf vel við sig og réði því að þau urðu kyrr.
Lítið kauptún við stóran fjörð;
Bíldudalur við Arnarfjörð. Þarna
bjó Þorsteinn Erlingsson um tíma
og þarna voru öll þau umsvif sem
Pétur Thorsteinsson hafði á sinni
tíð, faðir Muggs listamanns. Þetta
kauptún er líkt öðrum vestfirzk-
um; sum húsin síðan á kreppu-
árunum, lítil og gerð af vanefn-
um, sum í smíðum, fokheld eða
tilbúin undir tréverk og lík öðr-
um nýjum húsum. Það var sólbjart
yfir Arnarfirðinum þennan dag og
vegurinn inn í plássið sléttur eins
og raunar flestir vegir á Vest-
fjörðum.
Tvær ungar, sætar og saklausar
í Bíldudal. Því miður höfum við
ekki nöfnin, en þær kunna ber-
sýnilega vel við sig í Bíldudal og
þær væru varla mikið ánægðari
þótt þær væru komnar til París-
ar. <Z>
i ;
Þeir sem uppaldir eru
eða búið hafa í sjávarpláss-
um kannast vel við þessa
sérstöku stemmingu, sem
verður á góðvirðisdögum,
þegar konurnar hengja út
þvottinn og sængurverin
fyllast af vindi en þvotta-
lyktin berst um plássið og
blandaSt annarri vel þekktri
lykt frá fiski, tjöru, hampi
og sjó. Myndin er frá Þing-
eyri.
20 VIKAN 17-tbL
Hér er landslag stórhrika-
legast á Vestf jörðunum:
Breiðadalsheiði, þar sem
vegurinn liggur á milli Ön-
undarfjarðar og Skutuls-
fjarðar. Samkvæmt hinni
nýju Vestfjarðaráætlun um
samgöngur, á að gera jarð-
göng gegnum efsta hjallann
í Breiðadalsheiði og verður
þá mun greiðfarnara og oft-
ar fært milli ísafjarðar og
Flateyrar. Á myndinni sést
aðeins í Önundarfjörðinn en
handan hans er Gemlufalls-
heiði og yfir hana liggur
leiðin til Dýrafjarðar.