Vikan


Vikan - 27.04.1967, Síða 6

Vikan - 27.04.1967, Síða 6
Þessi heirnsfrægu merki mæla með sér sjólf: Aqua Lung vörur fró U. S. Driver Co., U. S. A. Poseidong Cyclon vörur fró Aqua Sport, SvíþjóS. Scubapro vörur frá Sport Indurstries Inc., U. S. A. Atvinnumenn, sportmenn, stærsta og bezta úrvalið í köfunarvörum er hjá okkur. f/iiimaí ch.f Suðurlandsbraut 16 - Reykjavík - Símnofni: »Volver<( - $ími 36200 Útibú LAUGAVEG 33. KVENNABÓSI Kæra Vika: Fyrir nokkrum vikum varð ég fyrir því að kynnast ungum manni á skemmtistað hér í bæn- um. Fyrst í stað leizt mér vel á þennan unga mann. Hann var mjög snyrtilega til fara og kurteis. Okkar kynni urðu síðar nánari. Hann bauð mér út næstu helgar á eftir og svo sóttist hann eftir að koma heim með mér og lét ég það gott heita. Þá kynnt- ist ég náttúrlega betur högum þessa manns. Hann sagðist vera skilinn við konuna sína fyrir nokkru síðan. Þá hætti mér nú að lítast á blikuna. Ekki svo að skilja, að það þurfi að vera nokk- uð athugavert við það að fólk skilji, heldur hversu illa hann talaði um konuna sína. Mér fannst það mjög óviðeigandi að segja mér frá því, þar sem hann þekkti mig sama og ekkert. Rétt á eftir fór ég í afmæli til vin- stúlku minnar. Þá tekur hún mig á eintal og fer að segja mér, að þessi maður, sem ég hafi verið með undanfarnar helgar, sé gift- ur og eigi ágætis heimili, konu og börn og hvort mér finnist við- eigandi að komast upp á milli hjóna. Ég varð alveg steini lost- in og fór að segja henni frá því, sem hann var búinn að segja mér. Þá segir hún: „Góða mín! Láttu mig þekkja hann. Ekki hefur hann svo sjaldan reynt við mig. En hann er orðinn að at- hlægi á þessum skemmtistað þar sem hann heldur sig oftast. Þar reynir hann við hinar og þessar og maður sér það strax á hon- um, hvað hann hugsar: Ég get náð í hvaða stelpu sem er. Það er óhætt að segja að hann hagi sér eins og argasti kvennabósi." — Eftir þetta var þessi maður þurrkaður burt úr lífi mínu. Ég fyrirlít hann og hef viðbjóð á honum. En frekjan í honum er svo mikil, að ég hef engan frið fyrir honum. Meira að segja fór ég úr bænum um páskana og þangað hringdi hann. Hvað á að gera við svona menn? Mér finnst að refsilög eigi að ná yfir svona framferði. Svona menn leggja ekki aðeins heimili sín í rústir og eyðileggja líf eiginkvenna sinna, heldur eyðileggja þeir líka þær stúlkur, sem þeir geta logið sig inn á. Hvert er þitt álit? G.J. P.S. Birtu bréfið fljótt. Ég er í vandræðum! Ja, ljótt er að heyra! Maður- inn er bersýnilega argasti kvennabósi og það af allra verstu tegund. Það verður að segja þér til hróss, að þú hefur hegðað þér eins og siðaðri stúlku sæmir og verið til fyrirmyndar. En kvenfólki hefur nú hing- að til tekizt að losna við þá karlmenn, sem það vill ekki um- gangast, og við trúum ekki öðru en að þér takist það líka. Fyrst og fremst verður þú náttúrlega að segja þessum Casanova álit þitt á honum og hans líkum, og gerðu það svolítið hressilega. Tvinnaðu saman öllum þeim skammaryrðum, sem þér finnst að hann eigi skilið að fá framan í sig. Ætli hann gefist þá ekki upp og snúi sér að næsta fórn- arlambi sínu? í ALVÖRU - Á AÐ GIZKA. Heiðraði Póstur! Hversu mörg prósent af bréf- unum, sem þú birtir ætli séu skrifuð í alvöru, sivona á að gizka? HH. Það er afar erfitt að svara þessu, þar sem ekki er ævinlega hægt að segja með fullri vissu, hvort bréfin eru skrifuð í gamni eða alvöru. Slíkum vafabréfum svörum við oftast sem alvarleg séu. En mikill hluti bullbréfanna fer stytztu leið í bréfakörfuna. Af þeim bréfum, sem nú liggja hér myndum við telja að aðeins 5—7 % væru skrifuð af stráksskap. Hann skemmdist ekkert mikið, en ég held þú verðir samt að koma með nýjan bíl. 6 VIKA.N 17. tbl.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.