Vikan


Vikan - 27.04.1967, Page 14

Vikan - 27.04.1967, Page 14
Herbergið, sem í ljós kom, átti ekkert skylt við brjálæðislega, rauða herbergið, sem hún hafði gert handa Ralph Sampson, þetta var stór stofa og glaðleg, jafnvel um nótt bak við fyrirdregin gluggatjöld. Vönduð miðstéttar- stofa með natúraliskum mál- verkaeftirprentunum á veggjun- um, innbyggðum bókahillum með bókum í, útvarpsgrammófón og plötuskáp, gljábrenndu, hlöðnu eldstæði með stórum, íbjúgum sófa fyrir framan. Það eina, sem var ofurlítið ankanalegt var á- klæðið á sófanum og armstólnum undir lampanum: skærgrænar hitabeltisplöntur með hvítum eyðimerkurhimni í baksýn og eitt og eitt auga gægðist fram, milli laufblaðanna. Munstrið hreyfðist þegar ég leit á það. Augun hurfu og komu í ljós. Ég settist á öll þessi augu. Hún var við innbyggða barinn í horninu við hliðina á eldstæð- inu. — Hvað viljið þér að drekka? Hún færði mér glasið. Helm- ingurinn af innihaldinu gutlaðist upp úr á leiðinni og skildi eftir dökka slóð yfir ljósgrænt gólf- teppið. Hún settist við hliðina á mér og sökk djúpt í bólstraða sessuna. Dökkt höfuð hennar hneig út á öxl mína og lá þar kyrrt. Ég sá fáein grá hár, sem hárgreiðslukonan hafði skilið eft- ir í hári hennar, svo það liti ekki út fyrir að vera litað. — Ég gat ekki upphugsað neitt, sem mig langaði til að drekka, sífraði hún. — Láttu mig ekki detta. Ég lagði annan handlegginn um axlirnar á henni, sem voru næstum eins breiðar og mínar. Hún hallaði sér þugnt að mér. Ég fann að andardráttur hennar varð smám saman hægari. — Reyndu ekki að gera neitt við mig elskan. Ég er dauð í nótt! Einhvern tíma seinna .. . Röddin var mjúk og ekki langt frá að vera ungpíuleg, en óskýr. Óskýr eins og daufir æskuneistarnir í augum hennar. Augun lokuðust. Ég sá ofur- lítinn æðaslátt við gagnaugun. Dökk bráhárin voru leifar af æsku og fegurð og gerðu það að verkum, að niðurlag hennar virt- ist endanlegt og miskunnarlaust. Það var auðveldara áð vorkenna henni, þegar hún svaf. Til að vera viss um, að hún svæfi, setti ég fingurinn varlega á annað augnlok hennar og lyfti því. Augað starði hvítt eins og marmari á ekkert. Ég færði handlegginn af öxlum hennar og lét hana síga niður í sófann. Brjóst hennar héngu á svig. Hún var með kálfsfætur. Hún fór að hrjóta. Ég fór inn í næsta herbergi og lokaði dyrunum á eftir mér og kveikti. Ljósið glampaði í ljósu maghoníborði með gerviblómum á miðjunni, og sex þunglamalegir stólar stóðu upp við veggina. Ég slökkti Ijósið og fór fram í eld- hús, snyrtilegt og vel útbúið. Ég velti því fyrir mér andar- tak, hvort ég hefði dæmt konuna rangiega. Tíl voru heiðarlegir stjörnuspámenn — og fjöldinn allur af meinlausum drykkju- mönnum. Hús hennar var eins og hundruð þúsund önnur í Los Angeles og nágrenni, næstum of dæmigert til að vera sannferðugt, fyrir utan stóra bílskúrinn og blóðhundinn sem gætti hans. f baðherberginu voru veggirn- ir klæddir fölbláum flísum og baðkarið var jafnt á alla kanta. Skápurinn yfir vaskinum var troðfullur af allskonar ilmefnum og almenningslyfjum, kremi og málningu, púðri luminol, nem- butal, veronal. Móðursýkismeð- alaflöskur og krúsir stóðu eins og tolldu á vaskinum, á þvotta- kassanum og klósettkassalokinu. Fötin í þvottakassanum voru öll kvenmannsföt. Það var aðeins einn tannbursti í haldayanum, rakvél, en ekkert rakkrem né önnur merki um karlmann. Svefnherbergið við htiðina á baðherberginu var blómum skreytt og bleikt eins og róman- tísk von frá því fyrir stríð. Á náttborðinu voru bækur um stjarnfræðileg efni. Fötin í skápn- sum voru öll kvenmannsföt og mikið af þeim. Undirfötin og náttkjólarnir í skúffunum voru ferskjugullit og ungbarnabláir og svartir knipplingar. Ég leit undir sokkahrúguna í annarri skúffu ofan frá og fann það dularfulla við þetta hús. Þar var röð af bögglum með gúmmí- teygjum utan um. Bögglamir innihéldu peninga, atlt í seðlum, eins dollara seðlum, fimm doll- ara sðtum og tíu dollara seðlum. Flestir seðlarnir voru gamlir og lúðir. Ef allir bögglarnir voru eins og sá, sem ég skoðaði, var botnfyllin í skúffunni átta eða tíu þúsund. Ég settist á hækjur mér og horfði á alla þessa peninga. Skúffa í svefnherbergisskáp var tæpast nógu góður staður fyrir fólk, sem gat ekki talið fram tekjur sínar. Símhringing rauf þögnina eins og tannlæknisbor. Hún hitti taug og ég kipptist við. Ég lokaði skúpnum áður en ég fór fram í anddyrið þar sem síminn var. Það heyrðist ekkert hljóð frá konunni í setustofunni. Ég brá bindinu fyrir munninn til að breyta röddinni: — Halló? — Herra Troy? þetta var kona. — Já. — Er Fay þarna? Hún talaði snöggt og klippt. — Þetta er Betty. — Nei. — Hlustið, herra Troy. Það var verið að rekja garnirnar úr Fay á Valerio fyrir um það bil klukkustund. Maðurinn, sem hún var með, getur hafa verið leyni- lögrglumaður. Hann sagðist ætla að fylgja hnni heim. Þú vilt, vænti ég ekki, hafa hann þar, þegar trukkurinn kemur? Og þú veizt, hvernig Fay er, þegar hún er full. — Já, sagði ég. Og svo tók ég áhættuna: — Hvar ertu núna? — Á píanóinu, auðvitað. — Er Ralph Sampson þar? Svarið var undrunarhljóð. Hún þagnaði andartak. Ég heyrði í gegnum símann óminn af manna- röddum og glamra í mataráhöld- um, sennilega í veitingastofu. Svo fann hún röddina aftur: — Hversvegna spyrja mig? Ég hef ekki séð hann nýlega. — Hvar er hann? — Ég veit það ekki. Hver er það sem talar? Herra Troy? — Já. Ég skal sjá um Fay. Ég lagði á. Handfangið á framdyrunum hreyfðist hægt fyrir aftan mig. Ég stirðnaði með höndina á sím- anum og horfði á útskorinn krist- alhúninn, um leið og hann hreyfð- ist hægt, og það glitraði á hann af ljósinu úr setustofunni. Allt í einu sveifluðust dyrnar upp á gátt og maður í léttum rykfrakka stóð í gættinni. Silfurhvítt höfuð hans var hattlaust. Hann kom inn með hreyfingum eins og leik- ari, sem gengur inn á svið, og lokaði dyrunum varlega á eftir sér með vinstri hendij. Hægri höndin var í frakkavasanum, vasinn benti á mig. Ég sneri mér að honum. — Hvert ert þú? — Ég veit, að það er ekki kurteisi að svara einni spurningu með annarri. Suður-Englands málhreimur hans, nú langa leið að heiman, mildaði röddina ofur- lítið. — En hver eruð þér? — Ef þetta er árás . . . hlutur- inn i vasa hans beindist þögull að mér. Hann varð ákveðnari í bragði. — Ég spurði yður ein- faldrar spurningar, félagi. Gefið mér einfalt svar. — Ég heiti Harper, svaraði ég. — Notið þér blátt, þegar þér þvoið á yður hárið? Ég átti frænku, sem sagði að það væri afar áhrifaríkt. Andlit hans breyttist ekki, hann kom upp um reiðina með því að tala skýrar. — Ég er á móti ónauðsynlegu ofbeldi. Gerið svo vel að gera það ekki nauð- synlegt. Ég gat horft niður á höfuðið á honum og sá skína í skallann í gegnum vandlega greitt hárið. — Þér skelfið mig, sagði ég. — ítalskur Englendingur er djöf- ullinn holdi klæddur. En byssan í vasa hans var lítið, áhrifamikið kælikerfi, sem kældi allt anddyrið. Augu hans voru þegar orðin að ísi. — Og hvernig vinnið þér fyrir yður, herra Harper? — Ég sel tryggingar. í tóm- stundum stend ég frammi fyrir byssumönnum. Ég seildist í vesk- ið mitt til að sýna honum kortið, sem kynnti mig sem sölumann fyrir „hverskonar tryggingar". — Nei, hafið hendurnar þar sem ég get séð þær, og hafið gát á tungu yðar. — Með mestu ánægju. Ég skal ekki reyna að selja yður trygg- ingu. Þér eruð of mikil áhætta, svona ráfandi með byssu um Los Angeles. Orðin fóru yfir höfuð hans án þess að raska ró þess. — Hvað eruð þér að gera hér, herra Harper? — Ég fylgdi Fay heim. 14 VIKAN 17 tbl

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.