Vikan


Vikan - 27.04.1967, Síða 43

Vikan - 27.04.1967, Síða 43
Baráttan um bókina handy ðllCly m/mfi MEÐ AÐEM2 EWW YfíRPURMUN .. hreinsar MÍLflÐI VEGGI, VflSKfl, BIKflRflOFNfl, GÓLF, betur, hraðar, auðveldar! Límkennd óhreinindi? Fitukennd óhreinindi? Leðjukennd óhreinindi? Handy Andy hreinsar öll óhreinindi á brott með aðeins einni yfirþurrkun. Nútíma húsmæður, hvar sem er, eru sammála um það að hann sé bezti alhliða hreinsunarlögur, sem völ er á. Handy Andy hefir öflugan styrkleika til að hreinsa allskonar heimilishluti betur, hraðar, auðveldar. Notið hann annað- hvort eins og hann kemur úr flöskunni, eða þynntan með vatni ef hreinsa skal stærri svæði. Þér þurfið ekki að nota nema lítið í hvert sinn — Handy Andy er svo kröftugur, svo drjúgur! Kaupið hann strax í dag! handv , andyi CLEANS PAINTWORK WITHA WlPE AÍIHENS 'TILES • FLOORSBAT* £ Framhald af bls. 27. mér var vísað á einkaritara Roberts F. Kennedys, Angie Novello, sem lofaði að ræða málið við hann. Angie brást mér aldrei. En þar sem enginn maður á Capitol Hill var jafn önnum kafinn og hinn nýi öldungardeildarþingmaður frá New York, fór málið aftur til aðstoðar- manna hans. Það var þetta völund- arhús, með öllum sínum flækjum og gildrum og hættum á misskiln- ingi, sem seinna varð sá vígvöllur, sem Baráttan um bókina var háð á. Samskipti okkar voru mjög handahófskennd — Bob bauð syni mínum að vinna á skrifstofu hans um sumartímann; Jackie fann að byggingu ávarps sem ég flutti ( Amherst,- smátt og smátt var mér boðið að synda í Hyannis Port, dansa í Hickory Hill eða borða með Bob á La Caravelle í New York. Sambandið hélt í stuttu máli áfram að verða snurðulaust. Aðeins tvö smáatvik snertu það starf, sem ég var nú gagntekinn af, og þegar horft er um öxl voru þau bæði með kaldhæðnislegu yfirbragði. !. október 1964, þegar frú Kennedy svaraði beiðni frá öðrum rithöf- undi, lýsti hún viðhorfi sínu til starfs míns. Fyrst hún sendi mér afrit af því, leit ég svo á, að hún ætlaðist til að ég hefði það að leiðarljósi. ,,Ég valdi herra Manchester, af því að ég ber virðingu fyrir hæfi- leikum hans og af því að ég trúi því, að hann muni beita fyllsta hlutleysi og sagnfræðilegri ná- kvæmni við starf sitt," skrifaði hún. ,,Ég hef ekki haft neitt eftirlit með því sem hann er að gera og hef ekki í hyggju að gera það. Hann mun leggja fram fullbúið handrit og það verður gefið út án nokk- urrar ritskoðunar frá minni hálfu eða nokkurs annars. Ég ber of mikla virðingu fyrir sagnfræði til þess að fara að rengja niðurstöður rannsóknar hans," hélt hún áfram. ,,Ég hef enga löngun til þess að ákveða hverjir skrifa sagnfræðileg efni. Margir munu verða til að fjalla um þá atburði, sem gerðust í nóvember 1963, en þeir sem taka starf sitt alvarlega munu bíða, þar til bók Manchesters hefur birzt. Sú bók verður hin eina, sem sagnfræð- ingar taka mark á." Hún endaði með því að lýsa yfir, að „Tilgang- urinn minn er að fá fram nákvæma sögu þessara daga, og sú saga verður sögð af William Manchester." Síðara atvikið gerðist sumarið eftir. Þá var álit fjölskyldunnar á mér einna mest. Ég hafði ekki vald- ið henni neinu ónæði, þar sem ég kaus heldur að halda rannsókn minni áfram með mfnum eigin, sjálfstæðu aðferðum; enginn gat enn þá efazt um áreiðanleik minn; og fyrst ég hafði ekki skilað neinu handriti, þá var heldur ekkert sem þau gátu fett fingur út f. Tveir vinir mínir voru hins vegar í vanda staddir. Ted Sorensen og Arthur Schlesinger voru komnir í eindaga með bækur sínar, kepptust við að Ijúka þeim á þeim tfma, sem út- gefendurnir höfðu sett þeim, og jafnframt kepptu þeir um viður- kenningu Kennedy-fjölskyldunnar. Ted valdi auðveldustu leiðina, eins og Pierre Salinger árið áður, sneiddi hjá hverju atriðinu á fætur öðru og veikti það, sem hefði getað haft mikla þýðingu. Ég hafði svolítil af- skipti af bók hans. Ég las eftirmál- ann yfir og eyddi tveimur klukku- stundum í að reyna að fá hann til að láta ekki undan. Hann neit- aði. Hann var maður, sem þurfti að láta á sér bera, ekki rithöfund- ur; hann gat ekki skilið það grund- vallaratriði, sem hér var um að ræða. Arthur var hins vegar hvort tveggja, hann skildi þetta fullkom- lega, og enda þótt hann féllist á að fella brott á einum stað úr samtali sínu við frú Kennedy (það atriði var líka á segulböndum mín- um), þá neitaði hann að láta undan að öðru leyti. Það andaði köldu í hans garð þennan heita júlímánuð. 4. ágúst ákvað ég að láta til mín taka: ,,Ég hef verið að lesa bæði með áhuga og kvíða brot úr sögu, sem farin er að birtast," skrifaði ég frú Kennedy, „Burtséð frá mikilvægi þessa og hins — sérhver upplýstur einstaklingur hefur sinar skoðanir á speki skáldanna — þá hygg ég, að kröfur samtíma sagnfræði séu mikilvægari. Sumar þeirra eru meira að segja mjög mikilvægar." Þar sem ekki var um að ræða „neina gallalausa lausn" sagði ég: ,,Ég held að ég viti hvert hið ranga svar er. Það er hið auðvelda svar: að þurrka allt burt, gera sér upp sakleysi og hafna sagnfræðinni. Ef öll gagnrýni væri tekin til greina, þá yrði úr því þunn blanda. Það mundi verða líkt og bænir pipar- 17. tbi. VIKAN 43

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.