Vikan


Vikan - 16.11.1967, Blaðsíða 14

Vikan - 16.11.1967, Blaðsíða 14
Hann klappaði Modesty varlega ó kinnina. Hún baerði ekki á sér á öxl hans, en röddin var glaðvak- andi, þegar hún spurði: — Erum við komin, Willie? — Rétt að segja. Við komum til Cascais eftir fimm mínútur, Við getum fengið okkur bíl heim að húsinu. — Hann verður svo að bíða, meðan ég hef fataskipti og tek saman. Svo förum við og tökum þitt dót á hótelinu. sendi hann dulmálsskeyti frá Lissa- bon til Barcelona. 12. kafli. Tarrant gaut augunum að borð- inu sínu. Þar voru þrjár dagblaða- úrklippur um happ Dalls í spila- vítinu í Beirut, á kostnað hinnar „auðugu, fögru og dularfullu konu úr samkvæmislífi Lundúnaborgar, Modesty Blaise." Dularfullt var dæmigert blaða- mannaorð, hugsaði Tarrant, það — Þetta er ofurlítið óákveðið, Sir, sagði Fraser varfærnislega og hækkaði röddina I endann, svo allt eins mátti skilja setninguna sem hikandi spurningu, eins og beina fullyrðingu. — Það er ofurlítið loðið, sagði Tarrant. — En þú væntir þér mikils, Jack. Með því að taka upp notkun skírnarnafns og fella þar með nið- ur þéringu gaf hann Fraser til kynna að hann ætti nú að sleppa því hlutverki sem hann lék dags- EFTIR PETER O'DONNEL FRAMHALDS- SA6AN 16. HLUTI Liebmann horfði á úrið sitt. Eftir fimmtán mínútur myndi flug- vélin lenda með tuttugu tonn af skot- færum ,sem síðan yrði komið fyrir í stóra hellinum, undir klett- inum við dalsendann. — Þá það. Erum við að flytja, Prinsessa? — Já. Hún kom við eyrað á hon- um, og hann vissi að hún var að tala sérstaklega fyrir Gerace. — Heyrðu, mér hefur dottið í hug stór- kostleg aðferð til að ná í Montlero, heima hjá honum sjálfum. Þá get- um við þröngvað honum til að segja okkur, hver leigði hann til þessa starfs. Og hversvegna. Willie gerði sér upp hlátur, lág- an og ógnandi. — Ég skal sjá um að stjórna söngnum hjá honum. Ég þarf ekki annað en tölu, lykkju og eldspýtustokk ... Hann þagnaði og hélt svo áfram vongóður: — Heldurðu ekki annars, að Gerace viti svörin, þegar allt kemur til alls? Það fór greinilega hrollur um Gerace. — Ég held ekki, Willie, svaraði Modesty. — Og þar að auki er það Montlero, sem mig langar að sjá engjast. — Hann skal örugglega engjast, sagði Willie með djúpri sannfær- ingu. Hann vissi, að þau myndu ekki fara til Sikileyjar, en Gerace og menn hans myndu taka fyrstu vélina, sem þeir næðu f. Og svit- inn myndi boga af Montlero um langan, ókominn tfma. Klukkan tfu næsta morgun kom maður f léttum, drapplitum fötum til hússins og gekk úr einu herberg- inu f annað. Þpð var undrunarsvip- ur á andlitinu og byssa f hendinni. Það tók hann nokkurn tíma að losa boltana sem héldu dyrunum á fangaklefanum. Þegar hann að lokum komst inn, stóð hann f fulla mfnútu og starði á gatið í loftinu. Rimlarnir fyrir glugganum voru enn á sínum stað. Klukkustund síðar var engin hætta á málaferlum út af þvf. Og hvað snerti fullyrðing- una um að hún væri úr samkvæm- islffi Lundúnaborgar — því myndi hún hafa gaman af. Það voru margar fleiri úrklippur um hvarf og endurheimtingu Watte- au-verksins. René Vaubois hafði tekizt einstaklega vel þar, fannst Tarrant. Hann ákvað að senda Vau- bois pakka af Swoop til að gefa dúfunum. Vaubois myndi kunna vel að meta það, að Englendingar keytu sérstaklega innpakkaða fæðu handa villtum fuglum. Að lokum var svo einföld, föl- græn örk, með skýrslunni frá mann- inum í Lissabon. Skýrslan var stutt og ekki sérlega tæmandi. Tarrant hallaði sér aftur á bak og horfði á Fraser, aðstoðarmann sinn. Fraser var grannur vexti, nær fimmtugu. Hann var með gleraugu og auðmjúkt fas bankastarfsmanns í sögu eftir Dickens. Þetta var fas sem hafði þjónað honum aðdáan- lega vel, þau mörgu og löngu ár, sem hann hafði unnið fyrir leyni- þjónustuna. — Hvert er yðar álit, Fraser? surði Tarrant. Fraser horfði varfærnislega ofan í teppið. — Þetta sem gerðist í Beirut Ktur út fyrir að vera satt, frá upphafi til enda, Slr Gerald. Þjófnaðurinn — hann tók sig á með flóttalegu augnatilliti — eða ef til vill ætti ég að segja hinn sviðsetti þjófnaður á Watteau málverkinu var einnig mjög vel getður. — Já. Sviðsetti. Það var einmitt orðið sem átti við. Tarrant beið þess að Fraser setti upp sitt venju- lega, hundslega þakklætisbros. — Og hvað um þetta? Hann rétti hon- um fölgrænu pappírsörkina. daglega og tala glöggt. Fraser tók af sér gleraugun og byrjaði að þurrka þau. — Mikils? bergmálaði hann. Það var fyrir- litning í röddinni. — Já. Okkar maður f Lissabon varð að vinna næstum því í blindni. Vertu nú ekki of harður við hann. — Ég skal gelda þann bastarð með bitlausum hnff, sagði Fraser. — Þú segir honum að fylgjast með og gefa skýrslur. Hann fylgist ekki með neinu og gefur skýrslur þess efnis að hann haldi að eitthvað hafi gerzt milli Modesty Blaise og þorparahóps undir stjórn Gerace, sem af tilviljun var f Lissabon á sama tíma. Fraser setti á sig gleraugun aft- ur og sagði: — Hann veit ekki hvað gerðisf, né hvert hlutaðeigandi hafa nú farið. Hann minntist einnig á Delgado og vissi ekki heldur hvert hann hafði farið. Þar að auki minn- ist hann á og lýsir manni sem hann hefur ekki geta komizt fyrir um hver er, en ekur litlum, rauðum Fíat. Drottinn minn. Elliær tengda- móðir mfn gæti gert þetta betur fyrir okkur og hún hefur verið dá- in í sfðastliðin fimm ár. — Þú gafst honum fyrlrmæli um að flækja sér ekki f neitt, sagði Tarrant róandi. — Að fylgjast með undir þessum kringumstæðum er ekki auðvelt, eins og þú veizt full- vel. — Við borgum ekki fólki fyrir að gera það sem auðvelt er, sagði Fraser þrákelknislega. Hann lét fallast f stól og kveikti sér f sfga- rettu. Tarrant fannst yggiibrúnin á aðstoðarmanni sfnum næstum hlægi- leg, en þó hafði hann samúð með honum. Fraser hefði fylgzt með, án þess að þvælast fyrir. Hann hafði 14 VIKAN 46 tbl

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.