Vikan


Vikan - 30.11.1967, Síða 2

Vikan - 30.11.1967, Síða 2
SVEINN EGILSSON H.F. UMBOÐIÐ LAUGAVEG 105 SÍMI 22466 UMBOÐSMENN OKKAR ÚTI Á LANDI: AKRANES. BERGUR ARNBJÖRNSSON BOLUNGARVÍK: BERNÓDUS HALLDÓRSSON SIGLUFJÖRÐUR: GESTUR FANNDAL VESTM.EYJAR: BÍLALEIGAN A.S. FORD CORTINA 1968 er lítið breytt eftir hinar gagngerðu breytingar fyrra órs. — Hinir fjölmörgu CORTINA - eigendur eru beztu meðmælendurnir. Hin nýja kraftmikla 5 höfuðlegu vél gefur bifreiðinni mjúkan og öruggan akstur. Gúmmíhlífar yfir höggdeyfurum varna skemmdum vegna óhreininda. Kraftmikil miðstöð og loftræsting með lokaðar rúður. Mikið farangursrými. Nýlega var haldin í Reykjavík frumsýning á nýrri, íslenzkri kvikmynd, og var sú frétt í blöð- um fyrir þann hátíðlega viðburð, að þetta yrði „gala“ frumsýning, það er að segja, að frumsýning- argestir yrðu hátíðabúnir. Einnig var sérstaklega óskað eftir því á boðskortunum, að menn klædd- ust dökkum fötum. Það er flestum kunnugt, sem um það nenna að hugsa, að klæðaburður á drjúgan þátt í að skapa mennilega stemmningu og hátíðabrag. Það ætti því ekki að vera nema sjálfsagt að bregðast vel við, þegar óskað er eftir að maður klæðist hátíðlegum klæðn- aði við sérstök tækifæri. En nú brá svo við á umræddri frumsýningu, að menn létu sig hafa það að koma í öllum regn- bogans litum — þeim, sem al- mennt eru viðurkenndir á fá- breytilegum búningi okkar karl- skepnanna. Þarna voru menn í bláum fötum, gráum fötum, brún- um fötum, köflóttum fötum, tein- óttum fötum. Það var engu lík- ara en landið hefði búið við síld- arbrest að minnsta kosti undan- farin áratug. Það ætlar seint að rjátlast af okkur þvermóðskan og búrahátt- urinn. í sumum tilvikum er mér kunnugt um, að þessir litaglöðu karlmenn áttu dekkri föt en þau, sem þeir mættu í. En því miður er þetta ekkert einsdæmi. Annað hvort er, að íslendingar viðurkenna ekki al- gengar siðareglur — etikettur — eða þá hitt, að óttinn við kúgun- ina er ennþá svona ofarlega í okkur. Við látum ekki hvern sem er segja okkur, hvaða föt við eig- um að bera — það er nokk okk- ar einkamál. Við eigum eftir að sjá helm- ihginn af þessari íslenzku mynd. Vonandi verður einnig þá óskað eftir dökkum fötum. Það verður fróðlegt að sjá, hverjir taka það ekki til greina. S. H. 2 VIKAN 48- tbl

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.