Vikan


Vikan - 30.11.1967, Síða 10

Vikan - 30.11.1967, Síða 10
FAGUR haustdagur fer mildu skini um Reykjavík, og borgin er drottningu lík að ósýnd og vaxtar- lagi. Börnin fóru í skólann hópum saman snemma í morgun, og end- urnar syntu hótíðlega á tjörninni eins og þær væru í heimspekileg- um hugleiðingum, en varla hefur verðfallið eða aflabresturinn valdið alvöru þeirra. Laufin blikna og fjúka af trjónum ( hægum blæ, en þær örlagastundir finnst mér jafnan litadýrð þeirra mest. Sannarlega er höfuðborg íslands vel f sveit sett. Vorin og haustin trúi ég þvt löng- um, að Ingólfur Arnarson og Hall- veig Fróðadóttir hafi verið í náð guðanna, þegar forlögin völdu þeim hjónum bólstað í Reykjavík. Gott er að vakna við sjóinn því- líkan morgun og heilsa nýjum degi eins og opinberun. Þá langar mig alltaf niður í fjöru að tína skelj- ar eins og þegar ég var lítill dreng- ur austur á Stokkseyri, en sú iðja hæfir ekki fullorðnum manni nema á helgum. Önnin kallar mig í bæ- inn, en ég uni ekki innisetu í sól- skini og kyrrð og fer burt úr skrif- stofunni upp úr hádegi, sezt á bekk á Autsurvelli, sný baki við styttu Jóns Sigurðssonar forseta og horfi á alþingishúsið. Víst er það höll á íslenzkan mælikvarða, og þangað mænir vonin öll eins og greinir í alþingisrímunum. Hvað ætli marga íslendinga dreymi að komast þar til áhrifa og valda? SÚ var tíðin, að mig langaði á þing. Þá starfaði ég sem þingfrétta- ritari, fylgdist af kostgæfni með deilum og atburðum stjórnmálabar- áttunnar og komst ( framboð, en náði auðvitað ekki kosningu. Spá- kerling hét mér því ungum, að ég yrði þjóðmálagqrpur. Ég trúði henni ( hégómlegum barnaskap mínum og varð fimm krónum fátækari. Nú detta mér ekki slík mannaforráð í hug framar, og ég kem aldrei í alþingishúsið að kalla nema þegar listamannalaunum er úthlutað. Mik- ið var ég heppinn að sleppa við 10 VIKAN 48-tbl' HELGI SJEMUNDSSON SKRIFAR IIONIN MKKIR ÞANGAD ÖIL 'l: upphefðina og ábyrgðina. Ég læt mér nægja að hjálpa til ( samfé- laginu með þvf að borga útsvarið og skattana og er frjáls að skoðun- um mínum. Munur er það sérvitr- um manni og einþykkum eða verða að taka afstöðu og greiða atkvæði. Og svo get ég huggað mig með því, að ég sé fyrrverandi tilvonandi alþingismaðurl Fimm kátir og efnilegir mennta- skólanemar ganga framhjá og virða ekki alþingishúsið viðlits. Kannski verður samt einhver þeirra forsætis- ráðherra. Það er skrýtið, hverjir komast á þing og f ráðherrastóla. Hvern hefði grunað frama Bjarna Benediktssonar, þegar hann lék sér barn á Skólavörðustfgnum og kunni ekkert í lögum nema hnefaréttinn? Þarna er svo alþingishúsið! Nýja hurðin þykir dýr, en ekki blöskrar mér, hvað hún kostar. Smiðirnir hafa verðlagt hana með hliðsjón af því, hversu eftirsóknarvert telst að komast inn um þessar dyr og hreppa sæti f höllinni þráðu, en ekki samkvæmt uppmælingu. — Gullna hliðið í himnaríki væri margra peninga virði á jarðneskan mælikvarða. Hvað ætli safnararnir f Amerfku gæfu fyrir aðra eins ger- semi, ef föl væri? GAMALL maður sezt á bekkinn hjá mér og tekur mig tali, enda er- um við kunnugir. Hann var for- maður úti í Vestmannaeyjum árin mfn þar, sjósóknari og aflakló, veiddi þorsk á Selvogsbanka og sfld á Grímseyjarsundi, dró veður- bitinn og stórhuga björg í þjóðar- búið, en var sjálfur fátækur barna- karl á dögum heimskreppunnar og missti heilsuna, þegar stríðsgróð- inn kom til sögunnar, möguleikarn- ir gáfust og öryggið fékkst til handa þeim, sem unnið gátu. Nú dvelst hann að Hrafnistu, en er djarfur í lund og hress í máli, forvitinn og spurull, metur ófeiminn menn og málefni, rekur minningar fortfðar- innar og veit glöggt Ifðandi stund. Mér þykir vænt um að hafa hann að sessunauti. Dyrnar á alþingishúsinu opnast, og út ganga tveir menn, flokks- bræður, kosnir landsfeður f vor, annar bankastjóri á Akureyri, hinn útvegsmaður f Kópavogi. Kunningi minn kann skil á þeim báðum, en innir mig álits. Ég hermi honum, að Bragi og Jón Ármann séu báðir Þingeyingar að uppruna, þó að ver- ið hafi f framboði f kjördæmum sfnu í hvorum landshluta. Hann glottir við tönn og svarar af bragði: — Þingeyingar hafa lengi viljað frelsa heiminn, svo að þeim verður varla skotaskuld úr því að bjarga landinu. Þá man ég, að kunningi minn er af sömu slóðum ( ættir fram. Afi hans bjó á rytjukoti í Höfðahverfi og hafði ekki ráð á að flýja til Ameríku. Eigi að sfður ann dóttur- sonur hans átthögunum nyrðra, þó að hann yrði svo hamingjusamur að lifa og starfa sunnan lands. — Þingeyingum er ekki fisjað saman. Jónas Árnason kemur fyrir dóm- kirkjuhornið, þéttur á velli, höfuð- stór og bjartur yfirlitum. Hann mæt- ,ir Páli Þorsteinssyni utan við al-

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.