Vikan - 30.11.1967, Page 18
Þessar myndir af Hljómum voru teknar, þeg-
ar upptaka fór fram á þætti þeirra í sjónvarp-
inu, sem sýndur var 6. nóvember sl. Eins
og- sjá má var „blómlegt" um að litast í sjón-
varpssalnum, jafnvel hljóðnemarnir voru
blómum skrýddir, svo og hljóðfæri piltanna.
Mikill fjöldi af ungu fólki var viðstaddur
upptökuna og skemmtu allir sér hið bezta.
ÖUum' þótti að sjálfsögðu forvitnilegt að
fylgjast með hvemig upptaka í sjónvarpi
gengur fyrir stig, en lögin, sem Hljómar
fluttu, eru öll að finna á hinum nýju, hæg-
gengu hljómplötu þeirra. Áður en hin endan-
lega upptaka fór fram, fóra fram æfingar,
eins og venja er, en síðan var þátturinn tek-
inn upp í heilu lagi, án þess að nokkurs
staðar væri gert hlé. Meðal gesta Hljóma í
þessum þætti voru m. a. allir liðsmenn hljóm-
sveitarinnar Flowers, en einnig mátti sjá
fleiri þekkt andlit úr þekktum unglingahljóm-
sveitum. Piltamir I Flowers voru klæddir
sínum skrautlegu jökkum og var litadýrðin
mikil, eins og gefur að skilja. Sjálfir voru
Hljómar í sínu bezta stássi, og öllum bar
saman um það, að þeir hefðu staðið sig með
ágætum í þessum þætti sínum. Við birtum
hér svipmyndir frá upptökunni, en mynd-
imar tók Karl Jeppesen fyrir okkur.
Hér sjáum við Rúnar Júlíusson en við hlið hans
situr Karl Sighvatsson.
EFTIR
mm
Andrés Indriðason
18 VIKAN 48-tbl-