Vikan - 30.11.1967, Page 48
HNFFAFYLLI
AF
KRAFTAVFRKUM
Framhald af bls. 15.
Julie, og ég veit að burtséð frá
hvaða tilfinningar hann hefur
borið til Caroline Wyndham,
elskar hann mig núna.
— Hvernig geturðu verið viss
um það?
— Hvernig vissurðu þegar
Robert varð ástfanginn af þér?
— Robert var frjáls að því að
bjóða mér ást sína. Það er
Martin ekki, þegar þú ert ann-
arsvegar.
— Það veit ég ekki, fyrr en
ég hef talað við Martin.
Juhe stundi þungt. — Ég er
sammála um, að þú ættir að
gefa honum tækifæri til að skýra
sitt mál, en burtséð frá öllum
ástæðum var ekki rétt af hon-
um að leyna þig því að konan
hans var ennþá lifandi. Julie
greindi sársaukadrætti í andliti
Adrienne. — Góða Adrienne,
þú mátt til með að beita skyn-
seminni. Það er ekki skemmti-
legt að leggja slík ráð, en ég
gæti ekki talizt góður vinur, ef
ég þegði. Bjargaðu þér út úr
þessu, áður en það er um seinan.
Farðu í utanlandsferðina, sem
þú hefur talað um, hnattferð,
hvað sem er, bara burtu héðan.
Bjargaðu þér frá hjartasorginni
og vonbrigðunum.
— Þú mátt aldrei halda, að
þetta sé það sama upp aftur.
Langt í frá. Ég elskaði Geoffrey
á vissan hátt, og sú ást var
þjáningarfull. Það hefur verið á
alit annan hátt með Martin.
Hann fer sér rólega, gerir eng-
ar kröfur, en er góður og við-
kvæmur. Þetta er og hefur verið
mjög saklaust samband. Það er
ekki oft, sem við höfum verið
ein saman, og þá aldrei nema
stutt.
— Þeim mun meiri ástæða til
að rífa þig lausa, meðan þú get-
ur.
— Ég verð fyrst að tala við
Martin. Adrienne gekk ákveðin
að símanum.
Julie Hamilton drap vandlega
í sígarettunni. Hún hafði svo
sem líka hitt og þetta að tala
við Martin Westbury um. Þeg-
ar Adrienne lagði tólið á, leit
hún upp.
— Hann verður í Oxford í nótt,
sagði Adrienne, — en hann kem-
ur einhvern tíma á morgun.
— Hvernig er hún? spurði
Julie.
— Caroline Wyndham? Hún
er falleg ... ein af þeim feg-
urstu konum, sem ég hef séð.
Þar að auki dugleg, hefur við-
skiptavit, sem hefur komið
henni á toppinn á fimm árum.
Fyrir fimm árum hafði enginn
heyrt um Lady Caroline Cos-
metics. Nú er það heimsveldi,
þar sem hún ræður sem misk-
unnarlaus einvaldur, beggja
megin Atlantshafsins.
Julie lyfti augabrúnunum
vantrúuð. — Þú átt þó ekki við,
að hún standi á bak við Lady
Caroline Cosmetics? Adrienne
kinkaði þegjandi kolli.
Djúpt hugsi starði Julie út
um gluggann. Þá kom hún auga
á bústna, litla veru úti á flöt-
inni. Hún snéri sér glettnislega
að Adrienne: — Sniðugt að það
skyldi einmitt vera hann sem
truflar þessar samræður. Hún
veifaði út um gluggann. — Hér
höfum við eina af aðalpersón-
unum í sorgarleiknum.
Adrienne kom að glugganum.
Jamie gekk rösklega að húsinu,
með tösku í annarri hendinni,
pakka í hinni og regnkápu yfir
öxlina. Hún opnaði gluggann og
hallaði sér út.
— Halló — hvað gengur nú á?
— Ég kem til þess að segja
bless. Er Paddy komin í bólið?
Adrienne kinkaði kolli. — Það
ættir þú líka að vera.
Jamie gretti sig. — Ég á enga
peninga. Getur þú lánað mér
svolítið? Ég ætla að fara til her-
mannanna, sem maðurinn í bók-
inni fór til, þú veizt.
Arienne minntist bókarinnar,
frá því að Jamie var síðast í
hjá henni. — Heldurðu ekki, að
þú sért full ungur fyrir útlend-
ingarhersveitina? Komdu inn,
svo við getum talað ofurlítið um
þetta, áður en þú ákveður þig.
— Allt í lagi. Hann gekk í átt-
ina að bakdyrunum og þær
heyrðu hann skýra Mörthu frá
erindi sínu, meðan hann kom
upp eldhúströppurnar.
Gerist þetta oft? spurði Julie.
— Þetta er í annað skipti á
eir.um mánuði. Adrienne brosti
vémóðug. — Hann hefur víst
óvingast við frú Garstone. Hann
getur ekki hafa slegið í brýnu
við föður sinn, því hann hefur
verið í Oxford í allan dag.
Jamie staðfesti þetta, þegar
hann kom inn stuttu síðar í
fylgd með Mörthu Hart. Hún
setti mjólk og bakka með
smurðu brauði og osti á borðið.
— Ég hringdi til pabba hans, en
hann er ekki heima, hvíslaði
hún varlega að Adrienne, meðan
Jamie byrjaði að útlista um
mannréttindi fyrir Julie. —
Frú Garstone bað okkur um að
senda hann heim, þegar hann
hefði jafnað sig. Adrienne
kinnkaði kolli og lokaði dyrun-
um varlega á eftir Mörthu.
— Þessvegna ætla ég að tala
við Evesham. Kannske get ég
fengið hjá honum starf við að
þjálfa ljón eða þá í loftfimleik-
unum .... Ég er voða flinkur
á línu .... Það er engin list. Ég
gæti grætt mikið og komið aft-
Verzlðð þar sem
úrvalið er mest
Skautar - skíði
Leikföng
Ljósmyndavara
SPORTVAL
LAUGAVEGI 116 Simi 14390
!
KRÓM húsgögn
48 VIKAN 48-tbl-