Vikan - 30.11.1967, Page 49
Bano $ Ohitsen
verksmiðjurnar eru nú orðnar stærstu sjónvarps- og
útvarpstækjaverksmiðjurnar á Norðurlöndum. Enda
er vörumerki þeirra ”B & 0” nú viðurkennt um allar
álfur, sem örugg trygging fyrir vandaðri vinnu og vöru-
gæðum. Nú orðið munu sjónvarpstækin frá ”B & 0“
vera sú tegund, sem mest er keypt af hér á Islandi.
Af því tilefni höfum við ákveðið, að veita verðlaun
fyrir íslenzka þýðingu á einkunnarorðum verksmiðj-
anna, sem á dönsku eru svohljóðandi: „B&O for den
kreds der diskuterer smag og kvalitet for prisen” (á
ensku: „B&O for those who consider design and
quality before price“). Aðalatriðið í sambandi við ís-
lenzka textann teljum við vera, að hann sé á góðri ís-
lenzku og nái vel hugsun þeirri, er felst í einkunnar-
orðunum, én beina þýðingu textans aukaatriði. Verð-
launaupphæðin verður kr. 3000,00 fyrir bezta textan
og verður dregið um verðlaunin, ef fleiri en einn hafa
samhljóða texta. - Úrlausn sendist til afgreiðslu
Vikunnar fyrir 15. janúar 1968.
ViltækiavhiiDslofin ht.
Laugaveg 178 - Reykjavík - Símar: 38877 og 37674
48. tbi. VIKAN 49