Vikan - 08.02.1968, Page 5
vel að bömunum og faðma
þau. Það er líka eins og
hann eigi sjálfur erfitt með
að gera það. Hann er alltaf
að nöldra yfir því að ég
skuli ekki faðma hann og
kela við hann eins og þeg-
ar við vorum ung. — Mér
finnst ég bara vera orðin
of gömul tiiil þess og við
bæði. Okkur kemur ekki
alltof vel saman heldur.
Við erum ekki oft saman
eins og hjón og hann er
stundum bálreiður út í mig
fyrir að ég reyni ekki að
koma honum ti:l og honum
finnst ég heldur aldrei
vilja neitt þegar hann vill.
En mig iangar svo til að
við getum öll verið ham-
ingjusöm saman, því innst
inni þykir okkur öllum
vænt hverju um annað. —
Hvað á ég að gera?
Með fyrirfram þökk.
Jóna P.
Það er ekki nóg, að fólki
þyki vænt hvoru um ann-
að. Það verður líka að Iaga
sig hvort eftir öðru. Hjóna-
band, þar sem annar aðil-
inn — eða báðir — ætla að
halda öllu sínu og sjálfum
sér óbreyttum, en móta
liinn aðilann að sínum geð-
þótta, hlýtur alltaf að fara
út um þúfur. Fyrir hvert
„horn“ sem slípa skal af
hinum aðilanum, verður að
slípa annað af sjálfum sér.
Það gildir líklega í engum
félagsskap fremur, að ó-
hjákvæmilegt er að mætast
á miðri leið, eigi vel að
fara.
Eiginmaður þinn þjáist,
að því er virðist, af skorti
á umhyggju og hlýju. Sál-
fræðingar myndu líklega
telja, að hann hefði ekki
notið mikils kærleika í
bemsku sinni og æsku og
þannig hafi smám saman
myndazt hjá honum óeðli-
lega rík þörf fyrir ást. Þú
:segir, að þú hafir „faðmað
hann og kelað“ þegar þið
voruð yngri, en nú virðist
hafa dregið mjög úr því.
Að okkar dómi þráir hann
sjálfur að verða aðnjótandi
þeirrar ástúðar, sem þú
sýnir bömimum; hann
minnist fyrri daga meðan
þú hafðir meiri tíma og
meiri ást handa honum og
kennir börnunum ósjálfrátt
um, að þau hafi tekið þig
frá honum.
Það er ekki tímafrekt að
sýna félaga sínum í hjóna-
bandi ástúð af og til; jafn-
vel þótt það krefðist frest-
unar á uppþvotti eða af-
þurrkun, borgar það sig
margfaldlega, ef með því
vinnst hamingjusamara
heimilislíf og hjónaband.
Og þú verður að minnast
þess, að hvatir karlmanns-
ins eru vökulli en konunn-
ar, og getur þú ekki upp-
fyllt kröfur hans í því efni
verðið þið að ræða málið
og reyna að komast að nið-
urstöðu. Það væri alls ekki
fráleitt að bera það mál
undir heimilislækninn —
þeir eru flestir grónir í
starfi og hafa kynnzt svo
mörgu, að þeim lætur ekki
síður að lækna sálir sjúk-
linga sinna en skrokkana.
Takist þér að koma til móts
við ástúðarþörf mannsins
þíns, er ekki ólíklegt, að
honum yrði auðveldara að
lá'ta vel að börnunum sjálf-
TOTTAR SNUDDU SÍNA.
Kæra Vika!
Er það ekki óeðlilegt, að
þriggja ára pjakkur skuli
ennþá totta snuðið sitt? En
hann er svo hrifinn af því,
áð ég hef ekki brjóst í mér
til að taka það af honum.
Hvað á ég að gera?
Unga mamma.
Eftir því, sem okkur er
sagt, er algerlega eðlilegt
og óskaðlegt, að þriggja ára
börn totti snuðið sitt. En
það er áríðandi, að snuðið
sé gott og sé ekki látiö
verða útvaðið og slitið. —
Börn hafa mismunandi á-
kafa þörf fyrir að sjúga og
það er mjög einstaklings-
bundið, hvenær þau hætta
því. En bam, sem er í góðu
jafnvægi og líður vel, hætt-
ir því af sjálfu sér, þegar
tími er til kominn.
j' Lr "
JA, VIO ERSIM SAMMALA
' j i
95
Hún er bceði
fallegri
og
fullkomnari“
AkÍY ##
CENTRIFUGAL
WASH " M0DEL620
EiNUM HNAPPI
veljið þér þvottakerfið, og
C.W. 620
© ÞVÆR,
(T) HITAR,
(T) SÝÐUR,
@ MARGSKOLAR,
(@ ÞEYTIVINDUR
ALLAN MIOII
-Bll EÍNI-
Sápuskammtar settir í strax — vélin skolar Alveg gangur
þeim sjálfkrafa niður á réttum tíma
hljóður
siolefn 1 Tekur sjálf inn sérstakt skolefni UH | ef þér óskið að nota það ■ 8 fffienn Tvívirk, afbragðs 1111180 þeytivinding
i lerhjalj ós festini 1 Þarf ekki að festast 1 niður með boltum
eli |{ Nœlonhúðuð að utan — finslípað, Sérlega |pilí||||[| II ryðfrítt stál að innan auðveld luHlljllltJ
Fullkomnasta og fallegasta
vélin á markaðinum
SÍMI 2 4420 - SUÐURGÖTU 10 - REYKJAVlK.
Sendið undirrit. mynd af FÖNIX C.W. 620
með nánari upplýsingum, m.a. um verð og greiðsluskilmáta
NAFI)4 .......................................
HEIMILI ...............-......................
TIL Fönix S.f. pósthólf 1421, Reykjavík
e. tbi. VIKAN 5