Vikan - 08.02.1968, Blaðsíða 15
Framhald á bls. 44.
John Lennon býr einhvers
staðar í norðurhluta Lundúna-
borgar. Heimilisfangið er ekki
gefið upp, og munu víst flestir
fara nærri um hvers vegna svo
er. Húsið er afar gamalt, reist í
virðulegum Tudor stíl úr stór-
um, rauðum múrsteinum. Úti-
dyrahurðin vekur athygli, stór
og viðamikil eikarhurð, og John
hefur látið mála hana í öllum
regnbogans litum — „psychadel-
ic“ heitir slíkt víst á útlendu
máli. Þetta er alveg í stíl við
Rolls Royce bifreið húsbóndans
og er ógerningur að lýsa lita-
dýrðinni með orðum. Allir þess-
ir litir eru undan penslum hol-
lenzku hjónanna Simon og Mar-
eschka, sem eru tíðir gestir á
heimili John, listamenn fram í
fingurgóma — eða svo segja
Bítlarnir.
Ekki hafa margir blaðamenn
fengið að litast um á heimili
John Lennon, en þeim sem veitzt
hefur sú æra, ber saman um, að
það beri greinilegt svipmót lista-
mannsins, sem þar býr. Allt
kvað vera þar á rú og stú: hljóð-
færi, myndir og málverk, skrýt-
in húsgögn, gamalt og nýtt,
blóm og aftur blóm, bækur og
auglýsingaspjöld upp um alla
veggi. Yfir sjónvarpstækinu
hanga tvö auglýsingaspjöld svo-
hljóðandi: „Ökuþórar velkomnir
í kirkjugarðinn" og „Þögn:
Sprengihætta!" Nokkrir lang-
bekkir mynda „tæknilega horn-
ið“ þar sem má sjá segulbands-
tæki, spólur og aftur spólur með
brotum úr tilbúnum Bítlalögum
og spólur með sérstökum „eff-
ekturn", hinum furðulegustu
hljóðum, sem kannski verður
Þcssi umfangsmikii lúður er eitt af
mörgum liljóðfærum á hcimili John
Lennon.
Hjólastóllinn er vinsælt ökutæki á
heimilinu!
Það Jkennir margra grasa á heimili Bítilsins!
Heina hiá Jilin Lennnn
Holienzkir listamenn skreyta píanóið
í vinnuherberginu. Þeir máluðu einn-
ig bílinn og útidyrahurðina í svipuðu
munstri!
6. tw. VIKAN 15