Vikan - 08.02.1968, Blaðsíða 44
Royal
IHSTANT PUDDING
, PK HILING
Unffir off aldnir njóta þess að borða
köldu Royal búðingana.
Bragðtegundir: —
Súkkulaði. karamellu. vanillu og
jarðarberja.
höfðu svipaðra hagsmuna að
gæta, eða hagsmuna hvers ann-
ars.
Hann fór upp í íbúðina og
blandaði sér áfengi í glas og fór
inn í setustofuna. Stóru glugg-
árnir vissu í suður, út yfir trjá-
toppana í borginni og hann sá
móa í vatnið í mislrinu. Pen-
ingarnir stóðu á gömlum merg
umhverfis þetta vatn, hugsaði
hann. Gamlir, góðir peningar.
Phelps, Keaver, Yates og fleiri.
Peningar úr borgarastyrjöldinni
og kannske fleiri. Ekki mínir
peningar, hugsaði hann. — Fólk-
ið mitt hefur verið hérna eins
lengi og þeirra fólk, dó með
þeim í öllum þeirra stríðum og
styrjöldum, en þess á milli dró
það fram lífið á snauðum kotum
úti í sveitinni. En svo einmitt á
réttum tíma kom einn af þessum
Kimbertonum utan úr sveitinni
inn í borgina með klaufhamar,
gamlan vörubíl, kagga með
saumi og taugar vasaþjófs. Svo
nú geta þau fyrirlitið mig fyrir
að hafa stóra og háa glugga, svo
ég geti litið niður á þau, og fyrir
að ég skuli eiga þá peninga sem
ég hef unnið mér inn sjálfur,
og kannske framar öllu öðru
fyrir það, að ég skyldi eignast
eina af þeirra fallegu, ungu kon-
um.
Framhald.
Heinia hjá
John Lennon
Framhald af bls. 15.
einhvern tíma blandað saman
við músikina í því skyni að búa
til eitthvað nýtt, eitthvað „psy-
chadelic". f hverju horni er há-
talari og út úr þeim öllum seitl-
ar hljóðlát músik. Indversk
músik. Klassisk músik. „All you
need is love“. Og músikin nær
alla leið út í bílskúrinn og út í
sundlaugina. Allan sólarhring-
inn.
Það er aðeins í vinnuherbergi
John að unnt er að komast í
snertingu við þögnina. Vinnu-
herbergið er hljóðeinangrað. —
Hér eru líka segulbandstæki og
hér hanga gítarar meistarans
hlið við hlið á veggjunum eins
og í öndvegi. Á gólfinu miðju
er píanó. Ef betur er að gáð má
einnig sjá orgel og enn eitt hljóð-
færi að auki, sem nefnist „mello-
tron“. Og það er nú gripur í
lagi — í stuttu máli sagt geymir
það í sér innspilaða segulbands-
búta, sem hræra má saman á
ýmsa lund og fást þannig ýmiss
konar hljóð — eftirlíkingar
flestra hljóðfæra, og það má
jafnvel stilla mörg hljóðfæri
saman í þessu eina hljóðfæri og
verður útkoman þá auðvitað
hljómsveit! John þykir mjög
vænt um þennan grip, og hann
segir að margar hugmyndirnar
að nýjum lögum hafi hann feng-
ið í gegnum mellotrónið.
44 VIKAN 6' tbI-