Vikan - 08.02.1968, Qupperneq 46
I
Nú byrja grímuböll-
in og því þarf að
fara að hugsa fyrir
fötunum. Það er um
að gera að hafa sem
minnst fyrir sauma-
skap og velja ódýr
efni, eða nota gam-
alt efni í fötin. Litlu
blómálfarnir tveir
hér næst til vinstri
krefjast ekki mikill-
ar vinnu. Bláklukk-
an getur verið í blá-
um eða fjólubláum,
ermalausum kjól og
um hálsinn er gerð-
ur grænn laufakragi.
Hatturinn er úr sama
efni og kjóllinn með
khikkulagi og þrem
grænum blöðum efst.
Rósin er í
grænum, ermalaus-
um kjól og utan yfir
hann er saumað
biaðlaga, bleikt pils
í nokkrum stykkjum.
Bleik kjusa og rósir J|
í hári og um úlnlið.
Neðar er Mjallhvít
í bláu vesti með
gylltum snúrum.
Blússan má vera
heldur stór, þannig
að hægt sé að binda
með gylltu bandi
tvisvar um ermar.
Hún er hvít og pilsið
líka, með biáum og
bleikum legginga-
böndum. Það er
heldur meira verk
við prinsinn. Bux-
urnar eru úr skær-
röndóttu efni, sömu-
leiðis púff-ermarnar,
vestið rautt öSrum
megin og grænt hin-
um megin, rauð ermi
grænu megin og
græn hjá því rauða.
Pierrette er sígild
grímuballs-stúlka.
Hún getur vcrið í
svörtum sokkabux-
um, stífu, hvítu und-
irpilsi, cn kjóllinn
er rauður og svartur
(il skiptis, rauðir
dúskar á cndunum.
Hvít, stífrykkt pífa í
háls og á ermmn.
Neðar er fíflið í
sterkum litum og
sjóræningjann vantar
sjaldan við þessi
tækifæri, cnda bún-
ingurinn auðveldur.
Bætið buxurnar á
hnjánum og tætið
þær svolítið að neð-
an (verða auðvitað
að vera ónýtar fyr-
ir), breitt, rautt belti
og klútur um höfuö-
ið, eyrnalokkar og
svört augnhlíf, það
er allt og sumt.