Vikan


Vikan - 08.02.1968, Qupperneq 49

Vikan - 08.02.1968, Qupperneq 49
»5S»S:SSSSSSðSSSSSSSSS»»5S8 l-l O N l VÖRUR 55 VÖRU R Angelique og sjóræninginn Framhald af bls. 23. hugsast að taka með sér þennan grip. Þegar hún uppgötvaði það hafði hún hálf skammast sín fyrir það og reynt að fela hann. Nú rétti hún Angelique spegilinn, sem tók að skoða sig vandlega í honum. — Ég veit að ég er komin meö fáein hvit hár, en hann gat ekki séð þau meðan ég var með skupluna á mér, nema fyrstu nóttina, þeg- ar ég kom berhöfðuð um borð í Gouldsboro. En þá var hárið á mér svo blautt, að hann hefði varla tekið eftir því. Að þessu sinni var hugur hennar allt öðru visi stemmdur, en þegar hún skoðaði sig i stólspeglinum, þegar henni hafði ekki komið til hug- ar að óska þess að heilla Rescator! Hún strauk flngri yfir kinnbeinin. Var hún að byrja að fá hrukkur? Kinnarnar voru kannske ofurlítið innfallnar, hafði ekki mýktarylur útiverunnar verið einmitt eitt af því sem hafði notið svo mikillar hylli í Versölum og gert Madame de Montespan svo afbrýðissama. En hvernig átti hún að vita hvernig þessi maður hugsaði til hennar? Þegar hann hlaut að bera hana saman við þá ímynd sem hann bar af henni í hjarta sér, sem unga stúlku. — Ég hef gengið I gegnum svo margt að það hlýtur að hafa skilið eftir sitt mark á mér. — Mamma, finndu mig, sagði Honorine. — Maðurinn með svörtu grimuna er stór og ljót.ur maður. Eg ætla að drepa hann! — Abigail, segðu mér í alvöru, heldur þú að fólk myndi segja að ég væri ennþá falleg. — Abigail var að brjóta saman föt með mestu rósemi. Hún lét með engum hætti uppi hve furðulegt henni fannst háttarlag Angelique. Eftir að hverfa svona heila nótt og allir höfðu imyndað sér að hið versta hafði gerzt, sagði hún eftir á að ekkert hefði gerzt, en bað um spegil. — Þú ert fallegasta konan, sem ég hef nokkru sinni séð, sagði hún með óumbreytanlegri röddu og þú veizt það vel. — Ég veit það ekki. Ég veit það ekki lengur, andvarpaði Angelique og lét hendur falla niður með hliðunum í örvæntingu. — Það sannast af þvi að allir menn heillast að þér, jafnvel þeir sem vita ekki af því, hélt Abigail áfram. — Þeir vilja fá að heyra þitt álit á málunum og leita eftir samþykki þinu, áður en þeir taka sér nokkuð fyrir hendur. Jafnvel þótt að það sé bros, aðeins ofurlitið bros ....... Sumir vilja eiga þig, út af fyrir sig og þeim sárnar, þegar þú lítur á aðra. Áður en við fórum frá La Rochelle sagði faðir minn oft að ef við tækjum þig með okkur myndi það stefna sálum okkar í voðalega hættu. Hann hvatti Maitre Berne hvað eftir annað til að kvænast þér, áður en við lögðum af stað i þessa ferð, svo það þýddi ekkert að jagast. um þig, þegar við kæmum um borð. Angelique hlustaði aðeins með öðru eyranum á það sem stúlkan var að segja, þótt, þegar öðruvísi hefði staðið á, hefði það haft töluverð áhrif á hana. Hún hafði aftur lyft litla speglinum. — Ég þyrfti að núa blómblöðum um vanga mér, svo litaskiptin yrðu betri, en því miður skildi ég allt mitt jurtasafn eftir í La Rochelle. — Ég æt.la að drepa hann, sönglaði Honorine hvað eftir annað, eins og það væri barnagæla. HONIG VÖRUR VÖRU R 6. tbi. VIKAN 49

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.