Vikan - 22.05.1968, Blaðsíða 2
r
A
K
VIKU BROS
— Ekkert kaffi fyrir mig,
þá get ég ekki sofnað.
— Segið þvottakonunni að
hætta að bóna stólfjandann.
— Mér finnst að söfnuðurirm
ætti að kaupa bíl handa
prestinutn.
— Það þýðir ekkert að tala
um peninga við mig, þú'^&izt
að ég er ekki gjaldkeri leng-
ur.
V
IÞESSARI viku
PÓSTURINN ..........................
ANGELIQUE OG SJÓRÆNINGINN ..........
ÉG HEF GAMAN AF ALLRI TÓNLIST ......
STUND GRIMMDARINNAR VARIR AÐ EILÍFU . .
EFTIR EYRANU .......................
TURNHERBERGIÐ ......................
TFIRGAF KONU OG BÖRN OG GERÐIST FLAKK-
ARI ................................
VÉLBYSSU-MOLLÝ .....................
HÚN FÆDDI SJÖBURA ..................
FYRIRMYNDAR ÍSLENZKT ÞJÓÐFÉLAG......
VIKAN OG HEIMILIÐ ..................
Bls. 4
BIs. 6
Bls. 10
Bls. 12
Bls. 14
BIs. 16
Bls. 18
Bls. 20
Bls. 22
Bls. 24
BIs. 46
VÍSUR VIKUNNAR:
Meðfram landi lónar ísinn
likt og floti til að sjá
á hörðu vori hækkar prísinn
helztu mjólkurvörum á.
Margur þótt á kaldan klaka
komist með sitt hafurtask
látið er í veðri vaka
að víða þróist svindilbrask.
Þrýtur öl og þverra vistir
þurran smella menn í góm
Seðlabankinn fé vort frystir
frystihúsin standa tóm.
GULLMERKIÐ
Tryggvi Gíslason, mag. art. fær Gullmerki Vikunnar fyrir skemmtilega
þætti sína um Daglegt mál, einkum niðurlag þáttarins 2£. apríl:
Ræðumaður einn, er talaði í útvarpið á dögunum, notaði orðatiltækið
,,að bera eitthvað úr býtum fyrir sinn snúð“! ,Rann þá mörgum kalt
vatn milli þils og veggjar og þótti orðtakið koma eins og þjófur úr heið-
skíru lofti og of seint vera að barna brunninn, áður en kálið væri komið
í ausuna/ . . . Eða ef við viljum hafa það, sem sannara er: ,,bera eitt-
hvað úr býtum“ og „hafa nokkuð fyrir snúð sinn,“ — og vona ég, að
engum hafi nú runnið kalt vatn milli skinns og hörunds og þótt þessar
athugasemdir koma eins og þruma úr heiðskíru lofti eða þjófur að
nóttu, en hafa verður í huga, að of seint er að byrgja brunninn, þegar
barnið er dottið ofan í. Hitt má einnig hafa í huga, að öllum geta orð-
ið á mismæli og allir eiga leiðrétting orða sinna.
r NJESTO
FORSlÐAN:
Ómar Ragnarsson vísar okkur veginn til hægri ó forsíðunni
að þessu sinni. Eins og allir vita er það á sunnudaginn kem-
ur, sem hægri umferð verður tekin upp. Til þess að minna
lesendur á það er þetta blað H-VIKA og auðvitað er ekki
annað hægt en fletta henni öfugt við það sem venja er —
nefnilega frá HÆGRI.
VIKAN — ÚTGEFANDI: HILMIR HF.
Ritstjóri: Sigurffur Hreiðar. Meðritstjóri: Gylfi Gröndal. Blaða-
maður: Dagur Þorleifsson. Útlitsteikning: Snorri Friðriksson
Dreifing: Óskar Karlsson. Auglýsingastjóri: Sigríður Þorvalds-
dóttir.
Ritstjórn, auglýsingar, afgreiðsla og dreifing: Skipholti 33. Símar 35320 —
35323. Pósthólf 533. VerS í lausasölu kr. 40.00. Áskriftarverð er 400 kr.
ársfjórðungslega, eða 750 kr. misserislega. Áskriftargjaldið grelðist fyrlr-
fram. Gjalddagar eru: Nóvember, febrúar, mai og ágúst.
„Skákin er ekki aðeins íþrótt
hugkvæmni og ályktunar —
hún er einnig skapgerðar-
leikur. Gaman er að fylgjast
með því hversu keppendur
reyna að leyna hugsunum
sínum yfir tafli. Sumum tekst
það með svipblekkingum, lát-
ast ekkert ætla eða vona, en
iða í skinninu af sigurþrá.
Aðrir eru yfirlitum eins og
þeir eigi heiminn, þó að skák-
in tapist þeim leik fyrir leik.
Þannig bregzt maðurinn við
umhverfi sínu og örlögum, ef
hann berst milli vonar og
ótta.“
Þetta er örlítið brot úr
næstu grein Helga Sæmunds-
sonar í þættinum í dagfari
nútímans. Að þessu sinni ræð-
ir hann um manntaflið.
Spælingar og stælar nefnist
skemmtileg syrpa af teikn-
ingum, sem Bjarni Jónsson
hefur teiknað fyrir Vikuna.
Hann bregður upp svipmynd-
um af skrautlega klæddum
táningum í alls konar spaugi-
legum stellingum.
Af þýddum greinum má
nefna grein um Ethel Kenne-
dy, Tággrönn eftir tíu bam-
eignir. Ethel er um margt
óvenjuleg kona og atorku
hennar er viðbrugðið, þótt
hún hafi lifað við allsnægtir
allt sitt líf. Um þessar mund-
ir styður hún mar.n sinn með
ráðum og dáð í hinni hörðu
kosningabaráttu hans.
Smásagan nefnist Spor í
snjó og er löng og spennandi
sakamálasaga úr safni Al-
freds Hitchcocks.
8 VIKAN 20-tw-
VIÐ FLETTUM FRÁ VINSTRI TIL HÆGRI
H - dagur
Á sunnudaginn færum við
okkur yfir á hægri vegar-
helming. Það sem til stóð að
við gerðum 1940, verður að
veruleika nú 28 árum síðar.
Löngu eftir að frumvarpið
um H-breytinguna varð að
lögum á hæstvirtu alþingi,
tóku mótmælaraddir að ber-
ast. Þær eru nú flestar
hljóðnaðar, ekki vegna þess,
að menn séu orðnir einhuga
um nauðsyn þessara ráðstaf-
ana, heldur hins, að öllum
mun ljóst nú orðið, að ekki
verður aftur snúið og þá verð-
ur að leggja að því alla
krafta að breytingin verði
sem farsælust.
Kostnaðarhliðin hefur ver-
ið mjög umrædd í sambandi
við breytinguna, af hálfu
andstæðinga hennar. Talað
hefur verið um, að nær væri
að leggja féð í annað, eins
og nú er háttað fjármálum
eyríkis vors. Fæstir hafa leitt
hugann að því, að bíleigend-
ur einir bera allan kostnað
af breytingunni með sérstök-
um skatti. Sá skattur hefði
aldrei verið á lagður, hefði
umferðarbreytingin ekki
komið til, og því aldrei mynd-
azt sá sjóður, sem H-and-
stæðingar vilja nú ausa af í
alla skapaða hluti.
Um þessa skattlagningu,
eins og svo margar aðrar
álögur á bíleigendur í þessu
landi, þar sem bíllinn er eina
farartækið á landinu, má ef-
laust deila. Hins vegar er
hún að mínum dómi vægari
og bærilegri en til dæmis
sektin við því að hlusta á
útvarp í bíl sínum.
En allt um það: Á sunnu-
daginn verður H-umferð stað-
reynd á götum okkar. Við
verðum að laga okkur að
breyttu aksturslagi. Þess
vegna er það mjög áríðandi,
að kynna sér reglurnar og
temja sér strax að fara eftir
þeim; þá skapast vonandi
aldrei aftur það ástand, sem
var, að meira að segja at-
vinnubílstj órar um áratugi
falli sumir hverjir á almennu
ökuprófi, séu þeir reknir í
það á ný! S H.
þad
næst bezta
nægirekki
ÞESS VEGNA BJÓÐUM VIÐ VANDLÁTUM VIÐSKIPTAVINUM VERÐLAUNABÍLINN
HBS
VAUXHALL
VICTOR’68
í Morgunblaðinu 21. nóv. s.l. segir blaðamaður frá stærstu bílasýningu Bret-
lands í Earls Court í London og m. a. þetta um nýja Victorinn:
Sú enska bifreið, sem mesta
athygli héfur vakið á sýning-
unni í Earls Court, er Vaux-
hall Victor 1600 og 2000. Þessi
bifreið er eins ný og bifreiðar
gerast, þ.e.a.s. hún hefur verið
byggð upp frá frumatriðum, án
iþess að stuðzt hafi verið við
eldri gerðir af Vauxhall nema að
mjög litlu leyti.
Sýningargripur Vauxhall í
Earis Court vakti fyrst athygli
sýningargesta vegna nýrra út-
lina. Yfirbygging bifreiðarinnar
hefur verið teiknuð upp á nýtt
undir greinilegum áhrifum frá
General Motors.
Á sýningarpalli Vauxball voru
sýnis'horn af ýmsum atriðum i
undirvagni og stjórntækjum bif-
reiðarinnar, sem segja má að aliT
sé nýtt. Vélin er til dsemis ál-
gjörlega ný áf nálinni og er ár-
angur af fimm ára undirbún-
ingsrannsóknum. Uþphaflega
var markmið framleiðendanna að
byggja vél, sem framleitt gæti
50% meiri orku en þáverandi vél
ar Vauxhall, en væri samt ekki
þyngri en þær.
Þetta hefur þéim tekizt með
ýmsum lagfærir.gum og nýjung-
um. Nýjungar f vélinni eru m.a.
þær, að kambásinn hefur verið
fluttur upp fyrir ventlana tii
þess að losna við undirlyftu-
stengur. Vélinni hefur verið hall
að um 45 gráður til þess að
losna við hristing og fjölda-
margt annað hefur verið gert
til þess að gera vélina sem bezt
úr garði.
Gírkassi Vauxhail Victör er
tekinn úr eldri gerðum; en
tengslin og ailt, sem þeim fylg-
ir er nýtt.
Fjöðrun á framhjólum er svip-
uð og í eldri gerðum, en að
aftan eru. fljótandi öxlar festir
við skúffuna með örmum. Ofan
á tengiörmunum eru gormar og
höggdeyfar. Hemlar á Vauxhall
2000 eru diskahemlár að fram-:
an, en skálar að aftan. Á Vaux-
hall 1600 eru skálar að • aftan
og framan.
Að innan hefur Vauxhall Vict-
or tekið gjörbreytingum, sem
flestar miðast við að fullnægja
kröfum Bandaríkjamanna um
öryggi.
Undirritaður óskar eftir nánari upplýsingum um NÝJA VICTORINN
NAFN
HEIMILISFANG
'68^1
I
_ I
I
Nýi Victorinn er að verða metsölubíll í Evrópu. Sýningarbíll á staðnum.
VAUXHALL- BEDFORD UMBOÐIÐ
Ármúlu 3, stmi 38 900.
2o. tbi. VIKAN 2