Vikan


Vikan - 22.05.1968, Blaðsíða 33

Vikan - 22.05.1968, Blaðsíða 33
EINKAUMBOÐ: 1. GUÐMUNDSSON & CO. H.F., REYKJAVÍK Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): Gættu þess að gerðir þínar stjórnist ekki af öfund- sýki. Þér er hollt að gefa gaum að þessari viðvörun, því afleiðingarnar yrðu þér sízt til vegsauka. Haltu þig í hóp með eldri félögum. ^ nilllhuff WW Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí): Þú hefur mikið að gera, reyndar of mikið. Skynsam- legast fyrir þig væri að leita aðstoðar til að létta nokkuð á þér. Þegar minnst vonum varir — og á ólíklegum stað, skeður nokkuð óvænt. fl Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní); Þú hefur fengið hlutverk sem þú unir mjög vel við. Ættingi þinn leggur fyrir þig spurningu sem þú átt erfitt með að svara í fullri einlægni. Þú lendir i miklum þrætum við nágrannana. Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí): Áætlun þín um vinnuhagræðingu stenzt ágætlega. Ef þú lætur letina ekki ná tökum á þér ertu örugg- lega kominn yfir það versta. Blandaðu sem fæstum inn i tilraunir þínar. Ljónsmerkið (24. júií — 23. ágúst): Þú kynnist nánar persónu sem þú hefur veitt mikla eftirtekt. Ef þú ferð rétt að geturðu vænzt mikils af kynnum ykkar. Líkur eru að ráðagerðir þínar verði óframkvæmanlegar. Meyjarmerkið (24. ógúst — 23. september); Kvöldstundirnar verða einkanlega heppilegar til hvers konar félagsstarfa. Það verður mun minna um rómantík en þú væntir á föstudagskvöld, en þú skemmtir þér prýðilega. Vogarmerkið (24. september — 23. október) Gættu þess að styggja ekki þá sem þér eru kær- astir, þótt þú eigir við vandamál að etja. Þú færð gesti sem styrkja ákveðinn grun þinn. Þú færð ginn- andi tilboð upp úr helginni. Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Gerðu þér grein fyrir að fleiri hafa lög að mæla en þú. Reyndu að vera sanngjarnari í dómum þínum. Gamalt atvik löngu grafið verður þér mjög hug- stætt vegna atburðar á laugardag. Bogamannsmerkið (23. nóv. — 21. desember): Ættingjar þínir gera þér mikinn greiða, þar sem þú ert í vanda staddur. Kjóstu einveru umfram annað til að hvíla þig og gera þér grein fyrir stöðu þinni. Heillatala er þrír. Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Sökum trassaskapar hefur góður hlutur gengið úr greipum þínum. Reyndu að efla samkennd heimilis þíns og styrkja fjölskylduböndin. Innheimtumenn ganga hart að þér. Föstudagur flytur þér happ. Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar): Áður en yfir lýkur koma margar tafir 1 fran kvæmdir þ:nar. Sóttu hughreystingu til vinar þír hann hefur alltaf eitthvað jákvætt til málanna j leggja. Tvær merkilegar persónur hittirðu um heþ Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz); Það verður annríkt hjá þér og líkur að þú þurfir : gera sama verkið oftar en einu sinni. Þú færð frét ir sem koma þér í vandræði. Þú ferð í langa öki ferð mjög bráðlega. SS VTKAN 20-tw- VIÐ FLETTUM FRÁ VINSTRI TIL ískalt Pepsi-Cola hefiir hið lífgandi bragð NJÓTIÐ UFSINS, þið eruð á Pepsi aldrinum. PEPSI-COLA & MIRINDA, ERU SKRÁSETT VÖRUMERKI, EIGN PEPSICO INC., N.Y. VIÐ FLETTUM FRÁ VINSTRI TIL HÆGRI 20. tbi. VIKAN 32

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.