Vikan - 22.05.1968, Qupperneq 33
EINKAUMBOÐ:
1. GUÐMUNDSSON & CO. H.F., REYKJAVÍK
Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl):
Gættu þess að gerðir þínar stjórnist ekki af öfund-
sýki. Þér er hollt að gefa gaum að þessari viðvörun,
því afleiðingarnar yrðu þér sízt til vegsauka. Haltu
þig í hóp með eldri félögum.
^ nilllhuff
WW
Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí):
Þú hefur mikið að gera, reyndar of mikið. Skynsam-
legast fyrir þig væri að leita aðstoðar til að létta
nokkuð á þér. Þegar minnst vonum varir — og á
ólíklegum stað, skeður nokkuð óvænt.
fl
Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní);
Þú hefur fengið hlutverk sem þú unir mjög vel við.
Ættingi þinn leggur fyrir þig spurningu sem þú átt
erfitt með að svara í fullri einlægni. Þú lendir i
miklum þrætum við nágrannana.
Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí):
Áætlun þín um vinnuhagræðingu stenzt ágætlega.
Ef þú lætur letina ekki ná tökum á þér ertu örugg-
lega kominn yfir það versta. Blandaðu sem fæstum
inn i tilraunir þínar.
Ljónsmerkið (24. júií — 23. ágúst):
Þú kynnist nánar persónu sem þú hefur veitt mikla
eftirtekt. Ef þú ferð rétt að geturðu vænzt mikils
af kynnum ykkar. Líkur eru að ráðagerðir þínar
verði óframkvæmanlegar.
Meyjarmerkið (24. ógúst — 23. september);
Kvöldstundirnar verða einkanlega heppilegar til
hvers konar félagsstarfa. Það verður mun minna
um rómantík en þú væntir á föstudagskvöld, en þú
skemmtir þér prýðilega.
Vogarmerkið (24. september — 23. október)
Gættu þess að styggja ekki þá sem þér eru kær-
astir, þótt þú eigir við vandamál að etja. Þú færð
gesti sem styrkja ákveðinn grun þinn. Þú færð ginn-
andi tilboð upp úr helginni.
Drekamerkið (24. október — 22. nóvember):
Gerðu þér grein fyrir að fleiri hafa lög að mæla en
þú. Reyndu að vera sanngjarnari í dómum þínum.
Gamalt atvik löngu grafið verður þér mjög hug-
stætt vegna atburðar á laugardag.
Bogamannsmerkið (23. nóv. — 21. desember):
Ættingjar þínir gera þér mikinn greiða, þar sem þú
ert í vanda staddur. Kjóstu einveru umfram annað
til að hvíla þig og gera þér grein fyrir stöðu þinni.
Heillatala er þrír.
Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar):
Sökum trassaskapar hefur góður hlutur gengið úr
greipum þínum. Reyndu að efla samkennd heimilis
þíns og styrkja fjölskylduböndin. Innheimtumenn
ganga hart að þér. Föstudagur flytur þér happ.
Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar):
Áður en yfir lýkur koma margar tafir 1 fran
kvæmdir þ:nar. Sóttu hughreystingu til vinar þír
hann hefur alltaf eitthvað jákvætt til málanna j
leggja. Tvær merkilegar persónur hittirðu um heþ
Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz);
Það verður annríkt hjá þér og líkur að þú þurfir :
gera sama verkið oftar en einu sinni. Þú færð frét
ir sem koma þér í vandræði. Þú ferð í langa öki
ferð mjög bráðlega.
SS VTKAN 20-tw-
VIÐ FLETTUM FRÁ VINSTRI TIL
ískalt Pepsi-Cola hefiir hið lífgandi bragð
NJÓTIÐ UFSINS,
þið eruð á Pepsi aldrinum.
PEPSI-COLA & MIRINDA, ERU SKRÁSETT VÖRUMERKI, EIGN PEPSICO INC., N.Y.
VIÐ FLETTUM FRÁ VINSTRI TIL HÆGRI
20. tbi. VIKAN 32