Vikan - 22.05.1968, Page 5
Síðan ýti ég við tveimur
tönnum í neðri góm og þær
detta báðar, en í staðinn sé
ég að er kominn einn jaxi,
sem líkist seglskipi í lag-
inu. Hann er nákvæmlega
eins og litlu drengjaskipin,
sem eru með strekktum
þræði í staðinn fyrir seglin.
Finnst þér þetta ekki
undarlegur draumur? Ég
treysti þér til að ráða hann
fyrir mig, Póstur góður.
Með fyrirfram þakklæti.
Þrítug fjögurra
barna móðir
Við ráðum drauminn á
þann !hátt, að þú munir
eignast tvö börn til viðbót-
ar. Anna'ð verður stúlka
(hvíta framtönnin), en hitt
drengur (jaxlinn sem líkt-
ist seglskipi). Stelpan verð-
ur lítil og nett, en strákur-
inn stór og myndarlegur.
OG ANNAR DRAUMUR . . .
Kæri Póstur!
Þar sem ég hef oft séð,
að þú leysir vel úr vand-
ræðum fólks, datt mér í
hug, að ef til vill myndir
þú reynast mér hjálplegur
við að ráða tvo drauma,
sem mig hefur dreymt.
Mér fanost ég vera að
fara í bæinn (Ég bý
skammt frá kaupstað)
ásamt systur minni. Ég
ætlaði að ná í áætlunarbíl
og komast upp í fjall, því
að þar átti að fara að slíta
skíðalandsmóti. Mér verð-
ur litið til fjallsins og finnst
mér þá allt í einu, að það
sé orðið snjólaust og fagur-
grænt og heiður og blár
himinn. f miðri fjallsbrún-
inni blöktu tveir fánar,
stórir og fallegir. Ég hugs-
aði með mér. að nú væri
ekki gott í efni: það væri
ekki hægt að vera á skíð-
um og þessvegna ómögu-
legt að slíta mótinu. Meðan
ég hugsaði um þetta, fannst
mér fánarnir koma svíf-
andi til mín og svífa ein-
kennilega í kringum mig.
Ég get ekki lýst því al-
mennilega. Og lengri varð
draumurinn ekki.
Hinn drauminn dreymdi
mig fyrir fjórum mánuðum.
Mér fannst ég vera innan
um fjölda fólks og hjá mér
sat ungur maður. Hann
rétti mér gullhring og tók
ég silfurhlring af Vinstri
hendi (sem ég geng alltaf
með í verunni) og setti
gullhringinn í staðinn.
Hann glansaði svo fallega.
Meðan ég virti hann fyrir
mér, hugsaði ég, hvað
væri asnalegt að trúlofa sig
innan um fólk, en fólkið
veitti okkur enga athygli.
Svaraðu mér fljótt og
vel, Póstur minn!
Svo þakka ég þér fyrir
Vikuna. Hún er skemmti-
legasta blaðið sem ég les.
Sveitapía.
Einhvern vegínn l'innst
okkur, að samband sé milli
þessara tveggja drauma.
Þeir tákna, aS miklar
breytingar verði í einka-
málum þínum innan
skamms. Skíðabrekkan sem
allt í einu var orðin fagur-
græn táknar, að ástarsam-
band takist milli þín og
einhvers manns, en fyrstu
kynni ykkar verði kulda-
leg. Fánarnir, sem svífa í
kringum þig eru gæfu-
merki. Síðari draumurinn
táknar vafalaust trúlofun.
Þú óttast að ættingjum
þínum líki ekki við manns-
efnið, en sá ótti er ástæðu-
laus.
HAFIZT VERÐI HANDA . . .
Póstur góður!
Ég var að lesa greinina
„Víðar stríð en í Víetnam“
eftir Dag Þorleifsson. Ég er
honum hjartanlega sam-
mála um öll þau atriði, sem
hann tilgreinir. Mér finnst
þau öll deginum ljósari. En
allir vita, að ein blaðagrein
hefur ekki mikil áhrif á
yfirvöld þessa lands. Ég
leyfi mér að koma með
nokkrar tillögur varðandi
þetta mál:
1. Að hafin verði hressi-
leg áróðursherferð til
stuðnings Kúrdistan, Biafra
svo og Suður-Týról.
2. Hafizt verði handa og
safnað undirskriftum undir
skjal varðandi þetta mál,
sem síðan yrði sent beint
til ríkisstjórnarinnar og
þess krafizt, að fsland verji
hið undirokaða og kúgaða
fólk á vettvangi hinna sam-
einuðu þjóða, sem eru
reyndar ekki sameinaðri en
svo, að það heyrir til stór-
tíðinda, ef tillaga kemst í
gegnum öryggisráðið.
Pétur.
J
B Ú S L w O Ð
SKATTHOL MEÐ SPEGLI OG SKRIFBORÐSPLÖTU.
VERÐ KR. 6.900,00.
PÓSTSENDUM.
BUSLOÐ
HÚSGAGNAVERZLUN
VIÐ NÓATÚN — SÍMI 18520
NY ELDAVEL, GERÐ 6604,
MEÐ 4 HELLUM, STÓRUM
STEIKAR- OG BÖKUNAR-
OFNI. Yfir- og undirhiti
fyrir steikingu og bökun,
stýrt með hitastilli. Sér-
stakt glóðarsteikar eli-
ment (grill), stór hita-
skúffa, Ijós í ofni.
VELJUM ÍSLENZKT-
ÍSLENZKAN IÐNAÐ
VIÐ FLETTUM FRÁ VINSTRI TIL HÆGRI
20. tbl.
VIKAN 4
ASTMAR