Vikan - 22.05.1968, Side 10
m
ti 1
;
>iliv:i;
§§p§piS<w
Akureyringar eru orðnir tíðir gest-
ir í sjónvarpinu, þótt það sj«áist
ekki enn í heimabæ þeirra. Hér
eru þrjár myndir af hljómsveit
Ingimars Eydal við upptöku í
sjónvarpssal. Hljómsveitin hefur
flutt þrjá sjálfstæða þætti; sá
þriðji var fluttur í síðustu viku.
Á efstu myndinni eru talið frá
vinstri: Ingimar Eydal, Helena
Eyjólfsdóttir, Finnur Eydal, Þor-
valdur Halldórsson, Friðrik Bjarna-
son og Hjalti Hjaltason.
Tónlistarlíf stóð með blóma í
Menntaskólanum á Akureyri á
liðnum vetri. Hér syngur Blandað-
ur kvartett MA við undirleik Ingi-
mars Eydal, sem hefur æft kvart-
ettinn. Talið frá vinstri eru Sig-
rún Harðardóttir, Valgerður Jóna
Gunnarsdóttir, Jón Aðalsteinn
Baldvinsson og Þórhallur Braga-
son. O
22 MA félagar liafa oft
komið fram á Akurcyri í
vetur og notið mikilla vln-
sælda. Við hcyrðum og sá-
um þá syngja í sjónvarp-
inu hér á dögunum. Stjórn-
andi kórsins cr Sigurður
Dcmentz Franzson, cn und-
irleik annaðist hljómsveit
Ingimars Eydal.
ÞAÐ VAR MIKIÐ um að vera í sjónvarpssal, þegar við litum þangað inn strax eftir
páskana. Þrjátíu manna hópur hafði komið frá Akureyri flugleiðis kvöldið áður til
að taka þátt í þremur sjónvarpsþáttum, sem allir hafa nú verið fluttir: 22
MA-félagar sungu undir stjórn Sigurðar Demenz Franzsonar við undirleik hljómsveitar
Ingimars Eydal. Þeir félagar sungu bæði íslenzk lög og lagasyrpur úr vinsælum, er-
lendum söngleikjum. Fyrir öðrum þættinum stóð Blandaður kvartett MA. I kvartettin-
um er meðal annars Sigrún Harðardóttir, sem áður hefur komið fram í sjónvarpinu
og vakið athygli með söng sínum. Þennan kvartett hefur Ingimar Eydal æft og leikur
undir með honum. Þriðji þátturinn er svo þáttur með hljómsveit Ingimars Eydal ásamt
söngvurunum Helenu Eyjólfsdóttur og Þorvaldi Halldórssyni.
Við náðum tali af Ingimar Eydal hljómsveitarstjóra, en hann kemur við sögu í öll-
um þessum þáttum meira eða minna. Við brugðum okkur inn ( búningsherbergi og
spjölluðum við hann í fáeinar mínútur.
— Hvað hefur hljómsveit þín leikið oft í sjónvarpið áður?
— Þetta er þriðji þátturinn okkar. Að þessu sinni leikum við nýjustu dægurlögin,
en einnig sígild lög frá ýmsum þjóðum, eitt amerískt, annað franskt, þriðja ungverskt
og svo framvegis.
Við reynum að spila sem fjölbreyttasta tónlist, enda er nauðsynlegt fyrir hljómsveit
á Akureyri að geta gert það. Uti á landi þurfa hljómsveitir að vinna á miklu breiðari
grundvelli en nauðsynlegt er hér í höfuðstaðnum. Hér geta menn leyft sér meiri sér-
hæfingu. Við þurfum að sjálfsögðu að geta leikið öll nýjustu dægurlögin og við þurf-
um líka að annast undirleik. Við lendum jafnvel í því að spila verk eftir gömlu meist-
arana.
— Ertu hrifinn af bítlatónlistinni?
— Já, þetta er ágæt tónlist, þegar mestu öfgarnar hafa verið slípaðar af. Ðrezku
Bítlarnir hafa tekið miklum framförum frá því að þeir komu fyrst fram, og eru nú
orðnir viðurkenndir listamenn. Eg hef persónulega gaman af allri tónlist, ef hún er
vel unnin.
★
Ingimar Eydal er 31 árs og hefur verið hljóðfæraleikari að atvinnu frá 1955. Hann
hefur alltaf leikið á Akureyri, nema einn vetur, sem hann var á Laugarvatni og annan
vetur, sem hann lék stundum á Hótel Borg. Hann var þá við nám í Kennaraskólanum.
Síðustu fimm árin hefur hljómsveit hans leikið í Sjálfstæðishúsinu á Akureyri, og
notið mikilla vinsælda.
Framhald á bls. 37.
EGHEF
GAMAN AF ALLRI
SEM ER VEL RNNIN
LITIÐ INN í SJÖNVARPSSAL
OG SPJALLAÐ í TÍU MÍNÚTUR
VIÐ INGIMAR EYDAL
HLJÖMSVEITARSTJÖRA
FRÁ AKUREYRI
11 VIKAN 20 tl)I-
VIÐ FLETTUM FRÁ VINSTRI TIL HÆGRI VIÐ FLETTUM FRÁ VINSTRI TIL HÆGRI
20. tbi. VIKAN 10