Vikan - 22.05.1968, Qupperneq 24
--xw- V' ;-
-^§>\ ' •< -\:'- \ -
■-" , Éiilll -\\V '
i s i
::
:■ '
'
:: V
.
|;f ;■■■■:; ■
mgmmm
.....
iilif
\ÍS:VVí:í:
.:
wr
Sumarbústaður í túninu austan við Saltvíkurbæinn. Þetta er nýlegt hús og í
því eru margar vistarverur. í stofunni (gluggarnir hægra megin) hélt lögregl-
an kyrru fyrir þær helgar, sem Saltvík var opin í fyrra.
Baldvin er 23 ára að aldri, trúlofaður og á eitt
barn. Hann starfar á auglýsingadeild Morgun-
blaðsins og sér um unglingaþátt í því blaði.
Þess utan er hann umboðsmaður skemmti-
krafta.
Sviðið er hlað á sveitabæ. í
forgrunni til hægri er véla-
geymsla, aftar á sviðinu er hlaða
og á bak við hana fjós og súr-
heysturn. Vinstra megin er lítið
hús og annað stærra innar. í
bakgrunni er Kollafjörðurinn og
handan við hann Álfsnes og Þern-
ey þar fram undan, í fjarska
grillir í Reykjavík. Á miðju sviði
er Ramblerinn, sem við vorum
að stíga út úr, við Vikumenn og
Baldvin Jónsson, framkvæmda-
stjóri þessa staðar.
Og leikurinn hefst með spurn-
ingunni: —• Baldvin; staðurinn
Saltvík, hvað er það?
— Eins og er ekki mikið, en
hann getur orðið mikið. Það er
von mín, að staðurinn geti orðið
miðstöð ungs fólks, fyrst og
fremst ungs fólks, en einnig kær-
kominn staður öllum hinum eldri;
að hér geti ungt fólk komið og
skemmt sér, starfað og unað, að
það geti boðið foreldrum sínum
að koma að sjá og heyra, að
unga fólkið skipuleggi og starf-
ræki sjálft þennan stað og sjái
um að allt fari fram eftir áætlun;
að hér verði ekki áfengisneyzla
og þó engin boð og bönn, heldur
verði unga fólkinu hér fullkom-
lega treyst í einu og öllu fyrir
því, sem hér er verið að bjóða
því, og ég veit, að ekki stendur
á þvi opinbera að koma til móts
við unga fólkið, svo framarlega,
sem það sýnir einhvern áhuga.
- - Nú hefur það opinbera þeg.
ar rétt fram höndina með því að
leggja til slaðinn. Hvaða aðstaða
er þá hér fyrir unga fólkið?
— Eins og staðurinn er núna,
er hann gersamlega óunninn. En
hérna standa þessi hús, sem eru
öll í mjög góðu ásigkomulagi, og
þau er hægt að nýta ótrúlega
mikið. Svo við skulum líta á þau.
Hér er gömul birgðageymsla og
áhaldahús. Fyrir okkur vakir að
koma upp leiktækjum í þessu
húsi. Rnattborðsleikjum, spilum,
töflum, og þess háttar. Það þarf
ekki að leggja í mikinn kostnað
til þess, setja í það gólf og mála
veggina. Það þarf alls ekki að
vera fínt, en þó snyrtilegt.
— Það eru leiktæki hér inni
nú þegar. Traktor og múgavél.
Já. Þau heyra raunar ekki
Saltvík til, þau eru frá Amar-
holti, en ráðsmaðurinn þar hefur
litið eftir staðnum í vetur. Hér
er svo aðalhúsið, hlaðan. f hana
hefur þegar verið steypt gólf, og
meiningin að setja jafnvel í hana
betra gólf. Farketgólf. Að öðru
leyti á ekki að breyta hér miklu,
aðeins se.tja upp betri lýsingu og
skemmtilegri myndir á veggina.
Þessar myndir, sem þið sjáið nú
hér, eru eítir dansgepti frá í
fyrra, við lukum skemmtuninni
þá með því að láta gestunum í
té málningu og svo fengu þcir
að beita hugmyndafluginu.......
Næst göngum við inn í á að
gizka 100 kúa fjós og Baldvin
heldur áfram:
— Þetta er það, sem næst ligg-
iní fyrir. Það er að brjóta niður
þessa bása þannig að þetta verði
ekki lengur f jós, heldur sctustofa.
Einnig á að brjóta breiðari dyr
inn í hlöðuna, svo setustofan
og danssalurinn séu í tengsl-
um. Hér innar af er svo
annar hluti hlöðuimar, og verði
hlaðan frammi ekki nógu stór, er
Iítið verk að rífa héðan út súg-
þurrkunarstokkana og setja í
fjalagólf, og þá er kominn annar
jafn stór danssalur, og báðir í
nánum tengslum við setustofuna.
Setustofan á að geta orðið einkar
vistleg, hér er lágt undir loft og
hlýlegt. En við þurfum að fjar-
lægja beizlurnar og fylla upp í
flórana.
— Það væri nú gott að . hafa
brynningartækin áfram ....
■— Hérna í hinum endanum er
svo gengið inn í súrheysturninn.
Þar langar m|ig að setja upp
diskótek, þar sem verði alveg
botnlaus hávaði, einmitt það, sem
sumir unglingar vilja. Ég hef
hugsað mér að setja bekk héma
hringinn og plötuspilara á
miðjuna og liátalara, þrjá eða
fjóra, innan í turninn og upp eftir
honum, og efst að utanverðu há-
talara út yfir svæðið. Þá geta þeir
verið hér, sem vilja lilusta á
rleglulegan hávaða, þótt hljóm-
listin úti verði lægra stillt. Og
turninn er það mikill um sig, að
það er vel hægt að gera hlýlegt
hér inni. Og þetta cr ekki í ncin-
um tengslum við salinn, þótt
dansað sé þar . . .
Var eilthvað af því, sem
hér var unnið í fyrra, gerl i
25 VIKAN zo-tbl
VIÐ FLETTUM FRÁ VINSTRI TIL HÆGRI