Vikan


Vikan - 10.10.1968, Page 13

Vikan - 10.10.1968, Page 13
stirðlega. - - Við skulum • heldur athuga hvað fengizt hefir fyrir þessa peninga ....... — Þá verðum við að flýta okkur, sagði Bosinney. — Ég þarf að komast nógu snemma til borgarinnar til að komast í leikhúsið með June. Soames horfði á hann, út undan sér. — Þið eruð boðin til mið- degisverðar hjá okkur fyrst, sagði hann. Þessu svaraði Bosinney ekki. Soames leit upp og horfði yfir unaðslegt landslagið. Allt angaði af mold og gróandi grasi, eftir næturregnið. Á gamla eikartrénu var brumið að springa út, og íuglasöngurinn fyllti loftið. Það var einmitt á slíkum degi að Irene hafði loksins látið und- an þrábeiðni hans og lofað að giftast honum. En hann hafði orðið að lofa henni því að ef hjónaband þeirra yrði ekki hamingjusamt, skyldi hún fá fullt frelsi aftur. — Er það loforð? hafði hún spurt í áköfum tón. Og nú fyrir blómailmurinn. Unnusti hennar og írene stóðu innan um blóma- skrúðið og sneru bökum að henni. June starði á þau og kinn- ar hennar urðu rjóðar og augun skutu gneistum. — Komdu ein á sunnudaginn, þá getum við skoðað húsið í næði, sagði Bosinney. Irene leit upp og horfði á hann, og það var ekkert sem minnti á d.aður í augnaráði hennar. Nei það var annað og miklu verra .... það var augnaráð konu, sem var hrædd um að koma upp um til- finningar sinar. — Ég er búin að lofa Swithin frænda að fara í ökuferð með honum á sunnudaginn. — Þessum feita? Fáðu hann þá til að aka þér út að Robin Hill. Þú verður að koma þangað... Ég hélt þú vildir hjálpa mér. — Það vil ég líka, sagði Irene, og það var ekki laust við að það kenndi titrings í röddinni. Þá gekk June út um opnar garðdyrnar. — Eruð þið að tala um húsið? Ég hefi ekki séð það ennþá, eigum við ekki að fara þangað ....... . . nokkrum dögum hafði hún minnt hann á þetta loforð. — Vitleysa, hafði hann svarað, —- slíku og þvílíku get ég aldrei hafa lofað! En nú mundi hann greinilega eftir því, og hann fékk óbragð í munninn við tilhugsunina. Það var alveg ótrúlegt hvað hægt var að fá menn til að lofa, þegar þeir voru ástfangnir. En hann myndi gera það aítur, ef hann gæti eitthvað blíðkað hana. En það dugði ekki, Irena var og varð áfram köld .... Klukkan sjö um kvöldið kom June heim til Irene og Soames. Stofustúlkan sagði henni að Bosinney væri í dagstofunni, og að frúin væri að hafa fataskipti. — Þá fer ég beint inn, sagði June. — Þér skuluð ekkert reka á eftir frú Forsyte. Hún opnaði varlega dyrnar að dagstofunni, til að koma honum á óvart, og angan af jasmínum streymdi á móti henni. Þá heyrði hún rödd Philip Bosinneys: — Það er svo margt, sem ég vildi segja, en okkur gefst ekki tími til þess.... Og Irene svaraði: — En við borðið, þá .... — Ó, þar er ekki hægt að tala saman .... June gekk hægt að glugganum út að bakgarðinum. Þaðan kom á sunnudaginn, öll þrjú? Irene var orðin náföl. — Ég ætla í ökuferð með Swithin frænda. — Swithin frænda, þú þarft ekki að taka neitt tillit til hans. Irene sagði, dálítið kuldalega: — Ég er vön að standa við lof- orð mín .... Það heyrðist fótatak fyrir aftan þau. Það var Soames. — Ef þið eruð tilbúin, þá er maturinn það líka, sagði Irene, og leit í kringum sig með daufu brosi. Bosinney og June gengu hljóð inn í leikhúsið. Það var búið að slökkva ljósin og sýningin var nýbyrjuð. Þetta var í fyrsta sinn sem June sat á svölunum í leikhúsinu. Frá því hún var lítil, hafði hún alltaf setið á beztu stöðum í leikhúsinu, við hlið afa síns. Hún hafði hlakkað mjög mikið til þessa kvölds, það var í fyrsta sinn sem hún fékk að fara út með Bosinney, án þess að hafa gæzlukonu með. Það var vegna þess að afi hennar hélt að þau væru hjá Soames. Jane vonaði af öllu hjarta að þeim tækist að finna aftur glaðlegan og hressandi tón, sem þau höfðu ekki að Framhald á bls. 45. 4o. tw. vikAN 13

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.