Vikan - 10.10.1968, Blaðsíða 14
SOPHIA LWEN
06 HÖLItN
[ SOLINNI
Hátt uppi í hæðunum í útjaðri borgarinnar Marino,
sautján mílum frá Róm, stendur glæsileg höll. í lóðina
og trjágarðinn kringum höllina er plantað dýrðlegu
blómaskrúði, og þar er stór sundlaug og geysistór ver-
önd. í höllinni eru fimmtíu herbergi, full af fögrum hús-
gögnum og ómetanlegum listaverkum. Þessi höll, sem er
frá átjándu öld, er heimili Carlos Ponti og Sophiu Lor-
en, og þarna safnast frægasta fólk heimsins saman í
kringum þau, eins og býflugur.
Það er alltaf eitthvað leyndardómsfullt við Sophiu
Loren, ekki svo mjög við það sem við vitum, heldur
það sem almenningur ekki veit. Hún er nú orðin þrjá-
tíu og fimm ára, og er enn jafn forvitnileg.
Hún leikur ekki eins mikið í kvikmyndum nú, eins
og fyrir þrem árum, og eyðir nú stöðugt meira af tíma
sínum i höllinni sinni. Hún tekur aðeins á móti gestum,
þegar maðurinn hennar er heima, en hann hefur skrif-
stofu í Róm, París og New York, svo hann er á stöðug-
um ferðalögum. En hvar sem hann er staddur í heim-
inum, hringir hann til Sophiu á hverju kvöldi klukkan
kortér yfir sjö.
Framhald á bls. 40.
•y, ty/////*. /
: ■
14 VIKAN 40-tbl'