Vikan


Vikan - 10.10.1968, Blaðsíða 20

Vikan - 10.10.1968, Blaðsíða 20
Svo kom heldur drungaleg vika meðan Ambrose var að þumlunga sig í gegnum dapur- lega spádóma Schopenhauers. Harriet flýtti sér að kippa því í liðinn með því að kaupa honum eintak af Kama Sutra, sem hafði ofan af fyrir þeim í langa hríð Allur heimur Ambrose var inniluktur á þessu rislofti; og hann var hæst ánægður með bað. Þetta innilukta hóglífi var það, sem hann hafði alltaf þráð —• hóglífi, sem var rofið rétt í mátu- legu hlutfalli alla virka daga, með spenningi og dægradvöl og reglusemin í öllu þessu var svo trygg og örugg. Ef þetta var ekki heimilissæla vissi hann ekki hvað átt var við með því orði. Um leið og Robert kom heim á kvöldin tók þögnin svo þægi- lega við ríkjum á loftinu. Þetta var tími Ambrose til að lesa og hugsa. Hann hafði reynt að horfa á sjónvarp með hljóðið mjög lágt stillt, en jafnvel þá kvart- aði Robert yfir því að hann heyrði einhver hljóð. Svo Am- brose reyndi að hafa alls ekkert hljóð, en þannig var dagskráin jafnvel enn fáránlegri, en þegar hann heyrði líka það sem sagt var. Hann uppgötvaði að það sem bezt borgaði sig, þegar til lengdar lét, var lesturinn. Hann gerði áætlanir. Eftir því sem þekking hans jókst, jókst met- orðagirnd hans. En metorða- girndin var undir strangri stjórn. Einskorðuð við það, sem hægt var að afkasta í þessu takmark- aða rúmi. Sjálfsnám í fiskaeldi innanhúss. . . . Sjálfsnám í mat- argrerð við öll tækifæri. .. Sjálfsnám í útskurði. . . . Hann las á kvöldin, sagaði og hamraði á daginn. Einn kosturinn við sjálfsnám er sá, að það er alltaf eitthvað nýtt og spennandi að læra og nemandinn þarf ekki endilega að fara eftir akademiskri náms- skrá. Slík menntun getur verið gloppótt, en lífið er líka glopp- ótt, það hefur líka sínar björtu hliðar, sínar gjár og sína lundi. Ambrose var sérfræðingur í rósastríðinu, vissi allt um Maríu Skotadrottningu og Habsborgar- ættina. Hann vissi alls ekkert um sigur Normannanna eða afnám kornlaganna; hann hefði verið manna fyrstur til að viðurkenna að hann hefði ekki vitað að til væru nein kornlög til að afnema. Hann vissi heldur ekkert um Boyle's lögmálið, Salic lögmálið né Parkinson's lögmálið. En menningin kemur aðeins með tíma og ástundun. Og Am- brose var iðinn. Árin liðu — eitt, tvö og þrjú — og eins og hann þroskaðist varð samlíf þeirra æ þýðingarmeira. — Eins og ljúft búrgúndarvín, sagði Ambrose skáldlega eitt kvöldið, og þótt tíminn hefði breitt hulu sína yfir mörg mis- tök og hleypidóma, sem áttu sér 6. HLUTI - EFTIR JOHN BURKE COPYRIGHT JOHN BURKE 1968 stað í upphafi, nutu þau enn að nokkru leyti sætleika sektarinn- ar; þau minntust mjög sjaldan á hvítvín. Á þriðja brúðkaupsafmæli þeirra lagði Ambrose sérlega hart að sér. Meðan Harriet var úti að verzla vann hann eins og óður maður í eldhúsinu og úr felustöðum ofan úr risinu bar hann niður allt það sem hann ætlaði að koma henni á óvart með, helzt hefði hann kosið að hafa deyfð ljós í ljósaskiptum og lokkandi tónlist úr vandlega földum hátölurum. En þar sem nú var glaða dagsbirta, varð hann að láta sér nægja að draga fyrir gluggana. Þegar Harriet kom aftur fann hún skreytta köku á borðinu og þrjú kerti á. Þar var flaska af tequila og umhverfis hana voru litlir diskar með mexíkönskum sérréttum. Tijuana Brass hljóm- aði af plötuspilara Roberts. Am- brose var klæddur í mexíkönsk föt og hafði lagt gítar upp við dívaninn -— sem skreytingu fremur en hann væri til gagns, því hann hafði aðeins lagt stund á Sjálfsnám í Suður-Amerískri fingrasetningu í hálfan mánuð. — De nada, heilsaði hann henni. — Sérðu.... si? Guado- mole með tacos. Mig langaði að gera eitthvað alveg sérstakt. Sérstakt fyrir grænmetisætur. Þegar allt kemur til alls — þá er þetta þriðja brúðkaupsafmæl- ið okkar. Hann fyllti glas og rétti henni. Þau klingdu glösum. — Þrjú dýrðleg ár, sagði Ambrose. Þrjú dásamleg ár. Það sem ég lifi fyrir á hverjum degi er að heyra þig koma upp í gegn- um lúgugatið. — En fallegt, sagði Harriet, undrandi yfir því að finna að hún var enn fær um að roðna eftir allan þennan tíma. — Eg gat ekki einbeitt mér að neinu í dag. Höggmyndagerð — Tilgangslaust. Drög að nú- tíma heimspeki. Lærið að skrifa yður til ánægju og hagnaðar. Nei. Ég þráði aðeins að halda á þér í örmum mér. — En hvað þú segir þetta fal- lega.. . . — í dag fékk ég hræðilega hugmynd. — Hvað var það? — Setjum nú svo að þú kæm- ir dag nokkurn ekki úr verzlun- arferðinni? Setjum nú svo að þú yfirgefir mig — vegna annars manns. — Vegna annars manns? Vertu ekki með þessa heimsku, Am- brose. Það er enginn annar mað- ur. Ég myndi aldrei yfirgefa þig - hvorugan ykkar. Þau drukku og horfðust í augu. — Ég veit það, sagði Ambrose að lokum. Hann laut fram og kyssti hana. Hann saup aftur á glasinu og yggldi sig svo í það. — Meðal annarra orða, mér leizt ekki á hóstann í Robert í morg- un. — Ég lét hann fara með hósta- saftina í verksmiðjuna. —- Finnst þér hún gera honum gott? — Það var afskaplega fallegt af þér að blanda hana handa honum. — Hann verður að taka hana þrisvar á dag. — Sjálfsnám í heimilishjúkrun kveður mjög hart á um það atriði. Við vilj- um ekki missa hann, er það? Harriet rétti fram glasið svo hann gæti hellt í það aftur og brosti ástúðlega við honum. — Þú ert orðinn mjög háður Ro- bert, er það ekki? — Hann er bezti maður sem ég hef nokkru sinni kynnzt. — Þao er fallega gert af þér að hugfi. þannig, höfðinglegt. Ambrose yppti öxlum kæru- leysislega. — Það er bara eitt.... — Tchaikovsky, sagði Am- brose. — Ég er svo sem ekki að kvarta, og það er ekki það, að 20 VIKAN 40- tbl-

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.