Vikan - 10.10.1968, Side 22
r*1 VIKAN OG HEIMILIÐ
ritstjóri:
Gudridur Gisladóttir.
Maxitízkan var ekki mjög áberandi ó tízkusýningunum i haust, en tízkublöð um
allan heim hafa tekið hana upp á arma sína, svo að miklar líkur eru á, að hún
nái mikilli útbreiðslu í vetur. Oft eru stuttir kjólar notaðir við kápurnar, og
verða þeir þá að vera nógu stuttir til þess að mynda skemmtilega tilbreytingu.
Myndin hér t. h. sýnir einmitt slíkan klæðnað. Kápan er með stórum hornum og
svört, sömuleiðis peysan, sokkarnir og skórnir, en pilsið köflótt í rauðum lit og
húfan rauð, en rauði liturinn heldur enn velli frá ( sumar og er mikið notaður
með svörtu, en svart er eins og áður hefur verið talað um, einn helzti litur
vetrarins. Myndin að ofan t. v. er líka af svartri kápu úr velúr. Kragi og brjóst
úr leðri og há svört leðurstígvél notuð við, en hnapparnir á þeim eru gylltir.
Svört kósakkahúfa og svartir hanzkar. Myndin til vinstri sýnir Kka síða kápu úr
vinsælu efni, en það er tweedið, að þessu sinni í fiskibeinamunstri. Kápan er
tvíhneppt og með hornum, eins og flestar maxikápurnar. Rúllukragapeysan
ómissandi innan undir, en hún, hattur og sokkar eru í brúnum lit, nokkuð dekkri
en kápan.
22 VIKAN 40-tM-