Vikan - 10.10.1968, Page 32
ANDRÉS INDRIÐASON
HYJAR HUOMPIinUR
Þeir Helgi Pétursson, Halldór Fannar og Ól-
afur Þórðarson í Ríó tríóinu eru þekktir fyr-
ir þá ágætu hæfileika sína að geta komið
fólki í gott skap með söng og gamanmálum.
Þeir félagar hafa nú sungið inn á plötu fyr-
ir Hljómplötuútgáfuna sf., og hefur platan
að geyma fjögur lög. Tvö laganna eru í
gamansömum dúr, annað er „Sagan um upp-
trekkta karlinn“, en hitt heitir einfaldlega
Jón Pétursson. Fyrra lagið er eftir hinn
þekkta írska lagahöfund Tom Paxton, en
textann gerði Hinrik Bjarnason. Syngur Ól-
afur Þórðarson það að mestu leyti, en hinir
taka undir. Helgi Pétursson syngur hins veg-
ar um Jón Pétursson og broslegar raunir
hans. Hin tvö lögin á plötunni er öllu nær
32 VIKAN 40-tbl-
poppinu en vísnasöng: annað er „Sumarnótt“
eftir Bruce Woodley úr söngkvartettinum
Jhe Seekers en hitt er „Vina mín“ eftir
Paul Stookey, sem syngur með Peter, Paul
og Mary. Textann við „Sumarnótt" gerði
Hinrik Bjarnason, en Helgi Pétursson gerði
texta við „Vina mín“. Þeir félagarnir í Ríó
hafa sjálfir að mestu leyti annazt imdirleik
á þessari plötu, en þó má heyra lúðrablást-
ur og orgelspil í einu laganna.
Ríó tríóið hefur nú skemmt landsmönnum
í fjögur ár. Þeir voru kornungir, þegar þeir
komu fyrst fram og sungu þjóðlög, sem þeir
grófu upp af plötum Peter, Paul og Mary og
Kingston tríósins. Talsvert magn af vatni
hefur runnið til sjávar síðan og nú eru þess-
ir söngflokkar ekki lengur fyrirmyndin. —
Þeir félagarnir eru orðnir sjálfstæðari í efn-
isvali og meira orginal, svo maður sletti út-
lenzku. Þeir hafa lagt mikla rækt við að
flytja íslenzkar gamanvísur og lög víðar að
en frá Bandaríkjunum, og öll lögin, sem þeir
flytja á skemmtunum, eru með íslenzkum
textum. Þeir voru í upphafi kallaðir þjóð-
lagatríó, og sá titill hefur lengi loðað við þá,
sem og aðra söngflokka, sem syngja músik
af þessu tagi. Þegar á allt er litið, er hins
vegar ekki nema brot af sannleikanum í
hugtakinu „þjóðlagatríó". Nær sanni væri að
nefna þá visnasöngvara, og það veit trúa mín,
að þeir yrðu manna hressastir, ef sú yrði
raunin. Hin nýja hljómplata þeirra á eflaust
eftir að auka vinsældir þeirra að miklum
mun. ★
KOISTÍN
ÓLAFSDÓITIR
L_______________/
Fyrir rúmlega ári skýrðum við frá því hér
á síðunni, að væntanleg væri hljómplata með
ungri og efnilegri söngkonu, Kristínu Ólafs-
dóttur. Lögin höfðu þá þegar verið hljóðrit-
uð í London, og ekki var annað sýnna en að
platan kæmi á markaðinn þá innan tíðar. En
sú varð þó ekki raunin. Útgáfufyrirtækið átti
í einhverjum brösum, sem eru fyrir ofan okk-
ar skilning, platan hennar Kristínar varð þá
aldrei annað en hugarfóstur útgefandans. Nú
hefur sem betur fer rofað til fyrir Kristínu.
Tónaútgáfan hefur sent frá sér plötu með
söng hennar, og eru þar m.a. tvö af lögunum,
sem hljóðrituð voru ytra á sínum tíma. Þessi
lög, sem eru eftir Magnús Eiríksson, voru
hljóðrituð á ný í sumar, ásamt hinum tveim-
ur, sem eru á plötunni, og sá Pétur Stein-
grímsson hjá útvarpinu um þá hlið málsins.
Lög Magnúsar á plötunni heita „Komu eng-
in skip í dag“ og „Flóttamaðurinn". Magnús
Frank Sinatra virðist hafa mikla ást á stutt-
hærðum, stóreygðum stúlkum. Nýlega sást
hann á frumsýningu með ensku leikkonunni
Jacqueline Bisset. Forvitnir áhorfendur supu
hveljur: Var hann orðinn sáttur við Miu
Farrow? Nei, það var ekki hún, þessi er bara
svolítið lík henni.
V____________________________________________y
hefur einnig samið textana við a.m.k. annað
lagið. Sem kunnugt er samdi Magnús einnig
lögin á plötunni með Pónik, en sú plata fékk
ágætar viðtökur á sínum tíma. Eina erlenda
lagið á plötunni er hið fallega lag „Love is
Blue“, en með íslenzkum texta Jóhönnu Er-
lingsson heitir það „Örlög mín“. Þetta lag
hefur mikið verið spilað í sumar víða um
heim, og hafa þrjár útgáfur heyrst af þessu
lagi með Jeff Beck, Paul Muriat og Claudina
(frú Andy Williams). fslenzka útgáfa þessa
lags er mjög vönduð, og í flutningi Kristínar
ætti það að geta orðið mjög vinsælt. Fjórða
lagið á plötunni er svo lag Sivalda Kalda-
lóns, „Mamma ætlar að sofna“.
Fjöldi hljóðfæraleikara aðstoðar Kristínu
við undirleik á plötunni, þar á meðal nokkr-
ir hinna stærri spámanna í poppinu, Karl
Sighvatsson, Gunnar Jökull o.fl. Sigurður
Rúnar Jónsson hefur annast útsetningar fyrir
strengjahljóðfæri. Þegar á allt er litið er
hljómplata Kristínar Ólafsdóttur hin vandað-
asta í hvívetna.