Vikan


Vikan - 10.10.1968, Blaðsíða 37

Vikan - 10.10.1968, Blaðsíða 37
Philip Morris vekur athygli á mest seldu amerísku filtersigarettunni í Evrópu. Reynið pakka af Marlboro og þér sannreynið hvað kallað er raunverulegur tóbakskeimur. Keimur, réttur keimur. Fullþroskað fyrsta flokks tóbak gefur Marlboro þennan góða keim. Er þetta ekki það sem þér leitið að í filtersigarettunni? „FILTER“ • RÉTTUR KEIMUR • „FLIP TOP“ PAKKI. Framhald af bls. 21 gaf sitt eigið land og leitaði fyr ir sér í hinum óþekkta heimi, vann og lifði, alltaf önnum kaf- in og alltaf glögg og vökul; já, Harriet þarfnaðist félagsskapar á daginn. Hann ætlaði að kaupa handa henni hund. Þegar hann kom í gæludýra- búðina sneru tvær sölukonur sér þegar að honum. Það var lítið að gera þennan dag og þær ein- beittu sér að því, sem Robert, verandi verzlunarmaður sjálfur, sá þegar að var eindregin sölu- mennska. Honum flaug aðeins í hug að ráða þær í söludeildina hjá sér. Því miður komst hann að því eftir snögga, laumulega athugun að þær voru ekki frem- ur sannfærandi brjóstahaldara- sölukonur, en sköllóttur maður væri heppilegur sölumaður fyrir hárvaxtarmeðal. — Þér viljið að sjálfsögðu hund með sjálfstæða skapgerð, sagði sú fyrri. Það þýddi að þær ætluðu að selja honum dýrasta hvolpinn í búðinni. — Ekki stóran hund, sagði sú seinni. —• Ég býst við að þér sé- uð að leita að borgarhundi? — Hér — já, sagði Robert. — Við búum í Chelsea. — Ekki stóran hund þá. Sú seinni studdi sína eigin uppruna- legu skoðun. — Það er grimmd- arlegt að hafa stóra hunda í borgum. Ef þér ætluðuð hins vegar að flytjast út á landið og fara í langar gönguferðir á heið- unum.... — É'g hef það ekki í hyggju, sagði Robert. — í raun og veru er hundurinn handa konunni minni. Hún þarf einhvers konar ja, einhvers konar lítinn vin í húsinu. Konurnar tvær litu hvor á aðra. Þær kinkuðu kolli. — Það hugsa ég. Hvað heldur þú? — Eindregið, sagði sú síðari. Fyrri sölukonan gekk innst inn í búðina og laut yfir lága stíu. Þegar hún stóð upp hélt hún á úfnum, litlum terrier, að minnsta kosti hélt Robert að þetta yrði terrier með tímanum —■ með aristókratískt trýni. Ég gæti ekki ímyndað mér neitt sem væri henni betri fé- lagi en Patriarch Royal Ches- hunt Emperor The Third. Robert virti fyrir sér þennan iðandi, úfna hnoðra. Honum fannst þetta langt nafn fyrir ákaflega lítinn hund. — Haldið þið að hann hefði á móti því að ég kallaði hann bara Dinkie. . . . ? Fyrri konan hafði næstum misst hundinn. Hin konan hryllti sig upp og sagði með andstyggð: — Dinkie? - Ég átti hund sem ég kall- aði Dinkie, þegar ég var strákur, og það væri fljótlegra og þægi- legra að kalla í hann inn á kvöldin og svo framvegis. — Eins og þér viljið. Robert tók upp veskið. Hund- urinn gjammaði vongóður og rak nefið í áttina til hans. Prentað eyðublað var lagt á borðið fyrir framan Robert. — Gætum við fengið nafn yð- ar, herra? Vegna undaneldis. — Nafn mitt? — Ef við rekumst á viðeig- andi tík. — Ó. Ójá. Auðvitað. Robert tók nafnspjald upp úr veski sínu og lagði það ofan á seðlana, sem hann hafði verið að telja fram. Jæja, hann verður áreiðan- lega félagsskapur fyrir konuna mína, og nú þarf hún alla vega ekki að vera alein allan daginn. Hann hló uppgerðarlega. — Það væri tilbreyting í því fyrir hana að hafa eitthvað karlkyns í hús- inu. Konurnar tvær virtu hann fyr- ir sér, báðar sögðu þær í einum kór: — Já. Taumur var festur við háls- bandið á hundinum. Hundurinn virti Robert fyrir sér. Hjarta Roberts bráðnaði. Angalitla grey- ið að hanga hér dag eftir dag og bíða eftir því að einhver tæki hann að sér og gæfi honum heim- ili. Hundurinn starði á hann tjáningarríkum augum. Að minnsta kosti voru þau annað hvort tjáningarrík eða hungruð. Hann tók tauminn og lét Dinkie síga ofan á gólfið. Dinkie virti fyrir sér ökklana á honum með sívaxandi áhuga. — Jæja þá. Komdu Dinkie. Við hvílum okkur það sem eftir er dagsins á skrifstofunni. Við verðum bráðum góðir kunningj- ar, ha? Dinkie gjammaði. Konurnar tvær hölluðu sér út- fyrr búðarborðið. Af einhverri ástæðu voru þær kvíðafullar á svipinn. — Hann er ákaflega vingjarn- legur, sagði Robert. — Hann er fljótur að kynnast. Um leið og Robert gekk út úr dyrunum hefði hann næstum geta svarið að hann heyrði feg- ings andvarp líða um verzlun- ina fyrir aftan sig. 40. tbi. viKAN 37

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.