Vikan


Vikan - 10.10.1968, Page 40

Vikan - 10.10.1968, Page 40
augabrúnirnar ofurlítið. „Ég ætla ekki að bjóða yður upp á kaffi í þetta sinn. Ég ætla að bjóða yður svolítið, sem er enn betra.“ Hún gekk að gömlum, útskorn- um skáp og tók út úr honum tvö kristalsglös á silfurbakka. Síðan kom hún með konjaks- flösku og hellti í fyrir hann. Hann lyfti glasinu varlega og dreypti á því. „Hvernig gengur yður svo að rannsaka málið?“ spurði hún blíðlega. „Hafið þér fengið þær upplýsingar, sem þér þurftuð að fá?“ Hún gat eins verið að tala við hann um veðrið eða hvert hún ætlaði að fara um næstu helgi. „Tja,“ sagði hann og hallaði undir flatt. „Málið er þegar orð- ið miklu flóknara en við áttum von á. Við erum farnir að velta því fyrir okkur, hvort nokkurt samband geti verið á milli dauða herra Higgins og dauða annars manns, sem átti sér stað ekki alls fyrir löngu.“ Hún dreypti á glasinu sínu. „Ég skil ekki. .“ sagði hún. „Kenning yðar er ef til vill rétt. ..“ hóf hann til máls, en hún greip fram í fyrir honum: „Já, eins og ég hef alltaf sagt: Þessar bækur hafa slæm áhrif á mann. Saurugar hugsanir gagn- taka þá.“ „Já, hjá morðingjunum, en ekki fórnarlömbum þeirra," sagði leynilögreglumaðurinn. Hún fylgdist með hverri hreyf- ingu hans, þegar hann lét glasið frá sér, stóð á fætur og gekk að glugganum. „Mér þykir leitt að þurfa að rifja þetta upp frá byrjun einu sinni enn, fröken Mackey, en hjá því verður ekki komizt. Ég verð að vita hvert einasta smá- atriði." Hann opnaði gluggann upp á gátt. „Sem sagt: Þér komuð inn í stofuna og sáuð herra Higgins standa hérna og gluggatjaldið huldi hann að hálfu. Þér höfð- uð ekki minnsta grun um, að hann væri í íbúðinni?“ „Það er rétt,“ sagði fröken Mackey. „Og þér eruð vissar um, að þér hafið ekki beðið herra Higgins að koma og gera við gluggann?" hélt hann áfram. „Sumir íbúarn- ir hér í húsinu segjast hafa heyrt yður biðja hann um að gera við gluggann.” „Nei, auðvitað gerði ég það ekki,“ sagði fröken Mackey. „Um leið og þér komuð auga á hann, rákuð þér upp skelfing- aróp og skipuðuð honum að fara út?“ „Já, einmitt," sagði fröken Mackey og stóð nú einnig á fæt- ur og kom yfir að glugganum. „Það var eins og það kæmi fát á hann,“ hélt hún áfram. „f ör- væntingu sinni klifraði hann upp í gluggann, settist í gluggakist- Fjarlægið nagla- böndin á auðveldan hátt Hinn sjálffylltl Cutipen gefur mýkj- andi lanolínblandaSan snyrtilög, einn dropa í einu, sem mýkir og eyðir óprýðandi naglaböndum. Cutipen er elns og fallegur, óbrj dtandl sjálfblekungur sérstaklega gerður til snyrtingar. Hinn sérstæði oddur hans snyrtir og lagfærir naglaböndin svo að neglur yðar njóti sín. Engra pinna eða bómullar er þörf. Cutipen er algerlega þéttur, svo að geyma má hann í handtösku. Cutáp&K' fæst 1 öllum snyrtivöruverzlunum. Handbærar áfyllingar. Fyrir stökkar negiur biðjið um Nutrinail, vítamínblandaðan naglaáburð, sem seldur er í pennum, jafn handhæg- um í noktun og' Cutipen. Lagningar, klippingar, hérlitanir, lýsingar, lokka litanir, lokka greiðslur. Permanent margar gerðir. Hárgreiðslustofan PIROLA Grettisgötu 31 Sími 147 87 _____________________/ una, leit um öxl til mín andartak, og svo datt hann niður.“ „Svona,“ sagði leynilögreglu- maðurinn, vippaði sér upp í gluggann og settist í gluggakist- una. Honum tókst naumlega að líta um öxl til að geta séð hvar sú gamla tók viðbragð og hrinti honum í einu vetfangi út um gluggann. Fallið var hátt. Á leiðinni hugsaði hann um það, hversu fáu væri hægt að treysta í þessum heimi; að ekki er allt sem sýnist, hversu útlit og hegðun fólks seg- ir lítið hvað innra með því býr; hversu oft leynist flagð undir fögru skinni. Loks hafnaði hann í öryggisnetinu. Westerberg hjálpaði honum úr því. „Ætlar þú að fara upp og sækja hana, eða á ég að gera það? spurði hann. „Þú skalt gera það,“ svaraði hann. Westerberg hljóp inn í húsið, en leynilögreglumaðurinn ungi beið úti í garðinum. Hann dust- aði fötin sín; var enn móður eft- ir fallið. Nokkur tími leið. Hann tók upp pípu sína og kveikti í henni. Hann sá, að hinum megin við götuna var lögreglubíll til reiðu. Hann velti því fyrir sér, hvort gamla fröken Mackey hefði heimtað að fá að vaska upp kristalsglösin, púðra sig og loka glugganum, áður en hún færi niður á lögreglustöðina.... ☆ Sophia Loren Framhald af bls. 14 Þau eru mjög góð heim að sækja, enda hafa þau margt þjónustufólk og nægilegt hús- rými. Meðal hinna glöðu gesta má sjá frægt fólk, eins og t. d. Vittorio De Sica, Antonini og Franco Rossi; Peter Sellers er gamall vinur, og hann var svo hrifinn af höllinni að hann gerði um hana kvikmynd, og auðvit- að léku þau Sophia Loren og Peter Sellers aðalhlutverkin. Jafnvel hjartasérfræðingurinn Christian Barnard hefur verið gestur þeirra hjóna, og kom það fyrst til af sérstökum ' ástæðum. Fyrir nokkru fékk hann hrað- bréf frá Róm: „Viljið þér bjarga tveim börnum? Aðeins þér get- ið bjargað þeim. É'g skora á yð- ur að gera það. Hjartans kveðj- ur, Sophia Loren.“ Með þessari hjálparbeiðni fylgdi sjúkdóms- saga tveggja barna. Læknirinn hlýddi kallinu og fór til Róm til að skoða börnin. Silvana Cavallini, fjögra ára, var fædd með gat á hjartaloku, og þannig getur hún tæplega lif- að í mörg ár. Paolo Fiocca er einn af þess- um svokölluð „bláu börnum“. Hann blánar upp við minnstu LILJU 1 LI w U 1 1 LILUU i Liijubíndi eru betri. Fást í næstu búð. hreyfingu, hringrás blóðsins er ekki í lagi og getur ekki flutt nægilegt súrefni gegnum æðarn- ar. Það er aðeins hægt að bjarga þessum börnum með vandasöm- um skurðaðgerðum. Barnard dvaldi tvær klukkustundir hjá börnunum og ákvað að Paolo yrði strax sendur til Höfðaborg- ar og Silvana næsta ár. Illar tungur vilja halda því fram að Sophia geri þetta í aug- lýsingaskyni fyrir sjálfa sig, og þetta kom henni til eyrna í Swiss, þar sem hún dvaldi í fimm mánuði til þess að reyna að koma í veg fyrir að hún missti fóstur enn einu sinni. Hún hló og sagði: — Mér er alveg sama, hvað fólk segir, Þarna er um líf tveggja barna að ræða, og mæð- ur þeirra beggja hafa snúið sér 40 VIKAN 40- tbl-

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.