Vikan - 10.10.1968, Page 50
>
;/ , ' wjjá
NÝIT SÖFASETT 3ja og 4ra sæia sófar.
FRAMLEITT MEÐ NAUTSHÖÐ í MÖRGUM
LITUM EFTIR PÖNTUNUM.
Einnig ullar- og dralonáklæði.
íslenzk framleiösla - ÉÉJ£ Arkitekt Leif Hansen.
Husoaanaverz Grettisgötu 46 Inn Kai Pind - Sími 22584
V
Án þess að hlusta á bituryrði hennar spurði Soames: — Segðu
mér eitt, er Bosinney elskhugi þinn?
— Nei, það er hann ekki.
Hún leit beint í augu hans og hann leit undan. Hann vissi ekki
hvort hann átti að trúa henni, en hann fann að það hafði verið
heimskulegt að spyrja að þessu. Hann horfði á leyndardómsfullt
andlit konu sinnar, og hugsaði um öll þau kvöld, sem hann hafði
horft á hana sitja þarna, með blíðan en hlutlausan svip, eins
og hún væri framandi. Og skyndilega greip hann ofsareiði, hann
gat ekki stillt sig lengur.
— Ég held að þú sért steingervingur, sagði hann og þreyf til
hennar. — Það ætti að flengja þig. Það væri líklega það eina sem
gæti komið vitinu fyrir þig.
Svo snerist hann á hæl og fór út úr stofunni.
Þegar hann, síðar um kvöldið, fór upp að hátta, fann hann það
að hann hafði hlaupið á sig. Hann var ákveðinn í því að biðja
Irene fyrirgefningar.
Hann nam staðar andartak fyrir utan svefnherbergisdyrnar, og
hugsaði um það hvernig hann gæti bezt hagað orðum sínum, svo
hún fyndi ekki hve taugaóstyrkur hann var. En dyrnar opnuðust
ekki, þegar hann tók í húninn. Hún hlaut að hafa læst, af ein-
hverri sérstakri ástæðu, og svo gleymt að opna aftur. Hann
flýtti sér gegnum búningsherbergið og ætlaði að opna þeim megin,
en þær dyr voru líka læstar.
Þá sá hann að það var búið að búa upp rúm á bedda í búnings-
herberginu. Hann tók í snerilinn, hristi hann reiðilega og kallaði:
— Irene, opnaðu, heyrirðu það! Opnaðu strax. 3Sg heimta að
komast inn! ,
Hann heyrði djúpan andardrátt hennar hinum megin við hurð-
ina, en hún svaraði ekki og opnaði ekki. Hann reyndi að sprengja
aðra hurðina upp, en það gekk ekki, hún var of sterkbyggð. Hann
hafði sjálfur látið setja nýjar hurðir í húsið, áður en þau giftu sig.
Að lokum settist hann í stigaþrep og tók höndum fyrir andlitið.
Þar sem hún var búin að læsa dyrunum fyrir honum, hafði hún
ekki lengur rétt sem eiginkona, og hann ætlaði sannarlega að leita
huggunar hjá öðrum konum. En þetta voru aðeins óljósar hug-
myndir. Hann hafði enga ánægju af slíkum skemmtunum. Það var
aðeins Irene, þessi kalda kona, bak við læstar dyr, sem gat lægt
ástríðuþungann. — Það var Irene og engin önnur, sem gat hjálpað
honum.
En svo gaus reiðin upp í honum aftur. Framkoma hennar var
ósiðleg, algerlega ófyi'irgefanleg, og hún átti það skilið að vera
refsað, og hann hafði það á valdi sínu að refsa henni. Hún var
það eina sem hann þráði að eignast, og hún neitaði að aðhyllast
hann.
Skyldi eitthvert alvarlegt samband vera á milli Irene og
Bosinneys? Hann reyndi að hrinda þeirri hugsun frá sér. Það
yrði óþolandi, ef hann neyddist til að gera einkalíf sitt opinbert.
Hann hataði þennan Bosinney ,og það. kom ekki til greina að
hlifa honum. Soames ætlaði að borga þessi tólf þúsund og fimm-
tíu pund, sem höfðu verið algert hámark útgjalda, og svo ætlaði
hann að fara í mál við arkitektinn.
Irene átti heldur ekki neina peninga. Þau eru bæði bláfátæk,
hugsaði hann meinfýsilega ....
Nú heyrði hann eitthvert þrusk inni í svefnherberginu. Hún var
þá loksins komm í rúmið. — Já, sofðu vært, og dreyrni þig vel,
hugsaði Soames. Þótt hún opnaði dyrnar upp á gátt, skyldi hann
ekki fara inn til hennar.
Það var liðið að kvöldi næsta dag. Soames stóð við gluggann í
borðstofunni og horfði út. Sólin skein ennþá í gegnum trjátopp-
ana, og við götuhornið stóð gömul kona sem lék á lírukassa. Hún
var að spila vals, gamlan vals, einmitt samskonar vals og Irene
og Bosinney höfðu dansað eft.ir í samkvæminu hjá Roger.
Þá kom Soames augo á Irene, sem gekk á ská yfir torgið að
húsinu. Hún var í ljósrauðri treyju, með púffermum, hann hafði
aldrei séð hana í þessari treyju áður. Hún nam staðar hjá kon-
unni með lírukassann, tók upp budduna og gaf konunni nokkra
skildinga.
Soames flutti sig til, svo hann gæti virt hana betur fyrir sér,
þegar hún kom inn í anddyrið.
Hún opnaði dyrnar sjálf, lagði sólhlífina frá sér og gekk að
speglinum. Hún var rjóð í kinnum og um varir hennar lék við-
kvæmnislegt, titrandi bros. Hún breiddi út faðminn og hló lágt,
og hláturinn minnti einna helst á kjökur.
Soames gekk fram. — Mjög fallegt, sagði hann.
Irene sneri sér eldsnöggt við og ætlaði að hlaupa fram hjá hon-
um upp stigann, en hann gekk í veg fyrir hana. ■— Liggur þér
svona mikið á? sagði hann, og hafði ekki augun af hárlokk, sem
hafði losnað við annað eyrað á henni.
Soames þekkti hana varla. Það var einhver ljómi í kringum
hana. Andardrátturinn var hraður, eins og hún væri að koma af
hlaupum. Hún var gjörbreytt ....
Somes lyfti hendinni upp að brjósti hennar, en hún sló á fing-
ur hans. — Snertu mig ekki, öskraði hún.
Þá greip hann um úlnlið hennar, en hún reif sig lausa.
— Hvar hefirðu verið? spurði hann reiðilega.
— I himnaríki, langt í burtu frá þessu húsi. Og hún þaut upp
stigann.
Soames stóð grafkyrr. Hvað var eiginlega því til fyrirstöðu að
hlaupa á eftir henni?
Sá hann kannski Bosinney fyrir sér, standandi við gluggann í
Sloane Street, til að sjá Irene bregða fyrir, áður en hún hvarf
í mannþröngina? Sá hann í anda Bosinney kæla sjóðheitt ennið á
rúðunni, dreymandi um hana í faðmi sínum? Var ilmurinn af
henni ennþá í stofu Bosinneys? Hló hann líka hlátrinum, sem
endaði með kjökri?
Mörgum hefði líklega fundizt Soames vesalings ræfill, að hann
skyldi ekki geta fengið konu sína til að opna fyrir honum dyrn-
ar, gefið henni ærlega ráðningu, og unnið bug á mótþróa hennar.
En hrottaskapur var Forsyteunum ekki í blóð borinn. Þeir voru
varkárir, og ef til vill líka háttvísir í hjarta sínu. Og Soames
var líka stoltur, og um fram allt vildi hann ekki verða að at-
hlægi. Hann kaus því að þola þetta ástand og reyna að láta ekki
á neinu bera.
Sumarið og haustið liðu. Soames sinnti störfum sínum, eins og
venjulega, dundaði meðal málverka sinna og bauð vinum sínum
til miðdegisverðar, en dyrnar á svefnherberginu voru stöðugt læstar.
Þau fluttu ekki í nýja húsið, Irene vildi ekki fara þangað. Húsið
við Robin Hill stóð tilbúið, og tómt .......
Framhald í næsta blaði.
5« VTKAN 40- tbl-