Vikan


Vikan - 10.10.1968, Page 52

Vikan - 10.10.1968, Page 52
Hljómlistin er talin eitt fullkomnasta tjáning-arform mannsins, huggun í sorg og ánægja hans á stundum gleðinnar. í fjölda ára var tónlistin aðeins ætluð hefðarfólki en allur al- menningur átti ekki kost á að njóta hennar. Þetta er nú liðinn tími. Áhugi fólks á tónlist fer stööugt vaxandi, og á hverju heimili er nú daglega hlustað á einhvers konar tónlist. Enn eru margir sem aöeins geta notið tónlistar með því að hlusta, en þeim fer ört fjölgandi sem leika á eitthvert hljóðfæri sjálf- um sér og öðrum til óblandinnar ánægju. Píanóiö er það hljóð- færi sem allir tónlistarunnendur hafa ánægju af og ætti þvi að vera til á hverju heimili. FJÖLSKYLDAN SAMEINAST VID PlANDID YAMAHA FLYGLAR ERU I EFTIRTÖLDUM SAMKOMUH0SUM: HÓTEL SÖGU, SAMKOMUSAL DOMUS MEDICA, DANSSKÓLA HERMANNS RAGNARS STEFANSSONAR, FÉLAGS- HEIMILI BÚÐARDALS, ÖLDUTÚNSSKÓLA HAFNARFIRÐI, VEITINGAHÚSINU NAUSTI O.FL. Við höfum nú um nokkurra ára skeið selt YAMAHA píanó og er það samdóma álit allra sem kynnst hafa þessum hljóðfær- um að þau standist fyllileg'a samjöfnuð við aðrar tegundir sem hér hafa fengist þótt verðið sé svo mikið lægra sem raun ber vitni. YAMAHA píanóin eru um það bil 90% af öllum píanóinnflutningi landsmanna í dag, og eru nú í flestum skólum og samkomuhúsum landsins. Við þorum að fuUyröa að hvert einasta íslenzkt heimili á þess nú kost að eignast gott píanó og getur þannig notið ánægjunnar af eigin tónlistarflutningi í heimahúsum, sem er án efa sú tómstundaiðja sem fjölskyldan getur helst sameinast um. HLJÓÐFÆRAVERZLUN VITASTÍC lO SlMI 20111 YAMAHA

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.