Vikan - 10.10.1968, Qupperneq 52
Hljómlistin er talin eitt fullkomnasta tjáning-arform mannsins,
huggun í sorg og ánægja hans á stundum gleðinnar.
í fjölda ára var tónlistin aðeins ætluð hefðarfólki en allur al-
menningur átti ekki kost á að njóta hennar. Þetta er nú liðinn
tími. Áhugi fólks á tónlist fer stööugt vaxandi, og á hverju
heimili er nú daglega hlustað á einhvers konar tónlist. Enn
eru margir sem aöeins geta notið tónlistar með því að hlusta,
en þeim fer ört fjölgandi sem leika á eitthvert hljóðfæri sjálf-
um sér og öðrum til óblandinnar ánægju. Píanóiö er það hljóð-
færi sem allir tónlistarunnendur hafa ánægju af og ætti þvi að
vera til á hverju heimili.
FJÖLSKYLDAN
SAMEINAST
VID PlANDID
YAMAHA FLYGLAR ERU I EFTIRTÖLDUM
SAMKOMUH0SUM:
HÓTEL SÖGU, SAMKOMUSAL DOMUS
MEDICA, DANSSKÓLA HERMANNS
RAGNARS STEFANSSONAR, FÉLAGS-
HEIMILI BÚÐARDALS, ÖLDUTÚNSSKÓLA
HAFNARFIRÐI, VEITINGAHÚSINU
NAUSTI O.FL.
Við höfum nú um nokkurra ára skeið selt YAMAHA píanó og
er það samdóma álit allra sem kynnst hafa þessum hljóðfær-
um að þau standist fyllileg'a samjöfnuð við aðrar tegundir
sem hér hafa fengist þótt verðið sé svo mikið lægra sem raun
ber vitni. YAMAHA píanóin eru um það bil 90% af öllum
píanóinnflutningi landsmanna í dag, og eru nú í flestum
skólum og samkomuhúsum landsins.
Við þorum að fuUyröa að hvert einasta íslenzkt heimili á þess
nú kost að eignast gott píanó og getur þannig notið ánægjunnar
af eigin tónlistarflutningi í heimahúsum, sem er án efa sú
tómstundaiðja sem fjölskyldan getur helst sameinast um.
HLJÓÐFÆRAVERZLUN
VITASTÍC lO SlMI 20111
YAMAHA