Vikan - 09.01.1969, Síða 15
SIDNEY POITIER
WILLIAM MARSHALL
x-x-xv % vt-xvss:
SAMMY DAVIS JR.
BRENDA ARNEU
/ -------------------------------------------^
þeir eru beittir. CBS lagði óhemiu
mikla vinnu í þessa þaetti; sendi
fréttamenn sína í efnisleit út um
öll fylki Bandaríkjanna. Fjölmörg
viðtöl við blökkumenn í ýmsum
stöðum þjóðfélagsins gáfu uggvekj-
andi þverskurðarmynd af biturleika
negranna og hatri þeirra í garð
hvíta mannsins. Inn á milli var svo
fléttuð saga negranna síðustu þrjú
árin; sagt frá sögulegum staðreynd-
um, sem leiddu hugann að því,
hversu negrarnir hafa þrátt fyrir
kúgun og misrétti verið hollir þegn-
ar Bandaríkjanna. Þeir hafa ævin-
lega barizt við hlið hvíta mannsins,
þegar styrjaldir hafa geisað; barizt
ótrauðir fyrir hugsjónum lands
síns.
Þessi umfangsmikla sjónvarps-
kvikmynd var gerð í því augna-
miði að reyna að bæta sambúð
hvítra og svartra; reyna að fá þá til
að skilja betur aðstöðu hvor ann-
V____________________________________________/
ars. Og myndin virðist hafa náð
tilætluðum árangri. Skoðanakann-
anir sýna, að 20 milljónir Banda-
ríkjamanna hafa skipt um skoðun
á kynþáttavandamálinu eftir að
hafa séð „Of Black America", en
svo nefnist myndin, og snúizt á
sveif með blökkumönnunum. Að
margra dómi er þessi mynd enn
sem komið er bezt heppnaða her-
ferð sem gerð hefur verið til þess
að draga úr kynþáttamisréttinu og
bæta sambúð hvítra og svartra.
A sviði kvikmynda hafa líka orð-
ið gleðilegar framfarir í þessum
efnum, og þróunin virðist áfram
stefna f rétta átt. Það eru ekki nema
örfá ár síðan negrarnir urðu að láta
sér nægja ómerkileg aukahlutverk,
eins og til dæmis að leika stofu-
stúlkur, bflstjóra, þjóna og skó-
burstara. Sidney Poitier braut
blökkumönnunum leið inn í kvik-
Framhald á bls. 49.
V___________________________________________/
2tbl VIKAN 15