Vikan


Vikan - 09.01.1969, Side 36

Vikan - 09.01.1969, Side 36
Hinar vinsælu bækur um Angelique eftir SERGE og ANNE GOLON, fást hjá næsta bóksala eða í næstu blaðasölu. Angelique Angelique og kóngurinn Angelique og soldáninn í heftum. öskraði. Cyril var ómeiddur, en það var ekki hægt að segja um hið marglofaða farartæki hans. Loksins kom hann það mikið til sjálfs sín að hann spurði Deirdre: — Hvernig fóruð þér að þessu? — Ég steig á bensíngjöfina, og svo.... — Já, fröken, ég veit það. En hvað kom yður til að gera þetta? Deirdre lét ógert að skýra það fyrir honum, en í þess stað fór hún að segja hinum frá erfðaskrá Ge- orgs frænda síns, með miklum fjálgleik. Andlitið á Cyril varð eitt ánægjubros, og hann sagði: — Vesa- lings stúlkan, þér eruð sannarlega I vandræðum. Ég er auðvitað reiðu- bþinn til að kvænast yður. Hvenær. Er það fímabært á morgun? Bíll- inn verður hvort sem er á verk- stæði, svo ég hef ekkert að gera næstu daga Hann þagnaði, því sú tilvonandi tók til fótanna og hljóp niður brekkuna. Gerry, sem hafði beðið fyrir ut- an bílskúr Cyrils, til að frétta af framförum hennar við aksturinn og að heyra hvernig málin stæðu í hjú- skaparmálunum, hafði séð árekstur- inn, svo hann hraðaði sér upp brekkuna. — Deidre! — Deirdre! Ertu slös- uð? kallaði hann. Tárin streymdu niður kinnar hennar og hún hljóp upp um háls- inn á honum. — Það er allt í lagi með mig, en hann sagðist vilja kvænast mér! — Til hamingju, sagði Gerry, og var ekki sérlega glaðlegur. — Var það ekki það sem þú vildir? — Jú, en ég get ekki gifzt hon- upi! — Ekki einu sinni til að kom- ast til Rio. — Það er skynsamlegt. En hvers- vegna ertu þá að gráta? — Vegna þess að ég er svo heimsk. Ég dett af baki, ég geri uppistand í flugvél. Ég ek bíl í klessu. Ég get ekkert gert að gagni. Það vill ekki nokkur maður kvæn- ast mér. — Jú, ég. . . . — Þú! Elsku hjartans . . . hún gat ekki lokið við setninguna fyrr en hann hafði kysst hana innilega. — En ég bað þín fyrst, og þú neitað- ir þá. — Það er rétt, en ég vildi að þú giftist mér af ást, en ekki vegna peninganna minna. — Peninganna minna, áttu við. Gerry ætlaði að fara að útskýra það fyrir henni að Georg frændi hefði arfleitt manninn hennar að peningunum, en erfðaskráin hafði náð sínum tilgangi. Hann hafði kynnzt Deirdre. — Peninganna okkar, sögðu þau, einum rómi. Og þetta hefur örugg- lega verið það sem Georg frændi hefur haft í huga, þegar hann réði ungan lögfræðing til að sjá um erfðaskrána.... "A /------------------------------ — Hvað hefir orðið af Jósep? Hvernig lifum við árið 2000 Framhald af bls. 11 veit, að svo er ekki. Vélheilinn nærist eingöngu á þeim upplýs- ingum og efni, sem mannsheil- inn hefur matað hann á. Hitt er svo annað mál, að hann er mörg- um sinnum fljótari að vinna úr þessu efni, því rafslag er milljón sinnum sneggra en mannleg taugasvörun- Þar við bætist, að sé vélheilinn rétt mataður, gerir hann ekki vjllur, Hann leggur tvær tölur saman á minna en einum milljónasta úr sekúndu, sama þótt háar séu. Rétt mataður getur hann sjálfur reiknað út Qg sannað, jafnvel flóknustu fram- 40 VIKAN 2 tbl-

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.