Vikan


Vikan - 09.01.1969, Side 40

Vikan - 09.01.1969, Side 40
Eílw J Steichen, einn þekktasti ljcsmyndari heims í 60 ár. Nú er hann 89 ára og er nýtekinn til við höggmyndagerð. Sambúð hr.ns og konu hans hefur verið mjög hamingjusöm. Aldursmunur: 53 ár! -----—........—-----------------»««««««. ■f.fn. Fyrir 10 árum hittust hljómsveitarstjórinn frægi, Herbert von Karajan oj Eliette, sem nú er kona hans. Hún var þá 18 ár?.. Nú er hann 60 ára, hún 28. Aldursmunur 32. ár. HlfENÆH VERBIIH KAREINN BF GAMAEL? hjónin séu hamingjusöm og þroskist hvort með öðru. Önnur áleitin spurning er sú, hvort yngri makinn muni ekki þegar fram líða stundir gerast þreyttur á þeim eldri og leita sér uppörvunar i örm- um sprækari elskhuga. Eða hvort eldri makanum muni ekki þreytast æskufjör þess yngri og hreiniega gef- ast upp á öllum þessum þrótti? Slíkar spurningar fá engin svör, fyrr en tím- inn leiðir þau í ljós. En sá eða sú, sem verður ástfang- in/n af yngri manneskju, yngist sjálf /ur. Manneskjan Jackie Onassis er allmiklu yngri en goðsagnaveran Jackie Kennedy. Og sá eða sú, sem fyrir þessari lífsreynslu verður, upp- götvar einnig, að mannsævin er ekki í raun og veru rígbundin i kafla- skiptingu, að ástin er ekki rígskorð- uð við einn hluta ævinnar eingöngu, og glöggt afmörkuð æviskipting í fimm ára skeið (20—25, 25—30 o. s. frv.) er hvergi til nema á skrifborðum. Þekktur erlendur þjóðfélagsfræð- ingur telur, að innan fárra ára verði hætt að fást um aldursmun í hjóna- böndum. Þá verður, segir hann, ver- öldin einum fordómi fátækari en mörgum hamingjusömum hjónabönd- um ríkari. -fo Hér kynnum við nokkur hjón, þar sem aldursmunurinn er meiri en al- mannarómi þykir gott — allt upp í fjörutíu ár. Hjónaband við miklum aldursmuni er æviniega litið hálf- gerðu hornauga, almenningur tor- tryggir slikt uppátæki og spáir því venjulega illu. Jackie og Onassis hafa vakið miklar umræður um þessi mál, en þó er aldursmunur þeirra ekki nema rösk 20 ár — kannski tæp 30. Enginn veit, hve mikið Onassis er yf- ir sextugu. Margir íslendingar kannast við Fritz Ruzicka, sem ,,skapað“ hefur margar stjörnur, svo sem Vivi Bak, Essy Per- son og Ingelu Brander, með hverri 44 VIKAN 2- »i. hann kom hingað fyrir nokkrum ár- um, eins og lesendur Vikunnar rek- ur ef til vill minni til. Hann stendur nú á sextugu, kariinn, og er nýgiftur ungfrú Danmörku 1960, Birgitte Hei- berg. Hún er 24 ára gömul og ein fremsta tízkusýningadama í Evrópu. Aldursmunur þeirra er 36 ár. Mestur er munurinn á Pablo Picasso og sjö- undu konu hans, Jaqueline Roque, eða fjörutíu ár. Hann er 87 ára en hún 47 ára. Enginn ber brigður á, að hjónaband þeirra sé hamingjusamt, og þrátt fyrir aldurinn er Picasso gamli hið mesta kvennagull enn í dag. Ef til vill er aldursmunarhjónunum erfiðast fyrir brúðkaupið. Þá verða þau að leysa ýmsan vanda í sam- bandi við almenningsálitið. Og jafn- vel þótt þau séu fyllilega hamingju- söm saman og líti framtíðina björtum augum, fer ekki hjá þvf, að beinar og óbeinar glósur utan að komandi fólks hljóta að skilja eftir stungur, sem svíður undan. Og margur hlýtur að hafa lagt fyrir sig þá spurningu, hvernig fari nú, ef væntanleg börn fyrirverði sig fyrir að eiga gamal- menni að föður — eða ef til vill, hvort þeim verði barna auðið? Kann- ski skiptir það ekki verulegu máli, hjónabandið er ekki endanlega ioka- áfangi eða barnaframleiðsla. Að margra dómi skiptir mestu máli, að

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.