Vikan


Vikan - 20.03.1969, Blaðsíða 32

Vikan - 20.03.1969, Blaðsíða 32
NSON Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): Samband þitt við fjarlæga vini verður fyrir ein- hverjum truflunum. Þú átt þess kost að bæta af- komu þína og þinna; en með dálítið erfiðum skil- yrðum. Láttu samkvæmislífið lönd og leið. Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí): t>ú kemur litlu í verk einn þíns liðs, þess vegna er mikilvægt að þú hafir samstarf við einhvern. Brátt færðu skorið úr málum sem snerta einkalíf þitt. Draumar þínir eru miklum takmörkunum háðir. fl Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní): Nokkuð mun reyna á samheldni fjölskyldunnar. I vikulokin verða til lykta leidd ýmis mál er snerta einkalíf þitt fyrst og fremst. Hvað gagnstæða kynið snertir er útlitið vafasamt. Heillatala er sjö. Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí): Hugur þinn snýst mikið um það, sem heimilinu til- heyrir. Væntu ekki mikillar aðstoðar eða skilnings frá þínum nánustu; þú mátt ekki færast meir í fang en þú veldur. Líkur á hagnaði í viðskiptum. Liónsmerkið (24. júlí — 23. ógúst): Ferðalög á vegum fyrirtækisins geta orðið eðlileg- um gangi mála til trafala. Vertu á verði gagnvart þeim er sækjast eftir þínu sæti. Treystu fólki yfir- leitt varlega. Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september): Mikilvægur maður sækist eftir félagsskap þínum. Missætti innan fjölskyldunnar verður til að breyta áformum þínum. Treystu engum betur fyrir fjár- málum þínum en sjálfum þér. & Vogarmerkið (24. september —- 23. október) Samstarf á vinnustað reynist stirt og þreytir þig mikið. Kvöldin verða nokkuð erilsöm; reyndu að flytja starfsleiðann ekki heim með þér. Ánægjuleg tíðindi innan fjölskyldunnar. Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Fólk er þú umgengst virðist venju fremur viðkvæmt og vandsetið. í’u færð fréttir er boða afkomubreyt- ingu. Tíður gestur gerir þér erfitt fyrir. Gættu hófsemi á skemmtistöðum. Bogamarmsmerkið (23. nóv. — 21. desember): Reyndu að samræma betur skyldustörfin og heim- ilislifið. Líkur eru á nokkrum útgjöldum í viku- lokin. í>ú kemur af verki sem hefur iengi valdið þér áhyggjum. Góðar fréttir i vændum. £ Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Of mörg járn í eldinum valda því að ekki er hægt að leysa allt jafn vel af hendi og æskilegt væri. Sinntu hugðarefnum þínum, en farðu ekki út í neinar nýjungar að sinni. Föstudagur til viðskipta. Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar): Það er útlit fyrir að þér verði fengin forysta í ein- hverjum málum og skaltu undirbúa jarðveginn vandlega. Varastu mikil fjárútlát og keyptu ekki hluti með afborgunum. Ný viðhorf á þriðjudag. Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Notaðu tímann til að afla þér frekari vitneskju um Kj nám er þú hefur mikinn áhuga á; kvöldin verða 1 þér mjög mikilvæg í því sambandi. Hafðu hemil á 1 tilfinningum þínum. Heillatala er þrír. BÁRÞURRKA HEIMILANNA TILVALIN TÆKIFÆRISGJÖF EINKAUMBOÐ: I. GUÐMUNDSSON & CO. HF., REYKJAVÍK 32 VIICAN 12. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.