Vikan


Vikan - 20.03.1969, Blaðsíða 49

Vikan - 20.03.1969, Blaðsíða 49
2 bollar hveiti !! Vt tesk. salt 3 tcsk. lyftiduít % bolli mjólk % bolli eggjahvíta M bolli strásykur Smjörlíkið hrært vel með I bolla af sykri. Droparnir látnir í. Hveiti blönduðu salti og lyfti- dufti hrært út í ásamt mjólk- inni, hrært vel. Eggjahvíturnar stífþeyttar með Vt bolla af sykri. Látið varlega saman við deigið. Bakað í ofnskúffu ca. 9x12 tomm- ur á kant i meðalheitum ofni ca. 40 mín. Skorið í tígla meðan kakan er volg. Má skreyta með glassúr. SÚKKULAÐIMOLAR 2 matsk. kókó iVi bolli hveiti V" tesk. lyftiduft % bolli sykur Vi bolli smjörlíki 1 egg % tesk. vanilludropar Blandað saman hveiti, kókó, lyftidufti. Smjörlíki þeytt vel með sykri, eggi og vanillu. Helm- ingi hveitiblöndunnar hrært saman við, þeytt vel, síðan því sem eftir er. Deigið kælt ca. 30 mín. vafið í vax- eða smjörpapp- ír. Nú má gera hvort sem vill, búa til lengjur áður en deigið er kælt, sem síðan eru kældar um 4 klst. og skornar þá í sneið- ar, eða deigið flatt út eftir 30 mín. kælitímann og skorið í kringlóttar kökur með glasi eða móti. Bakað við meðalhita. ENSKT KEX 113 gr smjörlíki 85—113 gr strásykur 226 gr hveiti Dálítil mjólk eða eggjarauða, ef með þarf. Smjörlíki og sykur hrært mjög vel. Hveitið látið í og hrært unz það virðist hafa samlagazt smjör- líkishrærunni. Gott kexdeig á að vera þétt og samfellt, vilji það ekki tolla vel saman, er dálítilli mjólk eða eggjarauðu hrært saman við eftir þörfiun. Síðan er deigið flatt út og stungið út í æksilega lögun. Bakað við 200° C 10—12 mín. Breytingar má gera á þessu kexi. Súkkulaðikex: Minnkið hveiti um 42 gr og látið 42 gr kókó í staðinn og nokkra dropa af van- illu. Appelsinu- eða sítrónukex: Bætið rifnum appelsínu- eða sítrónuberki í deigið, notið safa úr ávöxtunum (1 matsk.) til þess að væta í með. .^1 SÚKKULAÐIHJÓL 1 Vi bolli hveiti Vi tesk. lyftiduft Vh tesk. salt Vi bolli smjör eða smjörlíki % bolli sykur 1 eggjarauða 3 matsk. mjólk lVa matsk. kókó Smjör og sykur hrært vel í létta froðu. Eggjarauðu bætt í og þeytt vel. Hveitið blandað iyftidufti og saiti og því smá- hrært út i ásamt mjólkinni. Deiginu skipt í tvennt og kókó blandað í annan hlutann. Látið kólna svo hæfilegt sé til að fletja út. Flatt út í tvær ferkantaðar kökur, sem jafnastar að stærð, ljósa kakan lögð yfir þá dökku og vafið upp líkt og rúlluterta. Vafið þétt og kælt, helzt yfir nótt. Skorið í sneiðar og bakað í vel heitum ofni 5 min. KÆLDAR SÝRÓPSKÖKUR Stór uppskrift 6 bollar hveiti Vt tesk. salt Vi tesk. sódaduft lVa bolli smjör eða smjörlíki Va bolli sykur (strásykur eða púðursykur eftir smekk) 1 bolli muldar hnetur Smjörlíkið hrært í létta froðu, sykri og sýrópi hrært saman við og þeytt vel. Hnetum bætt í. — Hveitið, sem sigtað hefur verið með sódadufti og salti, er hnoð- að upp í. Deigið verður fremur þykkt. Búnar til þrjár lengjur, látnar í vax- eða smjörpappír og kælt 3—4 tíma eða unz lengj- urnar eru mátulega harðar til þess að sneiða niður. Skornar fremur þunnt með beittum hnif. Bragði má breyta með því að nota kókósmjöl í staðinn fyrir hnetur, eða bæta bræddu súkku- laði eða % bolla af kókó í deig- ið á undan hveitinu. Lika má minnka hnetumagnið og bæta litlum súkkulaðibitum upp í. SÚKKULAÐISNITTUR 5 dl hveiti 1 tesk. lyftiduft lVa matsk. kókó lVa dl sykur 200 gr smjör eða smjörlíki Va dl fínhakkaðar möndlur 1 eggjarauða Til að bera ofan á: eggjahvíta, sneiddar möndlur. Öllu blandað saman á borði og hnoðað létt saman. Búnar til lengjur, sem raðað er á plötu. Penslaðar með þeyttri eggja- hvítu og möndlum stráð yfir. — Bakað við vægan hita (175°C) unz lengjurnar eru þéttar við- komu og hafa fengið góðan lit. Skornar á ská í bita meðan þær eru enn heitar. MÖGULEIKAKÖKUR 250 gr smjör eða smjörlíki 100 gr sykur 1 egg 3 matsk. rjómi 1 tesk. vanilla 7 dl hveiti Öllum efnunum blnndað sam- an á borði og hnoðað hratt sam- an. Deigið látið kólna um stund og síðan flatt út fremur þunnt. Skornar út kökur, nota má glas eða til þess gerð mót Kökurnar eru bakaðar ljósbrúnar 'við 175° hita. Þessar kökur eru ágætar eins og þær koma fyrir, en gott er að skreyta þær með glassúr eða sultu. Einnig mjög góðar lagðar saman með hvers konar kremi, tvær og tvær og þá má skreyta efri kökuna með glas- súr. SKRAUTKRANSAR 125 gr smjör eða smjörlíki 3 matsk. strásykur 6 stk. rifnar, beiskar möndlur 2Va dl hveiti Ca. 5 dropar grænn matarlitur. Öllu blandað saman á borði að undanskildum matarlitnum. — Hnoðað létt og fljótt saman. Litnum blandað saman við Vi af deiginu. Úr því ólitaða eru bún- ir til venjulegir kransar (eins og vanilluhringir) og topp af grænu deigi sprautað í miðjuna. Bakað fallega brúnt við 200°. GRÆNAR HNETUKÖKUR 300 gr smjörlíki lVa dl sykur IVa dl hveiti 50 gr muldar hnetur eða möndlur Grænn matarlitur Smjörlíki mulið saman við sykur og hveiti og hnoðað fljótt saman. Hnetu- eða möndlu- mylsnunni hnoðað upp í ásamt nokkrum dropum af lit. Búnar til lengjur um 4 cm í þvermál, sem látnar eru svo kólna. Búin til blanda úr V/a matsk. kókó, Va matsk. kaffidufti (instant), 1 matsk. sykri. Lengjurnar pensl- aðar með blöndu af eggi og mjólk, síðan velt upp úr kókó- blöndunni. Skornar í ca. Va cm þykkar sneiðar, sem eru bakað- ar við 175° í ca. 10 mín. HAWAIITOPPAR 2 egg 1 Va dl sykur 200 gr kókósmjöl 50 gr smjörlíki Sykur og egg þeytt í samfellda froðu. Kókósmjöli og bræddu smjörlíkinu bætt í. Smjörlíkið má ekki vera of heitt. Deigið látið í toppa á vel smurða plötu. Bakað við 175° í ca. 10 mín. SKÍÐASKÁLAKÖKUR 200 gr sykur 200 gr sýróp 200 gr smjörlíki V/a tesk. kanell 1 tesk. negull 1 tesk. sódaduft 75 gr. möndlur, hakkaðar Ca. 500 gr hveiti Sykur, sýróp og smjörlíki lát- ið í þykkbotnaðan pott og brætt saman. Kælt alveg áður en kryddið er látið í. Sódadufti og hveiti hrært að síðustu saman við ásamt hökkuðu möndlunum. Deigið hnoðað saman, þarf kann- ske meira hveiti, svo það verði samfellt. Búnar til þykkar lengjur, látnar á vax- eða smjör- pappír og látið bíða jafnvel 4— 5 daga. Þá er það sneitt í þunn- ar skífur og bakað við 200° hita ca. 5 mín. * 12. tbi. VIKAN 49

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.